Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2002, Síða 31

Ægir - 01.03.2002, Síða 31
31 kaupskipaútgerð og sjávarútvegurinn verði þannig ein af undirstöðum Eimskips, hlýtur að vera meiri- háttar traustsyfirlýsing á íslenskan sjávarútveg og framtíð hans. Þetta þykja mér merkileg tíðindi.“ Að auka verðmæti sjávarfangs Á undanförnum mánuðum hefur starfsemi sjávarút- vegsráðuneytisins beinst í auknum mæli að fisk- vinnslunni og hvernig sé unnt að auka verðmæti sjávarfangs. „Hér í ráðuneytinu hefur verið sett upp skrifstofa sem er sérstaklega ætlað að sinna þessum málum og um leið markaðs- og sölumálum. Við höf- um aukið stuðning okkar við þá sem eru að markaðs- setja og selja sjávarafurðir. Einnig höfum við hér í ráðuneytinu lagt aukna áherslu á umhverfismálin, sem tengjast markaðsmálunum mjög sterkt. Hvað þann þátt áhrærir stöndum við framarlega og ég geri mér vonir um að öll þessi vinna skili auknum verð- mætum sjávaraflans. Í þessu sambandi má líka nefna að við höfum hér í ráðuneytinu lagt aukna áherslu á eldi nytjastofna sjávar. Meðal annars er að störfum nefnd á vegum ráðuneytisins með aðkomu hagsmunaaðila þar sem fjallað er um fiskeldi, ekki síst þorskeldi. Vonandi fáum við jákvæða niðurstöðu úr þessari vinnu sem hjálpar okkur að koma á fót blómlegu fiskeldi eða kemur í veg fyrir að við gerum mistök í þeim efnum. Því er ekki að leyna að við erum nokkuð brennd af þeim mistökum sem hafa verið gerð í fiskeldi hér á landi, en við verðum að nýta þá reynslu sem við höf- um þegar aflað okkur til þess að gera betur eða forð- ast að gera sömu mistökin aftur.“ Spennandi starf Lokaspurningin til sjávarútvegsráðherra er á þann veg hvernig sé að standa í miðhring ólgunnar sem jafnan virðist vera í kringum umræðuna um sjávarút- veginn? „Í fyrsta lagi er mikið að gera í þessu starfi, eins og vera ber. Þetta er spennandi starf og mér leiðist aldrei í þessu amstri. Auðvitað er maður mjög vel meðvitaður um hversu mikilvægur þessi málaflokkur er og eðli málsins samkvæmt hafa menn mismun- andi skoðanir á mér og mínum störfum. En í pólitík er það nú bara þannig og engin ástæða til þess að kvarta undan því ef gefur á bátinn.“ - Gætirðu hugsað þér að halda áfram í stóli sjávar- útvegsráðherra ef sú staða kæmi upp eftir næstu al- þingiskosningar? „Já, ég væri alveg til í það,“ segir Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra og oddviti Sjálfstæð- ismanna í Reykjaneskjördæmi. „Fiskiskipaflotinn er alltaf að taka breytingum en það er augljóst að hann hefur stækkað frá því að þessi dómur féll, einkanlega hefur bátum með lítinn kvóta fjölgað. Það er vissulega erfitt við þessari þróun að gera þegar Hæstiréttur, ef svo má segja, grípur þarna inn í.“ Mynd: Óskar Þór Halldórsson.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.