Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Qupperneq 48

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Qupperneq 48
72 TÍMARIT VFl 1966 Bortími á umferð og boraðan metra er næsta línurit og þar næsta er útmokstur á umferð og rúmmetra. Þessi línurit eru mjög lík með topp frá sandkenndu mórenunni þangað til norski verkstjórinn kom. Honum tókst að auka borhrað- ann meira en útmoksturshraðann. Efsta línuritið sýnir hleðslu, útblástur og ann- að, sem ekki fellur undir neitt þeirra atriða, sem þegar er upptalið. Hleðslulínuritið er mjög svip- að og bor- og útmoksturslínuritin. Litlar sveifl- ur eru á útblásturslínuritinu. Útblásturstíminn er mestur snemma, nær svo lágmarki og vex svo jafnt og þétt eftir því sem innar dregur. ,,Ann- að“ hefur tvo toppa. Er annar þegar verið er að gera tilraunir með sprengiefni en hinn þegar reynt var að auka inndrift inni í andesitinu, en það gaf mjög slæma raun. Norska verkstjóran- um, Olav Töndervold, tókst að minnka tímann, sem fór í „annað“ mjög verulega, eða niður í 2 tíma frá því að hafa verið yfirleitt 4 tímar. Hætt var við tilraunagöngin þegar þau voru orðin 258 m löng, enda var þá útséð um, að þau mundu ekki verða búin fyrir þann tíma, sem ætl- að var að skila áætlun um virkjunina. Ástæðuna til þess, að ekki tókst að ná tilskildum gangi, tel ég liggja í töfum vegna vatnsaga og því að berg- ið leyfði ekki nema mjög litla inndrift á hverja umferð. Gangurinn var beztur í mórenunni utan- til eða allt upp í 4 m á dag. Hefði sú hagræðing, sem fylgdi komu Olavs Töndervolds verkstjóra verið komin, þá hefði þar mátt ná upp undir 6 m hraða á dag með 2.4 m inndrift. En með þeirri inndrift sem möguleg var í andesitinu hygg ég að 6 m áætlunin hafi alls ekki verið raunhæf. 9. Aðstæður á stöðum helztu mannvirkja. Stíflustæðið er á hraununum, sem runnið hafa á eftirjökultíma. Aðstæður eru þannig, að Þjórsá rennur í þéttum stokk, sem aurburður árinnar hefur þétt. Langt út frá ánni á báða vegu hefur einnig borizt mikill leir úr ánni út í hraunið. 1 efra borði hraunsins er, auk leirsins úr ánni, mikið um eldfjallaösku og vikur aðallega úr Heklu. Saman við þetta er blandað hraunmolum alveg upp á yfirborð. Hraunmolarnir eru senni- lega frostlyftir. Þetta yfirborðslag er yfirleitt nokkrir metrar á þykkt og tekur þá við hið massiva hraun með mjög ójöfnu yfirborði. Jarð- vatn er lítið í yfirborðslaginu, en niður við botn fyrsta hrauns kemur í jarðvatn. Er það venjulega 10-12 m fyrir neðan vatnsborð árinnar og hefur hún engin áhrif á það. Undir fyrsta hraunlagi, sem er venjulega um 18 m að þykkt, að með- töldu lausa yfirborðslaginu, kemur millilag úr sandi og vikri eða þar sem annað hraun er undir, nákvæmlega eins lag og yfirborðslag efsta hraunsins. Ekki er þess að vænta, að neinn verulegur leki verði í gegnum hraunið og sá leki, sem í fyrstu kann að verða, mun hverfa mjög fljótt vegna þéttingar af aurburði árinnar. Þar sem lekaleiðir eru stytztar var talin þörf að þétta millilag vegna hættu á grefti þess við aukinn jarðvatnsþrýsting. Verður þar gert þéttitjald niður í gegnum milli- lag, en að öðru leyti mun stíflan byggð á þéttu efsta hrauni. 9.2 Jarðgöng. Aðrennslisgöng virkjunarinnar hggja í blá- grýti og blágrýtisbreksíu myndaðri á lagamót- um. Hvert blágrýtislag er venjulega um 10 m að þykkt með breksíunni og hallar lítið eitt til suðausturs. Þar eð göngunum hallar til suðvest- urs skera þau nokkur lagamót. Einnig munu göngin liggja í gegnum 2 sprungur. Blágrýtið er með tvennskonar stuðlun, grófa og reglulega stuðlabergsstuðlun og óreglulega og miklu þétt- ari stuðlun, sem við köllum kubbabergsstuðlun. Bæði stuðlabergið og kubbabergið mundi sam- kvæmt Karl Terzaghi teljast mjög þéttsprungið berg og þurfa mikla styrkingu. Svo er nú samt ekki. Sprungufletir stuðlabergsins liggja þétt saman og eru svohtið bylgjaðir þannig, að hreyf- ing getur ekki orðið eftir þeim án þess að brjóta massivt berg. Stuðlamir eru sem sagt mjög vel læstir saman. Kubbabergið hefur yfirleitt smærri og óreglulegri stuðla. Það er því einnig læst saman á svipaðan hátt auk þess sem það fær styrkleika á því, að stuðlarnir em að heita má vafðir saman. Hvelfingar standa því ágætlega bæði í kubba- bergi og stuðlabergi, en hægara er að forma .livelfingar í kubbabergi. Breksían á lagamótum hefur allt aðra jarð- tæknilega eiginleika eins og þegar fékkst reynsla af í tilraunagöngunum 1962. Breksían springur mjög iha og steinar eru oft hálflausir í milli- massanum þannig, að hún borast og hleðst illa. Það sem samsvarar stuðlun blágrýtisins finnst varla og má næstum kalla bergið massivt með tilliti til þess. Það virðist standa vel í hvelfing- um en þörf er á að verja það gegn vatnsgrefti. 9.3 Stöðvarhús. Stöðvarhús virkjunarinnar er aðallega í mó- bergi, einkum þeirri gerð þess, sem nefnist tuff. Einnig reyndist vera kerfi af blágrýtisgöng- um þar. Tuffið er mjög vel samlímt, enda er
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.