Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1916, Page 172
sá, er brotlegur verður, greiða 1. kr. sekt, en fyrir
arnaregg skal greiða 10 kr. sekt.
7. gr. Undanþágu frá ákvæðum laga pessara getur
ráðherra íslands veitt vísindalega mentuðum fugla-
fræðingum og náttúrufræðiskennurum, sem safna
fyrir skólana og náttúrufróðum mönnum, er safna
fyrir Náttúrugripasafnið í Reykjavík.
8. gr. Mál pau, er rísa út af lögum pessum, skal
farið með sem opinber lögreglumál. Sektirnar renna
að 1 's hluta i sveitar- eða bæjarsjóð, par sem brotið
er framið, en að 2/s til uppljóstranda.
Kvenréttindamálið.
Að framan er skýrt frá pví, hvernig takmörkun
á vinnautn í landinu pokaði áfram stig af stigi.
Hér skal einnig með fám orðum minst á annan
merkisviðburð, sem er kvenréttindamálið, pví hefir
•eins og hinu pokað áfram með hægð stig af stigi.
Fyrsta byrjunin kvenréttinda var með tilskipun
1850 pann 25. September, par sem ákveðið er, að
systur og bræður skjddu erfa jafnmikið, en eftir
norskum lögum áður fengu systurnar ekki nema
hálft bróðurlóð.
1882, 12. maí komu lög um kosningarrétt, sjálf-
stæðra kvenna eldri en 24 ára, til hreppsnefnda, sýslu-
nefnda, bæjarstjórna og safnaðarnefnda, með sörau
■skilyrðum sem karlmenn.
1885 komu fyrstu greinarnar um kvenréttindi í
dagblöðin, og í febr. 1895 kom fyrsta tölubl. af kvenna-
blaðinu, sem konur sjálfar hafa geflð út síðan.
1886 er tilskipan 4. des. um rétt kvenna til að
;ganga undir árspróf 4. bekkjar lærðaskólans. Einnig að
injóta kenslu í presta- og læknaskólanum í Reykjavík.
1887, 7. nóvember komu lög um sama efni.
1900, 12. jan. komu lög um fjármál hjóna, sem
var góð réttarbót.
1909, 30. júlí komu lög um kosningar og kjörgengi
(106)