Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1898, Page 42

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1898, Page 42
þjóð, enn það varö aftur tilefni til þess, að liann kintist þjóð vorri, eins og hún er nú, og fjekk mætur á henni. Og enn í dag filgir hann öllu þvi, seni gerist hjer á landi, með vakandi auga og hlíju hjarta, tekur þátt i sorg vorri og gleði, eins og hann væri Islendingur, og hugsar um þau vandamál, sem hjer eru á dagskrá, eins og þau snerta hann sjálfan. Brjef hans til mín bera mjög viða vott um þetta- Það sem einkum einkennir rit Maurers er frábær lærdóm- ur og frúðleikur, samfara skarpskigni, dómgreind og sann- leiksást. Minni hans var framúrskarandi. Þegar jeg heim- sótti hann í Miinchen 1878, hliddi jeg á einn firirlestur hjá honurn, og hjelt hann hann alveg blaðalaust, og fataðist þó hvergi, ekki einu sinni í hinum mörgu tilvitnunum til ímsra rita, sem hann þuldi upp úr sjer. I brjefi til mín, dags. 6. mnrz 1882, kvartar hann ifir því, að minni sitt sje nú far- ið að bila, svo að hann verði nú að hafa með sjer á lausu blaði tilvitnanir þær, sem hann þurfi að nota í firirlestrum sinum. Ekki hefur Maurer hætt vísindaiðkunum sinum, þó að hann irði að sækja um lausn frá embætti vegna heilsu- lasleika, heldur hafa mjög margar merkilegar ritgjörðir komið frá honum siðan, og sjer ekki á þeim, að honum sje farið að förlast. Samt hefur hann i brjefum sinum á hin- um siðari árum kvartað mikið ifir því, að sjer sje farið að fara aftur bæði andlega og líkamlega. Hann er friður sin- um og hinn öldurmannlegasti, ennið hátt og svipmikið, augun snör og fögur. Þegar Maurer kom frá Islandi gekk hann að eiga mei af göfgum ættum frá Ulm, að nafni Valerie von Eaulhaber. Með henni hefur hann átt sex börn, sem upp hafa komist, 3 sini og 3 dætur. Öllum þeim, sem til Maurers hafa komið, mun vera minnisstætt hið fagra heimili þeirra hjóna Allur Leimilisbragurinn er svo elskulegur og ánægjulegur og gest- risnin svo látlaus og hjartanleg, að gestinum finst, eins og hann sje kominn heim til sin. Islendingum er þar altaf tekið tveim höndum, og þreitist húsbóndinn ekki að spjalla við þá um alt, sem hjer gerist, og spirja þá um vini sína hjer á landi. Þá er og indi að sjá hið mikla bókasafn (30)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.