Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Síða 58

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Síða 58
82 TÍMARIT VFl 1966 Kísilgúrverksmiðjan við Mývatn Eftir Pétur Pétursson, forstjóra. Erindi flutt á fundi í Verkfræðingafélagi íslands 19. des. 1966. Fyrstu kynni mín af áætlunum um nýtingu kísilgúrnámunnar á botni Mývatns voru, þegar ég starfaði í stóriðjunefnd. Raforkumálastjóri hafði haft forgöngu um, að rannsóknir væru gerðar, bæði innan lands og erlendis, sem gefið höfðu jákvæðan árangur, að því er Baldur Líndal áleit. Raforkumálastjóri og forstjóri Rannsókn- arráðs töldu sjálfsagt að halda tilraunum og rannsóknum áfram. Stóðiðjunefnd og ríkisstjórn- in samþykktu tillögur þeirra, og voru f jármunir lagðir fram, til að hægt væri að halda tilraunun- um áfram. Var Baldri Líndal falin áframhald- andi framkvæmd málsins á tæknilega sviðinu, en í annarri af skýrslum Baldurs Líndals frá ár- unum 1961—1964 segir svo: „Það er aðalniðurstaða þessara athugunar, að ekki megi láta undir höfuð leggjast að halda athugun og áætlunargerð um kísilgúrverk- smiðju við Mývatn áfram, þar sem líkur þess, að hún geti orðið hagkvæmt fyrirtæki, eru miklar“. Ég kem síðar að því, hvernig þetta mál hefur þróazt, eftir því sem árin hafa liðið. En eitt vil ég leggja sérstaka áherzlu á. Það er, að fyrstu hugmyndir Baldurs Líndal um vinnsluaðferðir og verksmiðjustærð standa svo til óbreyttar, þrátt fyrir mjög mikla andstöðu á ýmsum stig- um málsins frá erlendum sérfræðingum, sem ekki gátu fallizt á sjónarmið hans. Samvinna við Hollendinga Eins og ýmsum er kunnugt, var fyrst reynd samvinna við Þjóðverja um að nýta Mývatns- námuna. Sú tilraun bar ekki árangur vegna áhugaleysis Þjóðverjanna. Næst kom til áhugi Hollendinga, þ. e. hollenzka fyrirtækisins AIME, sem var gamalt námufyrirtæki frá Indónesíu. Áhugi Hollendinganna var tvímælalaus, þar sem þeir lögðu 2 milljónir króna í félag, sem skyldi annast undirbúning væntanlegrar námuvinnslu. ,,Undirbúningsfélagið“ var stofnað 20. júní 1964 með 10 milljónir króna í hlutafé, 8 milljónir frá íslenzka ríkinu og 2 milljónir frá AIME. Þessi upphæð var nægjanleg til þess að halda áfram tilraunum, markaðsrannsóknum og annarri nauð- synilegri frumvinnu. Stóriðjunefnd ákvað að leggja til, að þessi háttur skyldi hafður á und- irbúningnum. Ég held, að það sé frumskilyrði við allar framkvæmdir af þessu tagi, að strax í upp- hafi séu lagðir fram hæfilegir fjármunir, til þess að yfirleitt sé hægt að halda undirbúningi hik- laust áfram. Undir því er raunar öll framkvæmd komin að undirbúningur sé nógu góður; en að því mun ég koma síðar. Á meðan við höfðum samvinnu við Hollend- ingana, frá miðju ári 1964 til febrúarmánaðar 1965, var gerð mjög yfirgripsmikil markaðs- könnun varðandi kísilgúr í Evrópu. Einnig var gerð athugun á því, hvernig aðrir framleiðend- ur myndu taka nýjum keppinaut á markaðnum. Fyrir þessar athuganir voru greiddar nær 1 milljón króna. Það var hollenzkt fyrirtæki „Mak- rotest“, sem annaðist þetta auk AIME. Þó að hér væri um mjög kostnaðarsama fram- kvæmd að ræða, er ég fyrir mitt leyti alveg sann- færður um, að rétt var að farið. Við fengum tvö þykk bindi um þessar athuganir, þar sem könn- uð var notkunin og verðlag í Evrópu. Niður- staðan varð sú, að e. t. v. gætum við brotizt inn á markaðinn, en að það myndi kosta mikla f jár- muni, og óvíst væri um árangur. Auk þess var talið, að það mundi taka mörg ár að komast inn á markaðinn. Allt benti til þess, að áhætta okk- ar væri mjög mikil. Við þessar upplýsingar bættist svo það, að hollenzka fyrirtækið AIME taldi sig ekki hafa fjárhagslegt bolmagn til að taka þátt í fram- leiðslufyrirtækinu, enda þótt það vildi taka að sér að annast söluna — eingöngu á okkar ábyrgð

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.