Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.03.2002, Qupperneq 11

Ægir - 01.03.2002, Qupperneq 11
11 V E I Ð A R F Æ R I „Ég get ekki annað sagt en að þetta gangi bara vel, það er nóg að gera bæði hér fyrir austan og á Akur- eyri,“ segir Jón Einar Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Neta- gerðar Friðriks Vil- hjálmssonar hf. í Nes- kaupstað, sem auk höfuðstöðva fyrirtæk- isins í Neskaupstað rekur starfsstöð á Ak- ureyri. Netagerð Friðriks Vilhjálms- sonar hefur stækkað umtalsvert á liðnum árum. Hún sameinaðist Odda á Akureyri og keypti síðan rekstur Netagerðar Dalvíkur. Reksturinn var lagður niður á Dalvík og sú þjónusta sem þar var fluttist til Akureyrar. Húsnæðið á Dalvík er hins vegar til sölu, en hefur að undanförnu verið í leigu. Jafnframt festi fyrirtækið kaup á rekstri Gúmmíbátaþjónustu Austurlands og hefur sú starfsemi verið flutt inn í húsnæði Neta- gerðar Friðriks Vilhjálmssonar. Jón Einar segir að starfsemin á Akureyri hafi farið vaxandi í vet- ur. Þar hefur meiri áhersla verið lögð á fiski- og rækjutroll en fyrir austan er áherslan meiri á loðnu- og kolmunnanætur, enda nokkrar af stærstu útgerðunum á því sviði þar eystra, ekki síst Síldarvinnsl- an í Neskaupstað. Þá sér starfs- stöðin í Neskaupstað um þjón- ustu og viðhald á flottrollum og framleiðir poka fyrir loðnu og kolmunna. Kolmunnatrollin eru engin smásmíði, þau eru nokkur tonn að þyngd, að sögn Jóns Einars. Kolmunnaveiðin er orðin hluti af starfsemi sjávarútvegsfyrirtækj- anna sem eru í uppsjávarveiðun- um og hlutur hennar í heildar- veiðinni skiptir orðið miklu máli. Um leið hafa aukist umsvif þjón- ustufyrirtækis eins og Netagerðar Friðriks Vilhjálmssonar. Eins og áður segir eru nú þrjú fyrirtæki í netagerð komin undir hatt Netagerðar Friðriks Vil- hjálmssonar. Jón Einar er þess fullviss að samþjöppun í grein- inni eigi eftir að aukast. Ástæðan sé sú að útgerðirnar séu alltaf að stækka og þær geri kröfur til netagerðarfyrirtækjanna um góða og hraða þjónustu. Netagerð Friðriks Vilhjálmssonar í Neskaupstað og á Akureyri: Hefur sterka stöðu fyrir austan og norðan Undirritaður hefur verið samn- ingur milli Icedan ehf. og Krist- jáns G. Gíslasonar ehf. um yfir- töku Icedan á öllum björgunar- vörum sem fluttar hafa verið inn og markaðssettar af Kristjáni G. Gíslasyni ehf. Einna helst er að nefna að Iced- an mun nú taka yfir sölu og dreif- ingu á DSB björgunarbátum sem hafa unnið sér trausta markaðs- hlutdeild á Íslandi undanfarna áratugi en Kristján G. Gíslason ehf. hefur verið umboðsaðili DSB frá árinu 1959. Auk DSB mun Icedan markaðssetja björgunar- vesti frá I.C. Brindle, losunarbún- að frá Thanner, flotgalla frá Must- ang, neyðarmat og vatn frá Compact, dælur frá Sigma og baujustangir frá Engel-Netzse. Samhliða þessari yfirtöku mun Hjörtur Cýrusson, fyrrum starfs- maður Kristjáns G. Gíslasonar, hefja störf hjá Icedan. Icedan hefur á undanförnum árum verið einn af leiðandi aðil- um á sviði björgunarlausna fyrir íslenska fiskiskipaflotann og hef- ur markað sér skýra stefnu um að byggja frekar upp þetta svið inn- an félagsins. Fyrirtækið vonast eftir að ný merki efli þjónustu við viðskiptavini í framtíðinni. Icedan ehf. sérhæfir sig í þjón- ustu við útgerðarfyrirtæki og auk björgunarvara annast fyrirtækið víðtækan innflutning á ýmsum útgerðarvörum og rekur fjórar veiðarfæragerðir. Icedan var stofn- að árið 1992 og hefur mikil þróun átt sér stað í rekstri fyrirtækisins. Um þessar mundir rekur fyrirtæk- ið fimm starfsstöðvar í tveimur löndum, á Íslandi og í Kanada. Icedan tekur við nýjum umboðum í björgunarvörum Jón Einar í vinnslusal fyrir- tækisins í Neskaupstað. Mynd: ÁÓ

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.