Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2002, Síða 35

Ægir - 01.03.2002, Síða 35
35 H A F R A N N S Ó K N I R án brottkasts. Hlutfall brottkasts eftir lengd (BHl) má þá reikna sem, Þessu brottkastshlutfalli má lýsa með svokallaðri „logistic“ jöfnu (1. mynd C), þar sem, L = lengd fisksins BL50 = Sú lengd þar sem brott- kast er 50% af fjölda veiddra fiska b = fasti (hallatala) Þetta mat á brottkastshlutfalli má síðan nota til að reikna fjölda brottkastaðra fiska eftir lengd (BFl, 1. mynd D), sem gefur heildarfjölda í brott- kasti þegar lagt er saman eftir lengd. Fjölda brottkastaðs má breyta í þyngd með því að margfalda nið- urstöðuna úr fyrri jöfnu (BFl) með þyngd, sem er reiknuð skv. lengdar-þyngdar sambandinu, Wl =0.01*L3 þar sem, L = Lengd í cm Wl = Þyngd, í grömmum, við tiltekna lengd Niðurstöður a) Brottkast í botnvörpuveið- um Brottkast ýsu í botnvörpuveið- um er sýnt á 2. mynd í fjölda fiska (A) og þyngd (B) og enn- fremur sem hlutfall brottkasts, miðað við landaðan afla í fjölda (C) og landaðs afla í þyngd (D). Brottkast var tiltölulega lítið 1988-91 en jókst hratt næstu árin á eftir og náði hámarki árið 1995, þegar það nam 12.8 milljónum fiska eða 8397 þúsund tonnum. Brottkast minnkaði á næstu árum og var lítið árin 1999-2000. Hlutfall brottkasts var minna en 12% í fjölda og 14% í þyngd 1988-90 en jókst í 25-50% í fjölda og 8-22% í þyngd á árun- um 1991-1998. Eftir þetta minnkaði hlutfallið en var samt hærra en við upphaf umrædds tímabils. Hlutfall brottkasts má skoða með tilliti til ýmissa þátta, s.s. lengd brottkastaðs fisks, stofn- stærðar, árgangastyrks og afla (3. mynd). Sjá má að brottkastslengd (BL50) vex marktækt með vaxandi brottkasti, úr 38 cm við lægsta hlutfall brottkasts í meira en 42 cm þegar brottkast er í hámarki (3. mynd A). Með öðrum orðum, því meira sem brottkastið er þeim mun stærri fiski er kastað. Þá er marktækt neikvætt samband milli hlutfalls brottkasts og veiði- stofns (3. mynd B). Þegar veiði- stofn er stór er hlutfall brottkasts lítið, en eykst þegar veiðistofn minnkar. Á hinn bóginn er ekki um marktækt samband að ræða milli brottkasts annarsvegar og afla eða nýliðunar hinsvegar (3. mynd C og D). Samband nýlið- unar og brottkasts er þó nálægt því að vera marktækt (p=0.056, r2=0.29). Lengdardreifing brottkasts er sýnd á 4. mynd fyrir einstök ár og í heild. Yfirleitt er megnið af brottkastinu á lengdarbilinu 30- 40 cm. Árin 1995 og 1997 er þó stór hluti þess á bilinu 40-50 cm. Sum ár, 1991, 1994 og 1996, má sjá toppa á bilinu 20-30 cm. b) Brottkast í línuveiðum Brottkast ýsu í línuveiðum er reiknað sem meðalgildi fyrir tímabilið 1996-2000 vegna skorts á fullnægjandi árlegum mælingum (5. mynd). Lengd við 50% brottkast (BL50) er 43.0 cm og er meginhluti brottkastsins á lengdarbilinu 35-50 cm. Árlegt meðalbrottkast er 1.9 milljónir fiska eða 1515 tonn. Brottkasts- hlutfall er 32.6% miðað við fjölda fiska og 14.7% miðað við þyngd aflans. c) Brottkast í dragnótaveiðum Brottkast ýsu í dragnótaveiðum er einnig reiknað sem meðalgildi fyrir tímabilið 1996-2000 (6. mynd). Lengd við 50% brottkast (BL50) er aðeins 35.3 cm og er meginhluti brottkastsins á lengd- arbilinu 25-35 cm. Dálítill topp- ur er einnig sjáanlegur á lengdar- bilinu 15-20 cm. Árlegt meðal- brottkast er 0.4 milljónir fiska eða 97 tonn. Brottkastshlutfall er 15.9% miðað við fjölda fiska og 2.3% miðað við þyngd. Umfjöllun Ýsa er aðallega veidd í botnvörpu hér við land eða 66.5% aflans 1988-2000. Nokkur afli er einnig tekinn á línu (15.9%) og í dragnót (6.6%). Þau veiðarfæri sem hér er fjallað um taka því um 89% ýsuaflans. Afgangurinn er einkum veiddur á handfæri og í net, en mælingar eru ekki tiltæk- ar fyrir þau veiðarfæri. Meginhluti brottkasts á ýsu á sér stað í botnvörpuveiðunum eða 6.1 milljónir fiska að jafnaði 1988-2000 (72.8% heildarbrott- kasts í fjölda) og 3240 tonn (66.8% heildarbrottkasts í þyngd). Í línuveiðunum var með- lll BHVFBF ∧ ×= ))(exp(1 1 50BLLbl BH −−+= ∧ l ll l VF LFVF BH − = + + + + + + + + + + + + + Hlutfall brottkasts D L 5 0 ( c m ) 0.1 0.2 0.3 0.4 0.5 3 6 3 8 4 0 4 2 4 4 Y = 38.2 + 8.4X r = 0.40 (p < 0.05)2 A) Brottkast og brottkastslengd + + + + + + + + + + + + + Veiðistofn (þús. tonn) H lu tf a ll b ro tt k a s ts 80 100 120 140 160 180 0 .0 0 .1 0 .2 0 .3 0 .4 0 .5 0 .6 Y = 1.026 - 0.006X r = 0.77 (p < 0.01)2 2000 1999 B) Stofnstærð og brottkast + + + + + + + + + + + + + Afli (tonn) H lu tf a ll b ro tt k a s ts 20000 25000 30000 35000 40000 45000 50000 0 .0 0 .1 0 .2 0 .3 0 .4 0 .5 0 .6 C) Afli og brottkast ++ + + + + + + + + + + + Nýliðun (milljónir) H lu tf a ll b ro tt k a s ts 0 50 100 150 200 0 .0 0 .1 0 .2 0 .3 0 .4 0 .5 0 .6 D) Nýliðun og brottkast 3. mynd. Fiskifræðileg tengsl brottkasts

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.