Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1916, Side 38
XXXVI
Yfirmaðurinn á varðskipinu við ísland 1902 hefir samið
og skýrt frá heimildaratriðum þeim, sem töflur þessar fela
í sér. Þau eru samin aðallega eptir athugunum, sem ís-
lenzkir athugarar gerðu sama árið á þessum stöðum.
Flánetnrnar 1910.
Merkúríns er vanalega svo nærri sólu, að hann sést
ekki með berum augum. 20. janúar, 12. maí og 9. sept-
ember er hann lengst í austurátt frá sólu, og gengur
kringum þá daga í Reykjavík undir hlutfallslega 2 stundum
eptir sólarlag, 3V2 stundu eptir sólarlag og um sólarlags-
bilið. 2. marz, 30. júní og 20. október er hann lengst
í vesturátt frá sólu, og kemur kringum þá daga upp hlut-
fallslega hér um bil um sólarupprás, V2 stundu fyrir og
2 stundum fyrir sólarupprás.
Yenus skín skærast í Iok maí og byrjun ágústmán-
aðar. 24. apríl er hún lengst í austurátt frá sólu, og er
þá allan sólarhringinn á lopti fyrir ofan sjóndeildarhring-
inn. 3. júlí reikar hún fyrir framan sólina yfir á morgun-
himininn. 12. september er hún lengst í vesturátt frá sólu,
og kemur þá upp 5 stundum fyrir sólarupprás.
Marz er í ársbyrjun í Ljónsmerki og reikar þangað
til um miðbik marzmánaðar í vesturátt inn í Krabbamerki.
Það sem eptir er ársins reikar hann svo austur á bóginn
gegnum Krabbamerki, Ljónsmerki, Meyjarmerki, Meta-
skálamerki, Sporðdrekamerki og Skotmannsmerki. 10. febr.
er Marz gegnt sólu og næst jörðu (“/3 sólfjarlægðar). Hann
er í hádegisstað: í ársbyrjun kl. 4 á morgnana, um miðj-
an febr. kl. 12 um miðnætti, um miðjan apríl kl. 8 e. m.,
í byrjun júlí kl. 5 e. m., um miðjan september kl. 3 e. m.
Júpíter heldur sig allan árshringinn í Fiskamerki,
Hvalnum og Hrútsmerki, og reikar til ágústloka austur á
bóginn, en úr því vestur á bóginn, unz hann í lok des-
embermánaðar tekur aptur að reika í austurátt. 24. okt.
er Júpíter gegnt sólu. Hann er í hádegisstað: í janúarlok
kl. 4 e. m., í aprílbyrjun um hádegi, í júnílok kl. 8 f. m.,
í ágústlok kl. 4 f. m., í októberlok um miðnætti, í nóv-
emberlok kl. 10 e. m. og í desemberlok kl. 8 e. m.
Satúrnus heldur sig allan árshringinn í Tvíbura- og
Krabbamerki. 4. janúar er hann gegnt sólu. Hann er í
hádegisstað: í ársbyrjun um miðnætti, í marzbyrjun kl. 8
e. m., um miðjan maí kl. 4 e. m., í júlllok um hádegi, í