Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1916, Síða 173
1 sveita- og héraðsraálum, með sömu skilyrðum
karlar og konur.
1911 þann 11. júli komu lög um rétt kvenna til em-
bættisnáms, til námstyrks og allra embætta landsins.
Og að síðustu hefir kvenþjóðin fengið nú, með lít-
undantekning, sama rétt og karlmenn til kosn-
lnga og kjörgengis, eftir ákvæðum hinnar nýju stjórn-
arskrár frá 19. júní 1915. Tr. G.
Hvað kostar Evrópnstríðið?
Nú í júnímán. 1915 telst svo til, að fyrir þær
Þjóðir, sem berast á banaspjótum, kosti styrjöldin
1000 milj. kr. viku hverja. Til glöggvunar því hve
mikil upphæð þetta er, má telja ýms stórfyrirtæki,
sem hafa gert mannkyninu ómetanlegt gagn.
Hin þurru svæði og lítt byggilegu í Bandaríkj-
unum er '/s al' öllu landinu. Ondanfarin 30 ár hafa
uienn, með upptökum í Arzona, graflð 100,000 kílóm.
langa vatnsveituskurði, sem hafa kostað 400 milj. kr.,
en með þeirri upphæð er 5 milj. hekturum breytt
Ur auðn í graslendi og akra. Þaðan er selt korn
iyrir 600,000 milj. kr. og framleiðslan öll getur fram-
fleytt 2 milj. manna. Sama upphæð sem heíir gengiö
iil þessa verks, endist ekki lengur til hernaðarins en
1 mánuð.
2260 milj, kr. kostaði að byggja Panamaskurðinn
Ameríku, Suezskurðinn milli Miðjarðarhafs og Rauða-
hafsins, Ivílarskurðinn þýzka og Manchesterskurðinn
a Englandi. Sama upphæð endist tæplega 2'l^ viku
til yfirstandandi hernaðar.
Allur verzlunarfloti Þýzkalands er virtur 1100
uulj.; hann endist öllum hernaðararþjóðunum rúm-
lega 1 viku.
forhtbrúin í Skotlandi, Nílarstíflan í Egyftalandi
°g St. Gotthardsgöngin, sem alt er meistaraverk og
stórgagnleg, kostuðu samtals 150 milj. kr. Sú upp-
ljeð endist öllum hernaðarþjóðunum ekki nema 4 daga.
(107)