Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2005, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005
Helgarblað DV
amsárás áttu
Brynjúlfur Jónatans-
son Fyrsti leigjandinn /
íbúð Braga eftir að hann
var myrtur þar. Segist
ekki hafa fundið fyri
slæmum straumum.
ser stað mnan
veggja þess en í
dag hefur húsið
fengið andlits-
lyftingu sem
verður vonandi
til þess að
orðstír þess
breytist til
batnaðar.
kviðarhol og blæddi þar inn. Alger
hending þótti að Kristján varð afa
sínum ekki að bana með þessari
árás en hún var tahn sérstaklega
hrottafengin og miskunnarlaus og
þótti ljóst að hann hefði ætíað
honum dauða.
Sá óhugnanlegi atburður átti
sér stað 26. desember árið 1997 að
ungur piltur, Kristján Bragi Vals-
son, veittist að afa sínum, Braga
Ólafssyni, að því er virtist að til-
efnislausu á heimili Braga við
Klapparstíg 11. Hann stakk hann
mörgum stungum með tveimur
hnífum og skærum í líkama og
höfuð svo að af hlutust fjöldamörg
sár í andlit, handleggi, bak, háls,
brjóst og kvið og náði sár á hálsi
inn að barka, sár á brjósti inn í
hægra bijósthol inn á lunga og
komst loft inn
íbrjóstholið
og sár á
kviði
náði
inn í
Fimm ára fangelsi
Kristján var undir áhrifum
áfengis og blöndu af róandi lyfjum
og sömu sögu var af Braga að
segja. Kristján hafði sér ekkert til
málsbóta annað en það að hann
hefði „flippað út" og mundi sama
og ekkert eftír árásinni, mundi
bara að hann hafði reiðst af ein-
hverju tilefni. Hann átti einnig yfir
höfði sér kæru fyrir tvær aðrar lflc-
amsárásir en stuttu áður hafði
hann sparkað í liggjandi mann í
Austurstræti og ráðist á leigubfl-
stjóra sem krafði hann um gjald
fyrir akstur. Hann var dæmdur í 5
ára fangelsi í maí árið 1998 fyrir
þessi brot auk tveggja innbrota á
veitingastað í Reykjavík. Áður
hafði hann hlotið sjö refsidóma
fyrir umferðarlagabrot, skemmd-
arverk, nytjastuld, auðgunarbrot
og líkamsárásir. Hann var talinn
fullkomlega sakhæfur.
Missti móður vofeiflega
Kristján hefur átt mjög erfitt
uppdráttar eftir að hann losnaði
úr fangelsinu. Hann hefur ekki
komist alvarlega í kast við
hann losnaði úr fangavistinni en
hann á við áfengisvandamál að
stríða. Drengurinn átti erfiða
æsku en móðir hans lést vofeiflega
þegar hann var barn að aldri og
ólst Kristján upp hjá ættingjum.
Hann átti erfið unglingsár og fór
ungur að drekka mjög illa. Þennan
örlagarflca annan dag jóla, þegar
hann réðst að afa sínum, mun
hann hafa misst stjórn á sér vegna
stúlku sem hann var með í heim-
sókn hjá afa sínum. Bragi mun
ekki hafa verið sinkur á dóp við
hana og fór það illa í Kristján með
þessum afdrifarflcu afleiðingum.
Langur drykkjutúr
Málið var flóknara en virtíst við
fyrstu sýn því Bragi sjálfur hafði
Eifplánað dóm fyrir að hengja eig-
inkonu sína, Grétu Birgisdóttur,
sem var 26 ára þegar morðið átti
sér stað en Bragi 51 árs. Þau voru
barnlaus en Bragi átti tvö börn frá
fyrra sambandi.
Hjónin höfðu verið gift í þrjú ár
en samlíf þeirra, að sögn kunn-
ugra, var gott fyrir utan þegar þau
fóru á sína alræmdu drykkjutúra
en það var á einum slíkum sem
voðaverkið var framið. Þetta gerð-
ist stuttu eftir áramót 1988 en þá
höfðu skötuhjúin verið á drykkju-
túr síðan á Þorláksmessu og ekki
sofið í fjölda sólarhringa.
Sagði morðið vera slys
Gréta hafði iðulega kvartað
undan ofbeldishneigð manns síns
eftir þessa túra og
oft var lflcami
hennar alsettur
brunasárum,
mari og
fleiðrum.
Bragi
sagðist í
síðan
Nytt hús Húsið hefur tekið
miklum breytingum. Friðbert
Friðbertsson hafði veg og
vanda afútlitsbreytingunum.
Hann sagðist hafa merkt óhug
hjá Ibúum hússins þegar end-
urbæturnar voru gerðar.
þessu tilfelli fyrir dómi hafa verið
að veijast því að Gréta klipi í
punginn á honum eins og hún átti
víst til að gera þegar þau slógust.
Brá hann á það ráð að binda reipi
um háls hennar og herti að svo
hún lést skömmu seinna en hann
sofnaði áður en hún gaf endan-
lega upp öndina. Þegar hann
vaknaði var konan látin. Fyrir
dómi sagði hann morðið hafa ver-
ið slys en ekki einlægan áseming.
Þrátt fyrir það hafði hann ekki
kállað á sjúkrabíl eða lögreglu
heldur klárað úr heilli flösku af
áfengi fyrst.
í júm' árið 1988 var Bragi
dæmdur í átta ára fangelsi fyrir
morðið á Grétu.
Gerði málin upp við afa sinn
Kristján, sonarsonur Braga
sem lagði til hans og stórskaðaði,
heimsótti afa sinn síðar og gerðu
þeir upp sín mál og Bragi mun
hafa fyrirgefið honum. Kristjáni er
borin vel sagan. Hann sé afskap-
ifur piltur og í honum sé
illt til - fyrr en hann neytir
áfengis en það fer afar illa í hann.
Hann sé einn þeirra sem alls ekki
eigi að drekka. Hann hefur stað-
ið í barátm við Bakkus undan-
farin ár og er edrú í dag. Faðir
hans, Valur Bragason, er sann-
færður um að sonur hans eigi
eftir að ná sér og spjara sig vel í
h'finu. „Það er svo gott upplag í
honum," segir hann.
Sagði nafn morðingja síns
Ekki er sorgarsagan af Klappar-
stígnum öll því árið 2002 var Bragi
myrtur í sömu íbúð og hann hafði
hengt konu sína í og afabarn hans
hafði veist að honum. Að kvöldi
26. september var lögreglan köll-
uð út að íbúð Braga og hafði Bragi
þá verið stunginn. Hann náði að
gera nágrönnum viðvart og köll-
uðu þeir á lögregluna. Hann var
með lífsmarki þegar lögreglan
kom á staðinn en lést skömmu
síðar af sárum sínum en hafði þá
náð að stynja upp nafni bana-
manns síns. Hann var þá á bak og
burt, en svæðið í kring var girt af
og upphófst mikil leit að hugsan-
legu morðvopni og manninum
sjálfum. Lögreglan varðist frétta af
málinu en skömmu seinna barst
sú tilkynning að ódæðismaðurinn
hefði náðst.
Geðsjúkur með langan
afbrotaferil
í ljós kom að maðurinn, sem
var 35 ára, var á reynslulausn úr
fangelsi. Geðrannsóknar var kraf-
ist og út úr henni kom að maður-
inn var með geðklofa með of-
sóknarívafi. Þessi ógæfumaður átti
að baki langan brotaferil. Árið
1993 var hann dæmdur fyrir inn-
flutning á töluverðu magni af
kókaíni sem hann hafði hugsað sér
að selja hérlendis. Hann var tekinn
með efnið eftir flótta undan lög-
reglunni sem endaði á því að hann
keyrði á lögreglubfl og tveir lög-
reglumenn sem voru í bifreiðinni
slösuðust, þar af annar alvarlega.
Þrátt fyrir að geðrannsóknin
sýndi fram á að hann gekk ekki
heill til skógar var hann dæmdur
til sjö ára fangelsisvistar.
Bragi þekktur meðal
dópistanna
Bragi var þekktur meðal