Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Page 57
TlMARIT VFl 1966
81
Mynd 7. Verksmiðjan I byggingu haustið 1967. Á
myndinni sést talið frá vinstri: Olíugeymirinn með
leðjuþróna í baksýn, þá verksmiðjugrunnurinn, sem
hafði verið steyptur, tækjaturn, sekkjunar- og geymslu-
hús og lengst til hægri bygging fyrir skrifstofur, rann-
sóknir og mötuneyti.
með vissri gerð af cyclónum, og loks sekkjað.
Hinn þurri hluti vinnslunnar við Mývatn mun
hafa 24 þúsund tonna afkastagetu frá byrjun og
raunar 30 þús. tonna með fyllstu nýtingu eins og
fyrr var greint frá. Hins vegar verða síu- og
þurrkaraafköst minni nú fyrst í stað og er hugs-
unin sú að bæta við samhliða vélasamstæðum í
þennan hluta, eftir því sem markaðurinn gefur
tilefni til.
Þessi verksmiðja, sem verið er að reisa við
Mývatn, er í veigamiklum atriðum frábrugðin
öðrum sem reistar hafa verið. 1 fyrsta lagi er
námuvinnslan sjálf. 1 öðru lagi flutningur hrá-
efnisins frá námu að verksmiðju. I þriðja lagi
hráefnisgeymslan við verksmiðju. I fjórða lagi
síunin og vökvasandskiljm-. I fimmta lagi er
þurrkunin með nýjrnn hætti, þar sem notuð er
gufa í stað olíuhitaðs lofts, og önnur gerð þurrk-
ara. 1 sjötta lagi er svo lokavinnslan með nokkuð
öðrum hætti. Þessi sérstaða verksmiðjunn-
ar stafar bæði af aðstæðum við Mývatn og af
tæknilegri þróun í gerð þessara mannvirkja. Svo
hefir viljað til, að auk þeirra rannsókna, sem
hér hafa verið gerðar, styðst bygging þessarar
verksmiðju beint við reynslu nærri alls kísilgúr-
iðnaðarins, auk reynslu þeirra verkfræðinga,
sem teiknuðu.
Allar þær kísilgúrverksmiðjur aðrar, sem mér
er kunnugt um að framleiði nú kísilgúr, taka
hann úr námum á þurru landi, og fer námugröft-
urinn venjulega fram í opnum námrun. Ruðning-
ur er oft 6 hlutar á móti hverjum einum, sem not-
aður er, og allt þarf þetta að flytjast burtu á
vélknúnum tækjum, ruðningur á afvikinn stað
og hráefnið oft langa vegalengd að verksmiðj-
unni. Þessir liðir í kísilgúrvinnslunni eru venju-
lega dýrir, því fyrir hvert tonn af unninni vöru
þarf venjulega 4—5 m3 af hráefni og ruðningur-
inn er ennþá meiri eða oft 25—30 m3 á tonn.
Þetta er allt leyst með dælingu fyrir norðan, og
verður hráefnisöflun því væntanlega hlutfalls-
lega ódýrari en annars staðar er. Þessu fylgja
líka þeir kostir þar, að unnt er að koma við
vökvasandskiljum og þar að auki er ekkert ryk
samfara þeirri tilfærsluaðferð, sem notuð er þar.
Ókosturinn er hins vegar sá, að nauðsynlegt er
að sía mestan hluta vatnsins burtu. Þetta virð-
ist þó ekki það kostnaðarsamt eða erfitt, að það
vegi upp á móti kostum dælingarinnar. Ég hygg
því, að það hafi verið okkur lán, að Mývatns-
gúrinn var undir vatni, úr því að við gátum leyst
þau vandamál, sem þróun tækni þar að lútandi
krafðist.
Þurrkunin fer að sjálfsögðu fram með gufu
aðeins vegna þess, að jarðgufan fæst þarna mun
ódýrari en ef um olíu væri að ræða. í sambandi
við þetta hafa komið fram margar spurningar
og sumum þeirra mun ekki fullsvarað fyrr en að
rekstri kemur. Það eru raunar þrátt fyrir allt
fjölda mörg smáatriði í sambandi við allan þann
hluta verksmiðjunnar, sem við köllum vota hlut-
ann, sem verður efalítið að fá reynslu á jafnóð-
um og verksmiðjan eykur afköst sín. Rekstur
þessarar verksmiðju fyrstu árin verður því
tæknilega séð mjög vandasamur, og þó sérstak-
lega, þegar tekið er tillit til þess, að auk nýrra
aðferða við vinnsluna krefst framleiðslan mikill-
ar nákvæmni í eðli sínu. Kröfur til eiginleika
síunargúrsins kunna líka að breytast og starf-
semin að aukast. Hér mun því mikil þörf fyrir
árvaka menn um langa framtíð.
Ég held að varla geti farið hjá því, að þessi
verksmiðja verði nokkuð mikilvæg efnahagslega
fyrir okkur eins og án efa verður bent á af síðari
ræðumanni. Hins vegar vil ég líka benda á, að
verksmiðjan er tæknilega mikilvæg fyrir okkur.
1 fyrsta lagi er þetta byrjun á notkun verulegs
magns af jarðgufu í iðnaði hér og mimum við
mikið af því læra. 1 öðru lagi mim af þessu leiða
mikið aukna kunnáttu í jarðefnaiðnaði hér á
landi.
Ég vil að lokum nota þetta tækifæri til þess að
þakka þeim öllum, sem ég hefi unnið með að
framgangi þessa máls. Mig hefir raunar oft undr-
að hvað heppið þetta málefni hefir verið að öðl-
ast stuðning og starfskrafta svo margra hinna
færustu og beztu manna, bæði hér heima fyrir
og annars staðar. Þetta hefir orðið mér til mikill-
ar ánægju og megi hið unga fyrirtæki lengi njóta
starfanna.