Ægir - 01.01.2002, Side 38
Eins og hjá mörgum öðrum var
það ástin sem breytti lífskúrsin-
um hjá Jóhanni Sigurjónssyni
þegar hann var 24 ára gamall og
nýútskrifaður úr Vélskóla Íslands.
Hann hafði sannarlega ætlað sér
að halda áfram á sjónum á Ís-
landsmiðum, en skyndilega var
tekin hundrað og áttatíu gráðu
beygja og stefnan tekin vestur til
Bandaríkjanna til fundar við
kærustuna sem hann hitti í út-
skriftarferðinni með samnemend-
um úr Vélskólanum. „Fyrsta vet-
urinn bjuggum við í Chicago, en
ég komst fljótlega að því að þar
gæti ég ekki þrifist vegna þess að
sjóinn vantaði og það sem verra
var að þar komst ég ekki á skíði.
Konan mín var að ljúka námi í
rafmagnsverkfræði og hún var
ekki tilbúin að flytja með mér
heim til Íslands. Niðurstaðan var
því sú að við fluttum til Seattle á
vesturströnd Bandaríkjanna, þar
sem við búum enn. Ég hafði
fengið nafn á íslenskum manni í
Seattle, Pétur Njarðvík, sem
gerði þar út togarana Ocean and
Aleutian Bounty og með það nafn
í vasanum fluttum við til Seattle.
Ég fékk skipspláss sem yfirvél-
stjóri hjá Pétri í tæp tvö ár og á
þeim tíma vorum við á þorsk- og
karfaveiðum við Alaska. Þessari
sjómennsku var þannig háttað að
ég var samfellt að veiðum við
Alaska í tvo mánuði en var síðan
næstu tvo mánuði í fríi. Þetta var
á margan hátt erfitt, en tekjurnar
voru háar.”
Frá Alaska til Rapp
Hydema U.S.
„Sumarið 1987 fékk ég tilboð um
vinnu hjá Rapp Marine. Þetta
kom þannig til að um borð í tog-
aranum sem ég var á við Alaska
var vélbúnaður frá Rapp, fyrst og
fremst togvindur, og sem yfirvél-
stjóri kynntist ég vel þeim sem
sáu um viðhald á honum. Ég
hafði kynnt mér vel hvernig þessi
búnaður virkaði um borð og þeir
hjá Rapp Hydema vildu gjarnan
nýta mína þekkingu inni í fyrir-
38
Siglfirðingurinn sem stýrir
Rapp Hydema
í Seattle í Bandaríkjunum
„Ég er fæddur og uppalinn á Siglufirði. Faðir minn, Sigurjón Jóhanns-
son, kallaður Buddi, var lengi skipstjóri á Sigluvíkinni og ég fór með
honum til sjós þegar ég var fimmtán ára gamall og var á Sigluvíkinni
meira og minna í um tíu ár. Ég fór síðan í Vélskólann og að því námi
loknu árið 1984 fórum við bekkjarfélagarnir í útskriftarferð til
Chicago. Þessi ferð átti eftir að breyta minni stefnu í lífinu því þar
vestra hitti ég bandaríska stúlku sem síðar varð eiginkona mín. Ég fór
til Íslands með bekkjarfélögum mínum og vann heima um sumarið, en
hélt síðan vestur aftur og hef síðan verið búsettur í Bandaríkjunum,”
segir Siglfirðingurinn Jóhann Sigurjónsson, sem starfar nú sem fram-
kvæmdastjóri fyrir bandaríska fyrirtækið Rapp Hydema U.S., Inc í
Seattle í Bandaríkjunum. Rapp Hydema er einn hlekkur í keðju fyrir-
tækja undir nafninu Rapp Marine Group, en höfuðstöðvar hennar eru í
Bodö í Noregi.
Þeir feðgar Sigurjón Jóhannsson og Jóhann Sigurjónsson
um borð í Sigluvíkinni í þá gömlu og góðu daga.
Í Ú T L Ö N D U M
Texti:
Óskar Þór Halldórsson