Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2002, Blaðsíða 13

Ægir - 01.03.2002, Blaðsíða 13
13 V E I Ð A R F Æ R I veiðarfæragerð í nafni Icedans. „Við erum með alhliða veiðar- færagerð á Sauðárkróki og erum að vinna að uppsetningu á lítilli sjóbúð þar sem við seljum ýmsa smáhluti sem tengjast útgerðinni, t.d. lása, hnífa, hlífðarfatnað og margt fleira. Við höfum góða reynslu af slíkri verslun í Þorláks- höfn, þetta fer ágætlega saman við þá alhliða veiðarfæraþjónstu sem við bjóðum upp á,“ segir Ólafur. Icedan hefur þróað og framleitt rækjuskiljur, sem hafa gefið góða raun. Til að byrja með voru skilj- urnar framleiddar úr ryðfríu stáli en nú hefur plastið tekið við. Þá má ekki gleyma rokkhopper- lengjunum sem Icedan framleiðir fyrir rækjutroll, humartroll og snurvoðir. Bæði er um að ræða venjulegar lengjur og snúnings- lengjur. Auk þess að framleiða nýjar lengjur sjá starfsstöðvar Icedan um viðhald á þeim eldri. Krabbagildrur í Kanada Fyrir fjórum árum stofnaði Icedan ehf. dótturfyrirtæki í St. John’s í Kanada, Icedan Canada Inc. og þar er boðið upp á sömu þjónustu og í starfsstöðvum Icedan hér á landi. Ólafur Steinarsson segir fyrirtækið hafa náð nokkuð góðri fótfestu á hörðum samkeppnis- markaði í Kanada. Íslensk skip sem stundi rækjuveiðar á Flæmska hattinum nýti sér jöfn- um höndum þjónustu Icedan í Kanada og hér heima. Í nóvember á síðasta ári hóf Icedan Canada rekstur netaverkstæðis, sem m.a. fæst við framleiðslu á krabbagildrum fyrir heimamark- að og markað á Grænlandi. „Það er klárt að sóknin á Flæmska hef- ur minnkað og það er mikilvægt fyrir fyrirtæki eins og okkar að hafa sem flestar stoðir undir rekstrinum. Því höfum við horft til heimamarkaðarins og annarra nýjunga til að trygga og viðhalda vexti fyrirtækisins,“ segir Ólafur. Framtíðin „Við eigum okkur draum um að byggja upp alvöru aðstöðu í Hafnarfirði í framtíðinni á nýju svæði sem verið er að fylla upp. Þar höfum við lagt kapp á að koma allri starfsemi undir eitt þak. Tíminn verður að leiða í ljós hvort þetta verður að veruleika en verkefnið er engu að síður spenn- andi. Við höfum sýnt viðskipta- vinum okkar þessar hugmyndir og fengið afar jákvæð viðbrögð. Ef við náum vel utan um rekstur- inn og jafnvægi kemst á okkar ytra umhverfi gæti þetta orðið að veruleika 2004 eða 2005,“ segir Ólafur að lokum. Unnið að því að hífa veiðarfæri um borð í einn togara ÚA. Á Akureyri er fullkomin veiðarfæragerð og verslun. Áður var þessi starfsstöð rekin af ÚA og því er grunnur hennar sterkur.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.