Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1878, Page 61

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1878, Page 61
svo marga daga fastaði Jesús á eyðimörku, einsog fyrsta sunnu- dags guðspjallið í föstunni segirfrá; svo mörg ár voru Gyðíngar á eyðimörkinni, og þar eptir héldu þeir páska; svomargadaga gekk einnig Elías spámaður fastandi. Þegar fastan byrjaði átti hver að hylja sig í sekk, og dreifa ösku yfir höfuð sér, eptir sið Gyðínga, þegar þeir héldu iðrunar og bænadaga. Þessir siðir, sem fyigdu föstuhaldinu, hafa einnig verið tíðk- aðir á Islandi á kathólsku öldinni, og nokkuð eldir eptir af þeim enn. Mánudaginn í föstuinngáng höfðu menn til skemt- unar grímuleiki og þesskonar. Þriðjudaginn skyldi maður eta svo mikið kjöt, að manni lægi við spreng (sprengi- kvöld), og kjötið skyldi vera hángið kjöt, til þess að það væri réttilega kallaður „gamli Adam“. Ekki var heldur neitt því til fyrirstöðu, að menn ætti þjónustur sinar fyrir vinstúlkur, því þetta er gömul föstuinngángsvísa (sbr. Isl. þjóðsögur II, 573. Maurers isl. Volkssagen, 207): Þriðjudags kvöld í föstuinngáng það er mér í minni, þá á hver að hlaupa’ í fáng á þjónustunni sinni. En eptir að fastan var byrjuð, þá voru engin grið, og hver sem ekki gat xsetið ( föstunnií, rneð því að nefna aldrei kjöt, mátti eiga von á vítagjöldum. Sá siður, að karlmenn bæri ösku og kvennfólk stein á öskudaginn, er sett til iðrunarmerkis. I biskupa-annálum s(ra Jóns Egilssonar er sagt frá, að ápálma- sunnudag hafi verið brenndlr pálmar, sem menn kölluðu, eða seljuviðir á altarissteinunum til ösku, og askan geymd, til þess að dreifa á menn á öskudaginn. En síðan, eptir að prestarnir hættu þessu og siðaskiptin urðu, þá varð úr þessu einskonar leikfáng, og skiptust karlar og konur á, að hjálpa hvort öðru til iðrunarinnar; þess vegna varð það kvennfólksins ætlunar- verk, að koma ösku á karlmennina, en þeirra aptur að koma steinum á kvennfólkið, en steinarnir tákna annaðhvort hið sama og askan, eða þá hegníng, sem konur fergu stundum fyrir ávirðíngar sínar, eða bera steina úr bæ. Sú hegníng tíðkaðist víða, en þó varla á Islandi. Stránga föstu þolir enginn maður í 40 daga, enn síður í 7o daga. Þetta fundu bráðum hinir kristnu söfnuðir, sem tíðkuðu fösturnar. Það var því snemma, að ýmislegt var tekið til bragðs til að gjöra föstuna bærilegri. Það vat þá leyft, að menn mætti borða þuran mat; það kölluðu menn að »þur fasta«> en forðast kjöt, egg og heitan mat. Þetta þótti þó enn of hart> og var þá farið að leyfa að borða fisk um föstuna, og vegna heilsunnar ýmsan annan mat, en þó því að eins, að biskup eða páfi leyfði. En þetta kostaði ærna penínga, og það urðu þeir að gjalda, sem vildu njóta þesskonar línkindar. Eins og kunn- ugt er, þá kaupa Suðurlanda þjóðir mikinn fisk frá Islandi og öðrum löndum til að hafa fyrir föstumat. Italir, Spánverjar og Portugalsmenn fá nrikinn fisk keyptan eða fluttan til sln, en (50)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.