Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1951, Qupperneq 131
Nokkur orð til félagsmanna.
Á þessu ári fá félagsmenn 5 bækur fyrir árgjald sitt:
1. Svíþjóð eftir Jón Magnússon fréttastjóra Ríkisútvarps-
ins. Þetta er annað bindið í bókaflokknum „Lönd og
lýðir.“ Virðist þessi bókaflokkur njóta mikilla vinsælda.
2. Ævintýri Pickwicks eftir Charles Dickens. Stytt útgáfa.
Bogi Ólafsson yfirkennari valdi og íslenzkaði. Ágætar
teikningar prýða þessa gamansömu söguþætti.
3. Ljóð og sögur eftir Jón Thoroddsen, með formála eftir
Steingrím J. Þorsteinsson háskólakennara. Þetta er
niunda bókin í flokknum „íslenzk úrvalsrit“. — Bóka-
flokkur þessi hefur orðið þvi vinsælli sem fleiri bindi
hafa komið út. Óhætt mun lílca að segja, að útgáfa
þessara handhægu bóka glæði áhuga manna á lestri fag-
urra Ijóða, ekki sízt þeirra, sem skortir fjárráð og tíma
til að eignast og lesa heildarútgáfur rita þessara slcálda.
4. Andvari, 75. árgangur.
5. Almanak Hins íslenzka Þjóðvinafélags um árið 1951.
Félagsgjaldið 1950 er 36 kr., eða 6 kr. hærra en undan-
fariu ár. Vegna hins gífurlega aukna útgáfukostnaðar hefði
þurft að hæklca gjaldið um 10 kr. Að því ráði var þó ekki
horfið. Útgáfan vill enn sem fyrr gera það, sem unnt er,
til að gera viðskiptavinum sínum fært að fá mikið og gott
lesefni fyrir lítið gjald. Hún efast því ekki um, að fé-
lagsmenn taki þessari hlutfallslega litlu hækkun með skiln-
ingi og velvild. — Enn er þess að gæta, að félagsbækurnar
eru allmiklu stærri að arkartölu nú en s. 1. ár. Bandið hækk-
ar líka aðeins um eina krónu samanlagt á þeim félags-
bókum, sem fást í bandi. Nemur sú hækkun ekki nema
litlum hluta þeirrar aukningar, sem orðið hefur á bók-
bandskostnaðinum frá því s. 1. ár.
Auk hinna föstu félagsbóka liefur útgáfan látið prenta
á þessu ári eftirtaldar bækur: Sögu íslendinga, VII. bindi,
Búvélar og ræktun, Haralds sögu harðráða og Magnúsar
sögu berfætts, og nú síðast ræðu- og erindasafn dr. Rögn-
%ralds Péturssonar, sem nefnist Fögur er foldin. — Félags-
menn eru hér með hvattir til þess að kaupa þessar og aðrar
aukabækur útgáfunnar. Með því styrkja þeir sitt eigið
bókmenntafélag um leið og þeir bæta góðum ritum í heim-
ilisbókasafn sitt.
Þessi sameiginlega bókaútgáfa Þjóðvinafélagsins og
Menningarsjóðs hefur á þessu ári starfað í 10 ár. Útgáfan
þakkar hér með öllum viðskiptamönnum sínum, bæði fé-
lagsmönnum og umboðsmönnum, samstarf liðinna ára og
væntir framvegis sem áður farsælla viðskipta og ánægju-
legrar samvinnu.