Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2002, Síða 20

Ægir - 01.03.2002, Síða 20
20 M AT V Æ L A I Ð N A Ð U R Timbur er enn notað við fram- leiðslu á saltfiski og þurrkuðum fiski og í byggingar vinnslu- stöðva og við flutning til erlendra viðskiptavina. Helsta áhyggjuefni yfirvalda varðandi notkun timburs er mengun af völdum örvera því tré er gljúpt og getur því dregið í sig bæði raka, lífræn efni og örverur. Af þessum sökum hefur plast að mestu leyst timbur af hólmi í flötum sem eru í beinni snertingu við matvæli. Lítil vísindaleg rök voru þó fyrir þessum breytingum. Mynd 2 sýnir þrjá mismunandi fleti, gerða úr ryðfríu stáli, plasti og timbri. Öll yfirborðin hafa gróft yfirborð ef miðað er við stærð örvera sem flestar eru aðeins 1/1000 mm (1µ) að stærð. Góð hreinsun á yfirborði flata, sem eru í beinni snertingu við matvæli, er hluti af góðri mat- vælaframleiðslu. Árangur þrifa fer m.a. eftir þeim efnum sem notuð eru í yfiborðsfletina. Sumir gerlar geta t.a.m. bundið sig við hart yf- irborð þar sem þeir fjölga sér og mynda svokallaðar „biofilmur.“ Aðrar örverur festast svo í þessum filmum þar sem hreinsiefnin ná ekki til þeirra. Í þessu sambandi hafa menn mestar áhyggjur af matareitrunargerlum, en þeir geta hreiðrað um sig í filmunum, fjölgað sér þar og borist síðan í matvöruna við vinnslu. Val á efni, sem ætlað er að vera í beinu eða óbeinu sambandi við matvæli, byggir á eftirtöldum at- riðum: - Notkun ( stoðveggir, skurðar- bretti, umbúðir o.fl.) - Eiginleikar efnisins ( gleypni, ásog, styrkur o.fl ) - Ending efnisins ( viðhald og viðgerðir) - Eðli matvælanna ( vökvi, fast efni, þurrt, blautt, feitt, magurt) - Þrif ( auðvelt/erfitt) - Kostnaður ( dýrt/ódýrt) Margar rannsóknir hafa verið gerðar á timbri og hreinlæti, en það hefur skort prófanir við raun- verulegar aðstæður til að staðfesta niðurstöður þeirra. Meðal annars hefur því verið haldið fram (Carpentier 1997) að tilraunir á rannsóknastofum lýsi ekki endi- lega þeim skilyrðum sem eru fyrir hendi í iðnaðinum, þar sem mikil fjölbreytni er í örveruflóru, óhreinindum/mengun, raka og hita sem ekki er hægt að líkja eft- ir á rannsóknastofum. Þetta á sér- staklega við þegar hreinræktaðar örverur í vatnslausn eru notaðar. Rannsóknir hafa leitt í ljós að auðveldast er að hreinsa ryðfrítt stál og að almennt sé auðveldara að hreinsa plast heldur en tré ef lítil fita er til staðar. Plast slitnar hins vegar fyrr en tré og við það opnast leiðir fyrir örverur til að menga og taka sér bólfestu á slitnu yfirborði. Gott viðhald og mikið eftirlit er því nauðsynlegt ef plast á vera öruggara en tré. Flestar þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á þessu sviði beindust að notkun timburs í eldhúsum heimila en út í iðnaðinum eru hins vegar allt aðrar aðstæður og aðrar kröfur, sérstaklega hvað varðar þrif og þurrkun. Mikil- vægt var því að gera tilraunir úti í iðnaðinum. Á Íslandi var verkefninu skipt í þrjá megin hluta, þ.e. mælingar á límtré í byggingum, notkun á vörubrettum í fiskiðnaði og öðr- um matvælaiðnaði og notkun á saltfiskbrettum við saltfiskverk- un. Mynd 3 sýnir örverudreifingu á annars vegar límtré sem með- Mynd 2. Yfirborð á ryðfríu stáli, plasti og timbri. Mynd tekin með rafeindasmásjá. Stækkun u.þ.b. 1500x. Stærðarhlutfallið miðað við strikið sem er u.þ.b. 20µ. Mynd 3. Örverufjöldi á límtré og stálbitum í saltfiskgeymslu eftir 16 mánuði (1A:1x Kopal vatnsmálning og 2x Kopal acryl málning; 1B: 2x Kopal epoxy málning, vatnsleysanleg; 2A: Parket málning, vatnsleysanleg; 3B: 2x epoxy málning; 4A: Kjörvari 14(fúavörn); 5: ómeðhöndlað límtré; 6: galvaniserað stál

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.