Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.02.1952, Qupperneq 29

Freyr - 15.02.1952, Qupperneq 29
FREYR 75 En bæklingurinn sýnir þó sæmilega vel hvaS það var, sem gerðist. Athugum stuðl- uðu línuritin á bls. 26. Mjólkurbú nr. 1 er Mjólkurbú Flóamanna, nr. 2 er Mjólkur- samlag Hafnarfjarðar, sem búið er að leggja niður, og nr. 3 er Mjólkurstöðin í Reykjavík. Þar sést, að á árinu 1947 batn- ar mjólkin nokkuð bæði hjá M.B.F. og M.S.R., en á árinu 1948 batnar hún mjög mikið og svo jafnt og hægt úr því. Bæði þessi mjólkurbú tóku í notkun nýjar vélar á árinu 1947, en ekki var það svo snemma ársins, að áhrifanna gætti veru- lega, fyrr en 1948, en þá kom árangurinn í ljós, eins og línuritin sýna. Þrátt fyrir þetta stendur á blaðsíðu 18 í bæklingnum: „Hins vegar er það augljóst mál, að engar vélar í mjólkurbúunum geta haft áhrif á gæði ihnvegnu mjólkurinnar.“ — En þegar ar vélar eru orðnar jafn lélegar og af- kastalitlar og þær voru í þessum tveimur mjólkurbúum, sem hér er rætt um, valda þær því, að haga verður flutningum mjólk- urinnar eftir hentugleikum vélanna en ekki framleiðendanna. Mjólkin stendur þá misjafnlega lengi og bíður síns tíma, annaðhvort í mjólkurbúinu eða við það, við vegina eða heima hjá bændum við misjöfn skilyrði. Þannig á mjólkurbúið sinn þátt í mjólkurskemmdunum, og get- ur illa beitt sér við þær ströngu refsingar, sem nauðsynlegt er að leggja á þá bænd- ur, sem lélega mjólk framleiða. En þegar nýjar vélar eru komnar, og búið er að lag- færa flutningana, taka ráðstafanir mjólk- urbúanna, til að bæta mjólkina, að gera gagn. Hverfum aftur að línuritunum. Mjólk- urbú nr. 4 er Mjólkursamlag Kaupfélags Borgfirðinga, nr. 5 Mjólkursamlag Kaup- félags Skagfirðinga og nr. 6 Mjólkursam- lag K.E.A. Samlagið í Borgarnesi fékk nýjar vélar árið 1948, en þetta samlag lagfærir ekki flutninga hjá sér þá strax, þar eð erfitt var þá talið að framkvæma það. Þarna sýnir því línuritið ekki eins mikinn ár- angur og hjá M.B.F. og M.S.R. En nú hefir flutningunum verið kippt í lag, og árang- urinn er að koma í ljós. Mjólkursamlagið á Sauðárkróki fékk ekki á þessum árum nýjar vélar, svo að neinu næmi, þar eð þar var verið að byggja nýtt samlag, sem nýlega er tekið til starfa. Línuritið svarar alveg til þessa. Mjólkursamlag K.E.A. var nýbyggt og með nýjar vélar, þegar stríðið hófst. Þar voru því aldrei fyrir hendi nein vandræði vegna ófullnægjandi véla og húsa, svipuð þeim, sem hin mjólkurbúin áttu við að stríða. Línurit þess sýnir líka, að ástand- ið hefir verið þar allgott öll árin, og að þróunin hefir verið hæg en markviss. Þetta er það, sem línuritin sýna og sanna, en hvers vegna er þessum aug- ljósu staðreyndum neitað í bæklingnum? Hver vill svara því? Að vísu væri rangt að þakka nýjum vél- um og aðgerðum mjólkurbúanna allar þess- ar framfarir. Þar kemur fleira til greina. Bættir vegir, betri bílar og ekki sízt bætt- ur efnahagur framleiðendanna, og vegna þess betri áhöld, svo sem mjaltavélar, vatnsleiðslur, ný fjós og ýmiskonar bætt aðstaða, meiri bjartsýni og stórhugur. Ým- islegt af þessu tagi hefir hlotnazt mörgum framleiðendum, en þetta eru framfarir á borð við þær, sem hlotnazt hafa þjóð- inni allri á þessum árum. ★ Víkjum svo að því, sem í bæklingnum er nefnt „nákvæm athugun" og niðurstöð- um þeirra athugana. Á bls. 7 er sagt, að þesskonar athuganir hafi verið gerðar hjá 23 verstu og 23 beztu framleiðendunum, og að þær hafi verið gerðar sumarið 1950, eða í lok tímabilsins, sem fjallað er um. Eru nú ekki 46 af 2800 heldur fáir, til að byggja á niðurstöður, sem varða málefni heildarinnar og kenningar, sem standast eiga gagnrýni? Og auðvitað er það rugl að tala um 23 þá verstu og beztu. í báð- um þessum hópum eru miklu fleiri fram- leiðendur, sem svo líkt er ástatt um, að ekki verður gert upp á milli þeirra. Og varla er hægt að kalla það nákvæma at- hugun, þegar komið er í eitt skipti í heim- sókn, einhvern tíma dagsins og dvalið til- tölulega stutt. Liklegt má telja, að margir

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.