Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1951, Side 27
Albert Schweitzer,
Albert Schweitzer fæddist 14. janúar 1875 i smábæ
'einum í Elsass. Faðir hans var prestur við mótmæl-
endakirkju þar, trúaður maður og skyldurækinn og
hvers manns hugljúfi; móðir hans var gáfuð kona
og góð. Lífið lék við Albert á bernskuárum hans og
þroskaárum. Heimili hans og sambúðin við foreldra
hans var svo sem bezt mátti á kjósa, hann naut til-
sagnar ágætra kennara og fékk svalað þekkingar-
þorsta sinum, sem var mikill og beindist að mörgu,
en þó einkum að heimspeki og skyldum fræðum.
En umfram allt hneig'ðist hugur hans samt að tón-
list; fékk hann þar og hina beztu tilsögn þegar í
bernsku og náði þar snemma ótrúlegum þroska.
Hannig fór liann að leika á organ i sóknarkirkju
föður sins, er hann var 9 ára gamall, og 16 ára gam-
all lék hann á organ i forföllum kennara síns á hljóm-
leik einum. „Þá naut ég i fyrsta sinn þess unaðar,
sem mér liefur oft veitzt siðan, að sökkva tónafyll-
ingu organsins i tónahafið frá liljómsveitinni og
söngflokknum,“ segir hann i „Endurminningum frá
bernsku og æsku“. Þegar liann var 18 ára, fór hann
til Parisar til að afla sér enn meiri þroska í organ-
leik og naut þar handleiðslu Widors, er var víð-
kunnur organleikari og tónskáld um þær mundir.
Dvaldi liann þar 1—2 mánuði árlega mörg næstu
ár, og sagðist kennari hans hafa lært meira af hon-
um en hann af sér, þvi að hann hefði kennt sér að
meta hljómlist Bachs til fulls, en áður kvaðst hann
lítið hafa botnað í kirkjutónlist hans. „Hjá honum
kynntist ég i fyrsta sinn hliðum á tónlist Bachs, sem
fjarri fór, að mig hefði áður órað fyrir,“ ritaði hann
síðar. Og um bók þá, er Schweitzer ritaði um Jóhann
Sebastian Bach, sagði Widor, að sá er læsi þá bók,
kynntist eigi aðeins tónskáldinu og verkum hans,
(25)
h
-