Jólagjöfin - 24.12.1917, Page 13

Jólagjöfin - 24.12.1917, Page 13
JÓLAGJÖFIN 11 alla æfi föstum á vegi dygSar og heiðurs. Guð veri með þér!“ Borgarstjórinn gekk á braut, hljóðfæraflokkurinn tók að leika, og öllu virtist lokið, en þá skiftist brunaliðið tilbeggja handa og í bilinu er á varð, kom fram drenghnokki, 8 eða 9 ára; var honum ýtt fram af konu nokkurri, sem svo dró sig i hlé, en drengurinn flýtti sér til hans sem hlotið hafði heið- urspeninginn og kastaði sér i faðminn á honum. Þá hófust að nýju fagnaðaróp og dunandi lófaklapp, svo undir tók i hallargarðinum; allir höfðu þegar í stað skilið, að þar væri kominn drengurinn, sem bjargað hafði verið úr Pó, og væri nú kominn til þess að þakka lífgjafa símim. Eftii að liann hafði kyst hann, tók hann arm hans til þess að fylgjast með honum út. Þeir leiddust á undan, en for- eldrarnir gengu á eflir þeim. Gengu þau nú og stefndu á útgönguhliðið og áttu örðugt með að komast gegnum troðn- inginn. En fólkið þokaði sér til hliðar fyrir þeim og gaf þeim gangrúm, lögreglumenn, drengir, hermenn og hefðar- konur, alt í einum glundroða. Allir teygðu sig fram og tyltu sér á tá til þess að sjá drenginn. Þeir sem næstir stóðu, réttu honum hendina; þegar hann kom fram hjá skólapilta- hópnum, þá véifuðu þeir húfum sínum lil samfagnaðar. Drengirnir frá Póborg hófu mikil fagnaðarlæti, tóku í hand- leggi hans eða treyjuna og hrópuðu: Pinn, lifi Pinn, bravó, Pinot! Eg sá hann er hann gekk fram hjá, mjög nálægt mér. Hann var blóðrjóður í framan, en glaður i bragði. Heiðurs- peningurinn hékk i rauðum, hvítum og grænum silkiborða. Móðir hans tárfeldi og brosti í senn. Faðir hans var i ákefð að snúa upp á yfirskeggið með annari hendinni; hann var skjálfhendur eins og hefði hann riðusótt. Uppi i gluggunum og á svölunum hélt fólkið áfram að teygja sig fram og klappa. Alt i einu, þegar þau voru að því komin að ganga inn i bogagöngin, kom ofan af svölunum þar sem „Her- mannadæturnar“ voru, regluleg skúr af gæsablómum, fjól- um og stjúpmóðurblómum; hrundu blómin yfir höfuðið á drengnum og foreldrum hans og féllu niður í kringum þau.

x

Jólagjöfin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólagjöfin
https://timarit.is/publication/872

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.