Ægir - 01.01.2002, Side 27
27
sumir af okkar viðskiptavinum fundið út að aðrir
seljendur geti gert ákveðna hluti betur en við á til-
teknum „hillumörkuðum“. En á móti erum við að
gera jafnvel enn betur en áður á okkar helstu mörk-
uðum fyrir frystar afurðir, Það er alveg ljóst að sá
gamli grunnur sem við byggjum á, þ.e.a.s. þekkt
vörumerki á okkar helstu viðskiptamörkuðum, er
okkar helsti styrkleiki. Veikleiki fyrirtækisins er
hins vegar sá að á heimsvísu er það lítið.“
Flest sár hafa gróið
- Líturðu svo á að nú sé góð sátt um starf-
semi Sölumiðstöðvarinnar?
„Já, ég lít svo á. En til allrar guðs lukku eru
samt gagnrýnisraddir. Það væri lítið gaman ef allir
væru sammála og þetta væri ein allsherjar hallelúja-
samkoma. Það er ekkert nema sjálfsagt að fá ein-
hverja gagnrýni frá samstarfsaðilum og viðskiptavin-
um.“
- Nú tókust menn harkalega á í kringum for-
mannskjörið fyrir um þremur árum. Er nokkur von
til þess að öll sár grói eftir slíkan slag?
„Hjá flestum hafa sár gróið, en það er alveg ljóst
að þessi uppstokkun kann að hafa sært einstaklinga
sem ekki áttu það skilið.“
- Telurðu eftir á að hyggja að sú stefna sem þú
lagðir upp með í kosningaslaginn forðum hafi náð
fram að ganga og að hún hafi verið rétt?
„Já, ég er ekki í nokkrum vafa um það. Óskastað-
an hefði verið sú að þessar breytingar á starfsemi
Sölumiðstöðvarinnar hefðu náð fram að ganga án
þeirrar uppákomu sem varð fyrir þremur árum. En
um það náðist ekki samkomulag á sínum tíma og
því kom til þessarar uppstokkunar.“
Alltaf einhverjar þreifingar í gangi
Róbert telur að Sölumiðstöðin muni taka
töluverðum breytingum á næstu árum, í
takt við sífelldar breytingar á mörkuðum er-
lendis og breytta heimsmynd. „Við erum með mark-
aðseiningar út um allan heim, sem er okkar styrkur
og drifkraftur. Við höfum verið að taka æ stærri
hluta af okkar sölu úr afurðum annars staðar frá en
Íslandi sem er mikilvægt til þess að efla fyrirtækið.
Til dæmis seljum við verulegt magn sjávarafurða frá
Suður-Ameríku, Afríku og Rússlandi, svo dæmi sé
tekið. Ég get nefnt að ekki nema um helmingur
veltu dótturfélags SH á Spáni kemur af sölu sjávaraf-
urða frá Íslandi.
Ég sé Sölumiðstöðina halda áfram að vaxa. Það
mun gerast annars vegar með því að taka í auknum
mæli inn í okkar sölukerfi afurðir frá öðrum löndum
en Íslandi og hins vegar með sameiningum fyrir-
tækja erlendis.“
- Sérðu fyrir þér þann möguleika að Sölumiðstöðin
sameinist erlendu markaðsfyrirtæki?
„Ekki kannski sjálf Sölumiðstöðin, en sú staða
gæti vissulega komið upp að hagkvæmt sé að sam-
eina einhver dótturfyrirtæki SH öðrum fyrirtækjum
eða þá að slík fyrirtæki yrðu keypt og einingarnar
þannig stækkaðar og efldar.“
- Er eitthvað í þessa veru í deiglunni um þessar
mundir?
„Nei, ekki eins og er. En menn eru sífellt að þreifa
á ýmsum möguleikum. Menn eiga alltaf að vera að
skoða hlutina, en það er ekkert fast í hendi sem
stendur.“
Með mörg járn í eldinum
“Auk stjórnarformennsku í SH er ég stjórn-
arformaður Þormóðs ramma-Sæbergs og
Primex-Genís, sem er með starfsemi á
Siglufirði, Reykjavík og í Noregi. Sömuleiðis hef ég
Þeir sem starfa í sjávarútveginum verða
alltaf að horfa fram á veginn og taka
ákvarðanir um framtíðina. Ef það er ekki
gert, daga menn uppi í síbreytilegu
umhverfi.
Róbert Guðfinnsson, stjórnarformaður Þormóðs ramma-Sæbergs hf.
og Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna.