Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1955, Blaðsíða 26
ÚR LÖGUM UM TÍMATAL OG ALMÁNÖK.
Samkvæmt lðgum um ákvörðun tíman9 16. nóv. 1907 skal hvarvetna á
íslandi telja tímann eftir miðtíma á 15. lengdarstigi fyrir vestan Greenwich.
/ almanaki bessu eru því allar stundir taldar eftir þessum svonefnda íslenzka
miðtíma, 27 mínútum 43,2 sekúndum á undan miðtíma Revkjavíkur.
Með lögum nr 8, 16. febr. 1917, er ríkisstjórninni heimilað að flyta klukk-
unni, ef það þykir henta (»sumartími«), og verður, ef það er gert, að sjálfsögðu
að taka tillit til þess við notkun almanaksins.
í lögum nr. 25, 27. júní 1921, segir m. a. svo:
1. gr.
Háskóli fslands skal hafa einkarétt til þess að gefa út og selja eða af-
henda með öðrum hætti almanök og dagatöl á íslandi.
5. gr.
Það er brot á einkarétti háskólans samkvæmt 1. gr., ef maður:
1. Flytur inn í landið lil sölu eða afhendingar með öðrum hætti önnur almanök
eða daoatöl en þau, er í l. gr. segir.
2. Selur hér í landi eða afhendir með öðru móti önnur almanök eða dagatöl
en þau, sem einkaréttur háskólans nær til.
3. Gefur út hér á landi á prenti eða með öðrum hætti almanök eða dagatöl
eða kafla úr þeim
4. Prentar upp eða fjölritar almanök háskólans eða dagatöl eða kafla úr þeim
til þess aö selja eða láta af hendi með öðrum hætti.
Hið íslenzka þjóðvinafélag hefur með samningi keypt einkaleyfi þetta í ár
(1955), og nær það til allra almanaka í bókarformi.
Árið 1956 ber páskana upp á 1. apríl.
(24)