Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1954, Qupperneq 31
svo að þeir, sem lifa hana af, verða ónæmir, en að
hún er viss með að blossa upp sem ægileg drepsótt,
þegar mikið berst að af fólki, sem aldrei hefur kom-
izt í kast við hana áður.
Gorgas gerði sér margar ferðir til að tala við
Walker flotaforingja, afhenti honum skriflega hverja
beiðnina eftir aðra um ýmislegt, sem liann vantaði.
Walker stakk þeim niður í skrifborðsskúffu og lét
þær aldrei fara lengra. Hann var svo sannfærður
um, að allt, sem Gorgas sagði um mýflugur og drep-
sóttir, væri ekkert annað en barnalegur heilaspuni
og hló innilega að flugnasögum hans, rétt eins og
þær væru einhver ævintýri fyrir börn. Sjálfur var
hann sannfærður um, að drepsóttirnar kæmu af sóða-
skap og engu öðru, og að þess vegna væri engin
ástæða til að leggja i mikinn kostnað til að berjast
við mýfíugur.
Ekki leið á löngu unz gula sóttin fór að gera vart
við sig og magnast og það svo, að verkamennirnir
fóru að veikjast i hrönnum. Gorgas sá, að Ameriku-
menn voru að feta háskalega i spor Frakkanna. Auk
gulu sóttarinnar bar mikið á malaria á öllu svæðinu,
og þegar þar við bættist svarti dauðinn, sem einnig
fór að gera vart við sig, var von að Gorgas væri
óánægður með ástandið. Hann vissi vel, að hann gæti
haldið öllum þessum pestum niðri, ef hann fengi að
róða, en hann komst ekkert áfram fyrir fáfróðum og
skilningslausum yfirmönnum sínum. Þeir skáru nið-
ur laun starfsmanna, svo að Gorgas gat ekki fengið
þá menn, sem liann vildi, og varð að láta sér nægja
viðvaninga, þar sem hann þurfti reynda menn, og á
öllum sviðum voru þeir lionum til trafala, töfðu og
hindruðu nauðsynlegar framkvæmdir til að vernda
heilsu fólksins, ekki af neinum illvilja, heldur af
skilningsleysi hins fáfróða manns, sem fyrir aðgerðir
jafningja sinna hefur komizt i háa stöðu. Hann fékk
ekki að panta lyf og læknavörur beint frá Ameríku,
(29)