Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1978, Blaðsíða 76
MÆLIEININGAR
í eftirfarandi yfirliti eru einingar hins alþjóðlega einingakerfis (SI)
auðkenndar með feitu letri. Undir- ogyfireiningar kerfisins eru mynd-
aðar með forskeytum, sbr. töfluna á bls. 79. Br. táknar breskar
einingar og U.S. bandarískar. Fullkomnar jafngildistölur eru ská-
letraðar. 102 = 100, 103 = 1000 o.s.frv. 10~2 = 1/100, 10"3 =
1/1000 o.s.frv.
Lengd.
1 metri (m) = 1 650 763,73 öldulengdir ljóss af sérstökum rauðleitum
lit, sem einkennir lofttegundina krypton 86, eina af samsætum
frumefnisins krypton. Þessi skilgreining gekk í gildi 1960.
1 þumlungur, tomma (inch, in, Br. og U.S.) = 2,54 cm.
1 fet (Br. og U.S.) = 12 þumlungar = 30,48 cm.
1 míla (Br. og U.S.) = 1,609 344 km.
1 sjómíla (alþjóðleg) = 1852 m. Sjómílan samsvarar nokkum veginn
1 mínútu breiddar á yfirborði jarðar. Breiddarmínútan er um
1843 m við miðbaug en 1862 m við heimskaut.
1 stjamfræðieining (staðalgildi) = 1,495 978 70 • 1011 m. Stjarnfræði-
einingin er meðalfjarlægðin milli jarðar og sólar.
1 ljósár = 9,461 • 1015 m = 63 240 stjamfræðieiningar.
1 parsek (pc) = 3,086 ■ 1016 m = 206 265 stjamfræðieiningar =
hí 3,26 ljósár.
1 míkron (p) = 10~6 m. Heppilegra nafn: míkrómetri (pm).|
l Ángström (Á) = 10~10 m.
Öldulengd sýnilegs ljóss = 4 ■ 10-7 m — 8 • 10-7 m.
Þvermál atóms = um 10~10 m.
Þvermál atómkjama = 10‘14 m — 10-15 m.
Flatarmál.
1 fermetri (m2) = flatarmál fernings sem er 1 m á hvorn'veg. í einum
fermetra eru tíu þúsund fersentimetrar (cm2).
1 hektari (ha) = 10 000 m2.
1 ferkílómetri (km2) = 100 hektarar = 106 m2.
1 ekra (Br. og U.S.) = 0,4047 hektarar = 4047 m2.
Rúmmál.
1 rúmmetri (m3) = rúmmál tenings sem er 1 metri á hvern veg. I
einum rúmmetra eru þúsund rúmdesimetrar (dm3) eða milljón
rúmsentimetrar (cm3).
1 lítri (1) = 1 dm3 = 1000 cm3 (millilítrar, ml). Þessi skilgreining
gekk í gildi 1964. Samkvæmt eldri skilgreiningu var lítrinn
1,000 028 dm3. Til þess að forðast misskilning skal því ekki nota
litramálið þegar rúmtak er tilgreint með mjög mikilli nákvæmni.
1 pottur = um 1 lítri.
1 mörk = 1/2 lítri.
1 peli = um 1/4 úr lítra.
(74)