Ægir

Volume

Ægir - 01.03.2002, Page 34

Ægir - 01.03.2002, Page 34
34 H A F R A N N S Ó K N I R Næstu fjóra áratugi, eða til ársins 1977, þróuðust reglur um lág- marksstærð fisks til löndunar og lágmarksmöskvastærð í botn- vörpu, frá því að leyfa veiðar og löndun á nánast öllum fiski, til verulegra takmarkana í þessu efni. Um áhrif þessara ákvæða verður þó ekkert fullyrt. Síðustu áratugina hefur þróunin snúist við. Í stað þess að banna löndun tiltekins fisks (smáfisks) og heim- ila þar með brottkast með óbein- um hætti, hefur komið vaxandi skylda til að hirða allan fisk, banna allt brottkast. Í sjónmáli er að sú skylda verði án undantekn- inga. Reynsla síðustu hundrað ára virðist því hafa kennt okkur að umgangast auðlindir sjávar með varúð og kasta engu. Slíkt viðhorf til fiskistofnanna, „guðsgjafarinn- ar“, mun hafa þótt sjálfgefið á tímum áraskipanna. Sjómenn þess tíma hefðu líklega talið þá umgengni um fiskimiðin, sem löngum hefur tíðkast á síðustu öld, bæði skammsýna og heimskulega, ef ekki guðlast. Sérstakar rannsóknir á brott- kasti hafa ekki verið stundaðar á Hafrannsóknastofnuninni fyrr en á nýbyrjaðri öld. Á hinn bóginn má nota gögn sem safnað hefur verið í öðrum tilgangi, s.s. til að meta samsetningu afla eða til að stemma stigu við óhóflegum veiðum á smáfiski, til að meta brottkast. Gögn af þessu tagi eru allumfangsmikil og tiltölulega samfelld um nokkurt árabil, hvað varðar ýsu. Hér er einkum um að ræða mælingar veiðieftirlits- manna Fiskistofu, og einnig mæl- ingar starfsmanna Hafrannsókna- stofnunarinnar og Landhelgis- gæslunnar. Í þessari grein verða þessi gögn notuð til að meta brottkast á ýsu í botnvörpu-, línu- og dragnótaveiðum hér við land tímabilið 1988-2000. Gögn og aðferðir Talsverð gögn eru tiltæk hvað varðar lengdarmælingar á ýsu, allt frá árinu 1988, sbr. 1. töflu. Þetta eru einkum mælingar frá botnvörpuveiðum en færri mæl- ingar eru tiltækar frá línu- og dragnótaveiðum. Þessi gögn gera kleyft að meta árlegt brottkast ýsu í botnvörpuveiðum fyrir tímabilið 1988-2000. Mat á brottkasti í línu- og dragnóta- veiðum takmarkast á hinn bóginn við meðaltal tímabilsins 1996- 2000. Sú aðferð sem hér er beitt er háð því að tiltækar séu lengdar- mælingar á afla upp úr sjó annnars vegar, þ.e. áður en hugs- anlegt brottkast á sér stað, og hinsvegar á lönduðum afla, þ.e. eftir að brottkast hefur farið fram. Með samanburði á slíkum lengd- ardreifingum, að loknum tiltekn- um útreikningum, er unnt að meta brottkast, þar sem mismun- ur lengdardreifinganna er mæli- kvarði á brottkast. Forsenda þess- ara útreikninga er að ekkert brottkast eigi sér stað eftir að til- tekinni lengd er náð. Sú lengd getur verið mismunandi eftir fisktegundum og veiðarfærum, en er um 50 cm hjá ýsu. Að gefinni slíkri forsendu eru útreikningar skv. eftirfarandi: Á grundvelli lengdarmælinga úr lönduðum afla er fjöldi land- aðra fiska eftir lengd reiknaður með venjulegum hætti, enda liggi fyrir upplýsingar um land- aðan afla (1. mynd A, fjöldi land- að): LFl = LF • LHl þar sem, LF = Landaður fjöldi LFl = Landaður fjöldi eftir lengd LHl = Landað hlutfall eftir lengd Fjöldi veiddra fiska, þ.e. fiska upp úr sjó, er ekki tiltækur með þessum hætti, enda er ekki til að dreifa upplýsingum um magn þess fisks sem hefur verið kastað, ef brottkast hefur átt sér stað. Á hinn bóginn gefa lengdarmæling- ar úr veiddum afla hlutfallslega lengdardreifingu hans (1. mynd A, hlutfall veitt). Til þess að reikna veiddan fjölda verður að gilda að brottkast sé takmarkað við tiltekið lengdarbil og að brottkast sé því ekkert fyrir ofan það bil. Þá er unnt að reikna margföldunarstuðul (k), fyrir það lengdarbil þar sem brottkast er ekki til staðar, í þessu tilviki fyrir fisk stærri en 49 cm, þar sem, LFl = Landaður fjöldi eftir lengd VHl = Veitt hlutfall eftir lengd Þennan stuðul má síðan nota til að uppreikna hlutfall veitt og fá þannig fjölda veiddra fiska á því lengdarbili sem brottkast hefur átt sér stað (1. mynd B, fjöldi veitt), VFl = k • VHl þar sem, VFl = Veiddur fjöldi eftir lengd VHl= Veitt hlutfall eftir lengd Þar með liggja fyrir tvær lengdardreifingar (1. mynd B), önnur fyrir fjölda veiddra fiska, sem inniheldur brottkast og hin fyrir fjölda landaðra fiska, sem er ∑ ∑ > > = l l l l lVH lLF k 49: 49: 0 2 4 6 8 1 0 1 2 1 4 M ill jó n ir 1988 1990 1992 1994 1996 1998 2000 A) Fjöldi fiska 0 2 0 0 0 6 0 0 0 1 0 0 0 0 T o n n 1988 1990 1992 1994 1996 1998 2000 B) Þyngd 0 .0 0 .2 0 .4 0 .6 B ro tt k a s t/ A fl i 1988 1990 1992 1994 1996 1998 2000 C) Fjöldahlutfall 0 .0 0 .0 5 0 .1 5 0 .2 5 B ro tt k a s t/ A fl i 1988 1990 1992 1994 1996 1998 2000 D) Þyngdarhlutfall 2. mynd. Brottkast ýsu 1988-2000

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.