Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1923, Qupperneq 135
■varúðarreglur við kirsiberjalækningar sem t. d. mjólk-
ur- eða ölkelduvatnslækningar, og ekki er pað heldur
nauðsynlegt, að menn smám saman og hægt og hægt
undirbúi sig fyrir fram til þeirra. Það er nægilegt,
að í 4—6 vikur neyti menn mikils af kirsiberjum og
hagi að öðru leyti mataræði sínu nokkuð eftir föst-
um reglum. Pað er auðvitað ekki unnt að gefa fast-
ast reglur um það, hve mikið skuli eta af kirsiberj-
um daglega, en ekki þurfa menn að vera allt of hrædd-
ir að þessu leyti, og ekki er nauðsynlegt að ætla sér
fastákveðinn skammt af þeim. Ef setja skyldi upþ
ákveðna reglu, þá mætti segja, að yíirleitt væri heppi-
legast að eta fjóra skammta á dag og í hverjum
skammti hálfpund af kirsiberjum. En ef maginn og
atvikin leyfa það, að menn eti kirsiber oftar og í
stærri skömmtum, þá er ekkert á móti þvi, ef ekki
er um of. »0f mikið og of lítið skemmir allt«, segir
orðtækið, og á það við hér. Gagnlegustu hlutir geta
verið skaðlegir, ef of mikið er að gert. Við maga-
sjúkdómum og meltingartruflun mega menn ekki
neyta fleiri kirsiberja en svo, að hægðir séu góðar
einu sinni eða tvisvar á dag; ef ímyndunarveiki er
einnig með, er þó ef til vill rétt að auka hægðirnar
(þrisvar á dag), og eins við þráláta húðsjúkdóma,
bólgu, hjarta-, lifrar- og miltiskvilla. — Meðan slík
kirsiberjalækning stendur yflr, eiga menn að forðast
allt, sem áhrif hefir í gagnstæða átt, allt, sem getur
ofboðið maganum og skemmt safana. Auðvitað verða
menn að forðast að renna niður kirsiberjasteinum. Auk
þess skulu menn forðast að eta þungt brauð og kök-
ur. Feitmeti er og óheppilegt. Hollt er að neyta nýs
kjöts af ungu, linsoðinna eggja, hveitibrauðs og nýs
grænmetis. Til drykkjar skulu menn helzt hafa vatn,
en þeir, sem vanir eru að fá sér kaffi, te eða vín í
hófi, þurfa þó ekki að breyta lil í þessu. Þar á móti
er öl ekki ráðlegt né mikið af mjólk. Ef sjúklingur-
inn hefir efni á að leggja niður vinnu, hvort sem er
(95)