Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1878, Page 66

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1878, Page 66
jafnskjótt og hann er dreginn upp úr sjónum, en varast að særa hann að öðru leyti, kasta honum óþyrmilega, eða merja hann. 2. Þegar fiskurinn er flattur, ríður á að gjöra það snyrti- lega, ristá ekki al!t of djúpt ofan með hryggnum, taka vand- lega úr blóðdálkinn, og plokka fiskinn vel um leið. 3. Þegar fiskurinn er saitaður, skal þvo hann vel og vandlega, og fara varlega með hann blautan, svo hann verði hvorki marinn eða rifinn, eða skaddist á nokkurn hátt. 4. Leggja skal fiskinn f kös, þó ekki sé nema fáeinar stundir, svo vatnið geti runnið úr honum. 5. Fiskurinn þarf að vera mátulega vel saltaður, og þveg- inn vel og vandlega, þegar hann er tekinn úr saltinu; bezt er að þvo hann 1 rennandi vatni, en ekki í stöðupollum. 6. Menn skulu gefa fiskinum einn góðan þerridag, eða sem því svarar, undir fyrsta farg. 7. Við fyrsta farg skal gæta þess, að pressa fiskinn, eptir bví sem hann hefir fengið þurk til. 8. Þar ríður á, að stakkarnir sé vel hlaðnír, svo að ekki standi á þeim vatn. 9. Þar á ofan eiga stakkarnir að vera vel þaktir með hær- um eða mottum allt 1 kríng, og huldir að ofan með borðum og grjóti, svo þeir sé óhultir fyrir rigníngum og súgvindi. 10. Þar rfður á, að fiskurinn sé vel þurkaður í gegn, áður en hann sé látinn 1 hús. 11. Fiskurinn á að vera geymdur í vel þurru húsi eptir að hann er fullverkaður, þar sera ekki lekur, og enginn raki er eða dragsúgur. 12. Það þykir hafa vel heppnazt, að fela formönnum á hendur söltun og hirðlng alla á fiskinum, og láta ekki salt- fisk koma til skipta fyr, en hann er fuliverkaður. Ráð til að lt'fga drukknaða (sjá Almanak Þjóðvinafélagsins 1875, bls, 44—45). Ráð til að lífga helfreðna (sjá Almanak Þjóðvinafélagsins 1875, bls. 46—47). Töflur til að breyta n'kismynt í krónumynt og krónumynt aptur í rfkismynt (sjá Almanak Þjóðvinafélagsins 1876, bls. 36—37). Beztu baðlyf handa sauðfé (sjá Almanak Þjóðvinafélagsins 1877, bls. 56—57). Fyrirspurnir um íslenzk rit (sjá Almanak Þjóðvinafélagsins 1877, bls. 59—60). (&0

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.