Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1878, Qupperneq 57

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1878, Qupperneq 57
um að játast undir þessar reglur. Þessi uppruni var hinn fyrsti til múnklífis reglu, og var hún stofnuð 305. Hann andaðist 361, 105 ára gamall, að sagt er. En það er regla, að andláts- dagur helgra manna er talinn fæðíng þeirra, einsog talið var hjá hinum fornu Egiptum. Af Antonius hinum helga er rituð saga á íslenzku, og er til brot af henni á skinnbók í safni Arna Magnússonar, og sagan heil á skinnbók frá fimtándu öld í Stokkhólmi í bókhlöðu Svía konúngs, Nr. 3 í arkarbroti. 20. Januar heitir Bræðramessa, og er sá dagur haldinn í minníngu eptir tvo rómverska menn, Fabianus og Sebastian- us. Þessir menn voru þó ekki bræður, og áttu reyndar ekkert skylt hvor við annan. Fabianus varð biskup í Róm, tuttugasti og fyrsti í röðinni, og bar það til með undarlegum hætti. Hann kom til Rómaborgar ár 238, til að vera við biskups- kosnfng. Þá bar svo til, að þar kom dúfa fljúgandi inn í sal- inn, þar sem verið var að kjósa, og settist á höfuð Fabians. Þetta þótti öllum þeim, sem voru að kjósa, bendfng frá guði, og var hann kosinn til biskups. Síðan var hann biskup 14 ár. Það sem mest liggur eptir hann er það, að hann bygði kapellur yfir grafir margra píslarvotta. Hann var drepinn í hinni stóru ofsókn í tfð Decius keisara, ár 230, og var gefið að sök, að Filippus keisari, sem hann hafði skírt, hefði gefið honum allt gullhús sitt eða fjársjóðu. — Sebastianus var drep- inn löngu síðar, þegar Diocletianus var keisari. Hann var hraustur hershöfðíngi og var fyrst bundinn við stólpa, og skot- inn með örvum, en varð ekki skotinn til dauðs, og var þá sleginn þar til hann dó; það var ár 302. Um Sebastianus hinn helga er rituð saga á íslenzku og eru brot af henni frá fjórt- ándu og fimtándu öld á skinni f safni Arna Magnússonar, en hún er heil á skinnbók í bókhlöðu konúngs í Stokkhólmi, Nr. 3 f arkarbroti, frá fimtándu öld. 21. Januar er Agnesarmessa. Hún var rómversk mær af góðum ættum og var kristin. Heiðfngjar vildu kúga hana til að þjóna við hof sitt, en hún vildi ekki. Sonur höfðíngja nokkurs, sem hét Symphorianus, vildi eiga hana, en hún vildi ekki, því hann var heiðinn. Hún var stúngin með knífi til bana 306 þenna dag, sem messudagur hennar er haldinn. Um hana og píslarvætti hennar er kvæði á íslenzku, sem heitir Agnesar diktur. Til er og saga af henni, lítið brot í safni Árna Magnússonar og í bókhlöðu konúngs í Stokkhólmi Nr. 2 í arlc- arbroti nokkuð stærra. Á messudag Agnesar voru tvö hvít lömb færð frá Agnesar klaustri til Péturskirkjunnar í Róm, og af ull þeirra unnin bönd, sem voru kölluð pallia og lögð yfir biskupa, þegar þeir voru vfgðir (Dipl. Isl. I, 587). Af þessum þaliis fékk páfastóllinn miklar tekjur. 25. Januar er Pálsmessa haldin, í minníng þess, þegar Páll postuli snerist frá ofsóknum móti kristnum og varð einn hinn ypparsti af Krists lærisveinum. Hann var fæddur í Tars- us, litlum bæ í Ciliciu f Litlu Asíu, og var upp alinn í Gyð- ínga lærdómi í flokki Farísea, hjá hinum merka meistara (55)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.