Ægir - 01.03.2002, Qupperneq 33
33
H A F R A N N S Ó K N I R
á lögum og reglum sem lúta að
brottkasti, þ.á.m. lágmarks-
möskvastærð og lágmarksstærð
fisks til löndunar. Fyrstu ákvæði
um lágmarksstærð fisks til lönd-
unar og lágmarksmöskvastærð,
eru frá árinu 1937 þegar alþjóð-
legur samningur var gerður í
London með aðild Íslendinga (sbr.
lög nr. 77/1937 og fylgiskjöl með
þeim). Þessi samningur kvað á
um 24 cm lágmarksstærð þorsks
og ýsu og 70 mm möskvastærð í
botnvörpu. Samningurinn féll úr
gildi árið 1946 án þess að ný
ákvæði væru sett. Því virðast eng-
ar reglur hafa gilt um þessi atriði
1946-1954. Árið 1954 var sett
reglugerð (nr. 33/1954), byggð á
alþjóðasamningi í London frá ár-
inu 1946, um bann við að hirða,
kaupa og selja þorsk minni en 30
cm og ýsu minni en 27 cm. Jafn-
framt var möskvi í botnvörpu
ákveðinn 110 mm að lágmarki.
Árið 1963 var þessi lágmarks-
stærð þorsks til löndunar aukin í
34 cm og lágmarksstærð ýsu í 31
cm (reglugerð nr. 166/1963).
Árið 1966 var lágmarksstærð
möskva í botnvörpu ákveðin 120
mm (reglugerð nr. 214/1966).
Árið 1974 var lágmarksstærð
þorsks ákveðin 43 cm og ýsu 40
cm og lágmarksmöskvi í botn-
vörpu ákveðinn 135 mm (reglu-
gerð nr. 104/1974). Möskva-
stækkunin tók þó ekki gildi fyrr
en 1976. Lágmarksstærð þorsks
til löndunar var síðan aukin árið
1976 í 50 cm, og lágmarksstærð
ýsu í 45 cm (reglugerð nr.
16/1976) og lágmarksmöskvi í
botnvörpu var aukinn í 155 mm í
poka og tók sú breyting gildi
1977 (reglugerð nr. 73/1976).
Árið 1990 var sú breyting gerð að
lágmarksmöskvi skyldi vera 155
mm í allri vörpunni, nema á
svæði sunnan svokallaðrar poka-
línu. Þar var lágmarksmöskvi í
poka og belg 135 mm (reglugerð
nr. 511/1990). Þessar breytingar
tóku gildi árið 1991. Loks var
árið 1998 heimilað að nota 135
mm möskva í poka ef ekki var
notuð svokölluð pólsk klæðning
(stórriðið yfirnet) (reglugerð nr.
25/1998).
Árið 1977 var gert skylt að
hirða allan afla 6 helstu botnfisk-
tegunda, þar á meðal þorsks og
ýsu, en sjávarútvegsráðuneytið
gerði undirmálsfisk upptækan.
Jafnframt voru gildandi reglur
um lágmarksstærð til löndunar
staðfestar (reglugerð nr.
262/1977). Með kvótalögunum
frá 1984 voru reglur um lág-
marksstærð fisks til löndunar
afnumdar (reglugerð nr. 44/1984)
og kveðið á um að tiltekinn hluti
„undirmálsaflans“ teldist ekki til
aflamarks skipsins. Þær reglur
hafa tekið margvíslegum breyt-
ingum á undanförnum árum.
Með kvótalögunum 1986 var sú
skylda innleidd að hirða allan
kvótabundinn fisk. Með lögum
nr. 57 frá 1996, um umgengni
um nytjastofna sjávar, var lögfest
sú grundvallarregla að „skylt er
að hirða og koma með að landi
allan afla“, án tillits til fiskteg-
unda eða stærðar. Frá þessari
meginreglu eru þó leyfðar ýmsar
undantekningar, sem fyrirhugað
er að afnema með lögum.
Með hliðsjón af þessum breyt-
ingum má skipta nútíma fisk-
veiðum, og er þá fyrst og fremst
átt við togveiðar, í þrjú tímabil
með tilliti til umgengni um auð-
lindir sjávar: Fyrstu fjóra áratug-
ina, eða til ársins 1937, voru eng-
ar reglur í gildi um veiðarnar.
Þær virðast hafa verið óheftar af
hugmyndum um umgengni.
20 40 60 80 100
0
.0
0
.2
0
.4
0
.6
0
.8
1
.0
F
jö
ld
i
la
n
d
a
ð
(
m
ill
jó
n
ir
)
Lengd (cm)
0
.0
0
.0
1
0
.0
2
0
.0
3
H
lu
tf
a
ll
v
e
it
t
A) Fjöldi landað og hlutfall veitt
Hlutfall veitt
Fjöldi landað
20 40 60 80 100
0
.0
0
.2
0
.4
0
.6
0
.8
1
.0
F
jö
ld
i
(m
ill
jó
n
ir
)
Lengd (cm)
0
.0
0
.2
0
.4
0
.6
0
.8
1
.0
B) Fjöldi landað og veitt
Fjöldi veitt
Fjöldi landað
++++++++++++++++++++++++
+
+
+
+
+
+
+
+
+
++++ + +
+
+
10 20 30 40 50 60
0
.0
0
.2
0
.4
0
.6
0
.8
1
.0
H
lu
tf
a
ll
Lengd (cm)
0
.0
0
.2
0
.4
0
.6
0
.8
1
.0
DL =50 43.8
b = -0.6
C) Hlutfall brottkastað
20 30 40 50 60
0
.0
0
.1
0
.2
0
.3
0
.4
F
jö
ld
i
(m
ill
jó
n
ir
)
Lengd (cm)
D) Fjöldi brottkastað (milljónir)
Alls = 6.9
1. mynd. Brottkast ýsu í botnvörpu 1991
Botnvörpuveiðar Línuveiðar Dragnótaveiðar
Ár Á sjó Í landi Á sjó Í landi Á sjó Í landi
1988 29519 2912 197 12512 2840 1148
1989 28367 2611 620 12512 5318 1733
1990 32701 4510 791 6327 5536 630
1991 39366 2284 668 4670 1759 1608
1992 40213 4420 1757 3180 708 553
1993 51732 8047 99 5361 694 2237
1994 68838 6303 6836 5318 201 1462
1995 52304 12512 550 4882 141 2126
1996 50835 9948 931 4145 1193 2320
1997 29635 7805 1115 3135 2712 1415
1998 53571 13286 884 6360 1341 2120
1999 70274 10996 2224 6454 1107 1107
2000 51257 12512 6375 7818 834 2381
1. tafla. Brottkastsmælingar á ýsu (mældur fjöldi fiska á sjó og í landi) í botnvörpu-
veiðum, línuveiðum og dragnótaveiðum 1988-2000.