Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Page 49

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Page 49
TlMARIT VPl 1966 73 Skýringar — Legend „ajo* Gangur Dike Sprungur Faults Aðolstuðlunarsprungur Major Joints Stefna og halli brotflota Strike and dip on tecktonic feotures Mynd 13. Bráðabirgðakort af grunni stöðvarhúss við Búrfell, gert þegar gröftur var í hæð 126 m y.s. Kortið ^ er ekki nákvæmt, en sýnir þó greinilega hvernig stuðlun er aðallega samsiða sprungum. Pigure 13. Preliminary map of power house excavation, done when excavation was at elevation 126 m.a.s. The map is not accurate but still it shows clearly how jointing tends to be parallel to faultlines. þetta gamalt berg, sennilega 1.5-2.0 milljóna ára gamalt. Stuðlun tuffsins var óþekkt fyrir, en hún reyndist vera mjög nálægt því samsíða aðal- sprungustefnum bergsins. Stuðlun er miklu strjálli í tuffinu en í blágrýti, en stuðlafletir eru sléttir og beinir og einnig er þar oft nokkur um- myndun og gerir það stuðlafletina enn hálli. Er því stuðlunin meira vandamál í tuffi en í basalti, sérstaklega í háum veggjum, sem eru nærri sam- síða stuðlastefnunni og einnig mundu jarðgöng og aðrar hvelfingar, sem eru samsíða stuðla- stefnu standa illa, en vel ef þeir lægju þvert á stuðlastefnuna. Á mynd 13 er bráðabirgðakort af grunni stöðvarhúss með göngum settum inn og stuðlasprungum, stefnu þeirra og halla. Sumar stuðlasprungurnar eru misgengis- eða víxlgengis- sprungur samtímis og er gangakerfið i stöðvar- húsinu um leið sprungusvæði. Má þar sjá rákaða sprungufleti, flesta í lárétta stefnu. Rákuðu sprungufletirnir eru algengastir í vestur- og aust- urjaðri gangasvæðisins, en þeir gætu líka verið inni í því sjálfu en vegna ummyndunar ekki sjá- anlegir. 9.ý Byggingarefni. Möl og sandur, sem rannsakað var með tilliti til notkunar í steypuefni reyndist hvorttveggja varasamt vegna líparítblöndunar og of mikils öskuinnihalds. Var því það ráð tekið að mala blágrýti bæði í sand og möl til notkunar í steypu. Sandur og möl, sem finnst í eða við farveg Þjórs- ár á nokkrum stöðum verður þó notað í malar- síur jarðstiflna. Efni í þéttikjarna er helzt mórenan við jarð- göngin frá 1962 og nokkrir smáfundir aðrir af mórenu. Einnig er mögulegt að nota fokjarðveg, en smávegis er enn eftir af honum á nokkrum stöðum meðfram Þjórsá, en að öðru leyti hefur hann að mestu fokið burt. Mórenan er mjög hörð og vinnst varla án sprenginga og er það höfuðgalli hennar. Fokmoldin inniheldur mikið af ösku og vikri frá Héklu. Gerir þetta eðlis- þyngd hennar mjög lága og eykur einnig vatns- leiðni hennar.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.