Ægir - 01.01.2002, Blaðsíða 40
40
Í Ú T L Ö N D U M
Gott að búa í Seattle
Jóhann lætur vel af því að búa í
Bandaríkjunum, þó svo að hann
viðurkenni að til að byrja með
hafi hann átt erfitt með að venjast
því að vera svo fjarri sínu fólki á
Íslandi. Og hann orðar það svo að
fyrstu fimm árin hafi hann alltaf
verið á leiðinni heim. „En það er
gott að búa í Seattle og við Ís-
lendingarnir sem þar erum höld-
um vel saman og hittumst oft.
Til dæmis erum við alltaf með
þorrablót seinnipartinn í febrúar
og sömuleiðis höldum við upp á
17. júní og sláum upp jólaballi í
byrjun desember,” segir Jóhann.
Seattle er stærsta sjávarútvegs-
borgin í Bandaríkjunum. Jóhann
segir að sjómennskan heilli sig
alltaf og því sé gott að búa í
Seattle, þar sem sjávarútvegurinn
sé umfangsmikil atvinnugrein.
Gaman sé að fylgjast með togur-
unum og lífinu á hafnarsvæðinu.
„Stærsti markaðurinn okkar er í
Seattle og þar erum við trúlega
með okkar búnað um borð í 120
skipum,” segir Jóhann.
Á gæsaveiðar í Skagafirði
Foreldrar Jóhanns og fleiri ætt-
menni búa á Siglufirði og því
segist hann koma heim til Íslands
á hverju ári. Til dæmis hafði
hann viðkomu hér fimm sinnum
á síðasta ári. Oft liggur reyndar
beint við að koma við á Íslandi
þegar leið Jóhanns liggur í höfuð-
stöðvar Rapp Marine Group í
Bodö í Noregi, en að vonum þarf
hann oft að koma þangað, síðast
lá leið hans til Noregs um miðjan
janúar. „Það er reyndar orðinn
fastur liður að koma heim á
haustin til þess að skjóta gæsir.
Síðastliðið haust kom ég til dæm-
is ásamt sjö viðskiptavinum Rapp
Hydema á gæsaveiðar í Skaga-
firði. Þessar ferðir eru farnar að
spyrjast út meðal viðskiptavina
okkar fyrir vestan og nú vilja
fleiri koma í þessar gæsaveiðferðir
en við getum annað,” segir Jó-
hann og brosir.
Jóhann segist fúslega viður-
kenna að hann hafi alltaf jafn
gaman af því að koma heim til
Siglufjarðar. „Sigló er alltaf
heim,” segir hann. „Ég fylgist vel
með á Íslandi, bæði fæ ég blöð að
heiman og fer inn á netið og les
fréttir um íslensk málefni,” segir
siglfirski framkvæmdastjórinn í
Seattle.
Það er orðinn fastur liður að Jóhann komi að haustlagi til Íslands með nokkra af
viðskiptavinum Rapp Hydema í þeim megintilgangi að skjóta gæsir. Þessi mynd var
tekin sl. haust í slíkum veiðitúr í Skagafirði.
Jóhann Sigurjónsson við skipið Ocean Bounty, sem var gert út frá Seattle í
Bandaríkjunum. Myndin er tekin í Seward í Alaska árið 1985.