Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1916, Síða 77
kurteis i háttum, ljós í hugsun og vel máli farinn,
metnaöargjarn um hag pjóðar sinnar, vin mikill
Breta og Rússa og var á heimleið úr kynnisför frá
Bússakeisara og stjórnmálaleiðangri, pegar ófriður-
>nn gaus upp í júlilok 1914. Hann er félagi i frakk-
neska vísindafélaginu, hefir gefið sig við ritsmíðum
°§ talinn mjög víðlesinn.
Helmuth von Moltlte, foringi herstjórn-
arráðsins pýzka, er fæddur í Mecklenburg-Schwerin
1 maímánuðl 1848. Hann er bróðurson Moltke greifa,
h'ns alkunna sigurvegara í ófriðnum 1870—71.
Hehnuth v. Moltke tók pátt í styrjöldinni 1ö70 og ávann
s®r járnkrossinn fyrir ágæta framgöngu, pótt ungur
Vseri að aldri. Síðan var hann i herforingjaráðinu
nndir handleiðslu föðurbróður síns frá 1881, unz
greifinn lézt 1891. Eftir lát hans hóf keisarinn Moltke
yn8ra til æðri metorða við herinn, og 1. jan. 1906
hann við forustu herstjórnarráðsins, pá er v.
^ehlieffen greifi varð að sleppa völdum sakir greina,
er Urðu með honum og keisara.
Vilhjálmur keisari hefir jafnan haft hinar mestu
niætur á Moltke yngra, og virða margir svo, sem
frægðarijómi nafnins orki par miklu um. Pegar
v- Búlow lét af kanslaratign bauð keisarinn Moltke
að taka við, en hann afpakkaði boðið. Þeir hafa
verið einkar samhentir, keisarinn og Moltke, að efla
herinn á hverja lund. Hefir Moltke varið til pess
öllu preki sinu og elju sinni óskiftri, og aldrei horft
1 fé né fyrirhöfn. Er talið, að hann sé einn mestur
hvatamaður að hinum stórfeldu fjárframlögum til
herbúnaðar, sem veitt hafa verið siðustu árin. Her-
'uálefni Þjóðverja hafa öll verið i bezta lagi um
Ungan aldur, sem kunnugt er, og hefir Moltke gætt
Þess trúlega, að heldur væri um bætt, en að verr
væri fyrir peim séð undir hans umsjá.
V. Moltke er mikill vexti og jafnbola, bláeygur
(11)