Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1978, Blaðsíða 80
Afl.
1 vatt (W) = það afl sem skilar vinnunni 1 júl á hverri sek. W = J/s.
1 kílógramm(kraft)-metri á sekúndu (kgm/s) = 9,806 65 W.
1 hestafl (metrakerfishestafl) = 75 kgm/s = 735,5 W.
1 hestafl (Br. og U.S.) = 745,7 W
1 hestafl (rafvélahestafl, Br. ogvU.S.) = 746 W.
Rafstraumur.
1 amper (A) = sá straumur sem þyrfti að vera í óendanlega löngum,
örmjóum beinum vír, til þess að hann verkaði á hvem lengdar-
metra af öðrum straumi jafnmiklum í sams konar vír samsíða
hinum í 1 metra fjarlægð í tómu rúmi með kraftinum 2 • 10"7
njúton, þegar báðir straumarnir em stöðugir.
Rafspenna.
1 volt (V) = spennumunurinn milli tveggja staða í leiðara sem 1
ampers jafnstraumur fer um, þegar orkutapið milli staðanna
er 1 vatt. V = W/A.
Rafviðnám.
1 óm (ohm, Cí) = viðnámið milli tveggja staða í leiðara ef spennu-
munurinn 1 volt milli staðanna skapar strauminn 1 amper þar,
þegar svo háttar til, að engin íspenna myndast í leiðaranum
sjálfum. 0 = V/A = W/A2.
Viðnám í 1 m af koparvír, 1 mm2 í þverskurð, við 0°C = 0,016 H.
Rafhleðsla.
1 kúlomb (coulomb, C) = rafhleðslan sem straumurinn 1 amper
flytur framhjá hverjum stað í leiðara á hverri sek. C = A • s.
1 amper-stund (Ah) = 3600 kúlomb.
1 rafeindarhleðsla = 1,60 • 10"19 kúlomb.
Rafrýmd.
1 farad (F) = rýmd þéttis sem þarf hleðsluna 1 kúlomb (á hvort
skaut) til að spennumunurinn milli skautanna verði 1 volt.
F = C • V.
Segulstyrkur.
1 tesla (T) = segulstyrkurinn homrétt á beinan vír sem straumurinn
1 amper fer um, þegar krafturinn frá segulsviðinu er alls staðar
jafn og nemur 1 njúton á hvem metra vírsins. T = N/(A • m).
1 gauss (G) = 10~* tesla.
1 gamma (y) = 10~s gauss = 10~9 tesla.
Styrkur jarðsegulsviðsins á íslandi = um 5 • 10-5 tesla.
Segulflæði.
1 veber (weber, Wb) = það segulflæði sem liggur gegnum 1 fermetra
flatar þegar segulstyrkurinn hornrétt á flötinn er alls staðar 1
tesla. Wb = T ■ m2 = N • m/A.
(78)
J