Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1978, Blaðsíða 72
Reikistjörnumar (frh.)
Lengd dagsins í jarðneskum dögum: Merkúríus 176 (meðaltal).
Venus 117. Jörðin 1,00. Mars 1,03. Júpíter 0,41 (við miðbaug).
Satúrnus 0,43 (við miðbaug). Úranus 0,45. Neptúnus 0,66. Plútó 6,4.
Fjöldi tungla: Merkúríus 0. Venus 0. Jörðin 1. Mars 2. Júpíter 14.
Satúmus 10. Úranus 5. Neptúnus 2. Plútó 0.
Vetrarbrautarkerfið.
Breidd: 100 þúsund Ijósár (1 ljósár = 9,5 milljón milljón km).
Fjarlægð sólax frá miðju vetrarbrautarinnar: 30 þúsund ljósár.
Brautarhraði sólar um miðju vetrarbrautarinnar: 250 km/s.
Umferðartími sólar um miðju vetrarbrautarinnar: 200 milljón ár.
Meðalfjarlægð milli stjarna í vetrarbrautinni: 5 ljósár.
Fjöldi stjama í vetrarbrautinni: hundrað þúsund milljónir.
Alheimurinn.
Meðalfjarlægð milii vetrarbrauta: 5 milijón ljósár.
Útþensla alheimsins: 17 km/s fyrir hver milljón ljósár.
Fjarlægðin til endimarka hins sýnilega heims: 15 þús. milljón ljósár.
Fjöldi vetrarbrauta í hinum sýnilega heimi: hundrað þúsund
milljónir.
Aldur alheimsins: 15 þúsund milljón ár.
BIRTUFLOKKUN STJARNA
Þeim fastastjörnum sem sýnilegar eru berum augum var að fornu
skipt í sex flokka eftir birtu. Björtustu stjörnurnar töldust í 1. flokki
en þær daufustu í 6. flokki. í nútíma stjörnufræði er þessi hugmynd
lögð til grundvallar en birtustigin skilgreind með nákvæmni eftir
mældum ljósstyrk. 1. stigs stjarna er sem næst 2,5 sinnum bjartari
en 2. stigs stjama, sem er aftur 2,5 sinnum bjartari en 3. stigs stjarna,
o.s.frv. Til að tákna millistig eru notaðar brotatölur, t.d. 1,5 eða
2,7. Samræmis vegna hefur orðið að gefa nokkrum björtustu stjörn-
unum stigatölur sem eru lægri en 1, jafnvel lægri en 0 (mínusstig).
Hærri stigatölur en 6 eru hins vegar notaðar um stjörnur sem eru
svo daufar að þær sjást aðeins í sjónauka.
Fjöldi fastastjarna í mismunandi flokkum er u.þ.b. þessi:
Birtustig: —1 01 23456.
Fjöldi stjarna: 2 7 13 69 190 600 1800 5400
Tiigreint birtustig miðast ávallt við að stjarnan sé beint yfir
athuganda. Sé hún lægra á lofti, deyfist Ijósið vegna þess að það
þarf að fara lengri Ieið gegnum gufuhvolf jarðar. Deyfingin er all-
breytileg en nemur á að giska 0,1 birtustigi þegar stjarnan er í 45°
hæð. 1 stigi við 10° hæð, 2 stigum við 4° hæð, 3 stigum við 2° hæð,
4 stigum við 1° hæð og 6 stigum við sjónbaug.
(70)