Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1923, Blaðsíða 26
ÍTtdráttur
íir löficum nr. 25, 27. júní 1021, um einkaleyfi handa
háskóla íslands til íítgáfu almanaks.
1. gr.
Háskóli íslands skal hafa einkarétt til þess að gefa út og selja
eða afhenda með öðrum hætti almanök og dagatöl á íslandi.
5. gr.
Pað er brot á einkarétti Háskólans samkvæmt 1. gr., ef maður:
1. Flytur inn í landið til sölu eða afhendingar með öðrum hætti
önnur almanök eða dagatöl en þau, er i 1. gr. segir.
2. Selur hér í landi eða afhendir með öðru móti önnur almanök eða
dagatöl en þau, sem einkaréttur Háskólans nær til.
3. Gefur út hér á landi á prenti eða með öðrum hætti almanök eða
dagatöl eða kafla úr þeim.
4. Prentar upp eða fjölritar almanök Háskólans eða dagaiöl eða kafla
úr þeim til þess að selja eða láta af liendi með öðrum hætti.
7. gr.
Fyrir brot samkvæmt 5. gr. skal refsa meö sektum frá 100- 2000
kr., ef það er framið af ásetningi eða gáleysi, enda liggi ekki þyngri
refsing við að öðrum lögum.
Sektir má taka fjárnámi.
Leggja skal þegar hald á rit þau, sem ólöglega hafa verið flutt
til landsins, gefm hér út eða seld eða af hendi látin samkvæmt 5. gr.,
og skal síðan gera þau upptæk með dómi.
Skaðabætur skal hver sá greiða, sem sekur verður eftir 5. gr.
Miða skal bætur, ef þvi verður við komið, við samanlagt söluverð
ólöglegra seldra eða afhentra eintaka að frádregnum hæfilegum sölu-
launum. Ella skal ákveða bætur eftir atvikum.
Hið islenzka þjóðvinafélag heíir með samningi keypt einkaleyíi
þetta um 5 ár (1923—1927), og nær það til allra almanaka í bókar-
formi. Verð liveís almanaks er samkvæmt samningnum sett á 30
aura. Peir, sem kaupa 50 eintök eða fleiri i senn, fá í afslátt 20 af
hundraði.
Árið 1924 ber páskana upp a 20. april.