Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1963, Síða 28

Símablaðið - 01.12.1963, Síða 28
og verkefnum, sem lítill vafi er á, að gæfi betri raun í höndum einstaklings- framtaksins, en lækkuðu þá um leið þær launafúlgur, sem stöðugt eru fyrst og fremst hafðar í huga þegar um launabætur er rætt. Nú fyrst liggja að því von- ir, að þesi mál verði tekin til ábyrgra og sameiginlegr- ar endurskoðunar stjórnar og starfsmanna póst og síma. Og mætti það þá verða til fyrirmyndar öðrum stofnun- um, — og gera augu ríkis- valdsins vökulli. En því er hér á þetta minnzt í sambandi við fækk- un verkfræðinganna, að svo virðist, sem von sé um at- hyglisverða stefnubreytingu til sparnaðar. En hún er sú, að í stað stofuverkfræðinga fjölgi sérfræðingum, sem taka þátt í hinu lifandi starfi, en það eru símtæknifræðing- ar. Er vonandi að stofnunin stuðli að því, að þeim fjölgi, og spara megi að mun hið dýra vinnuafl verkfræðing- anna, án þess að nokkrum vandkvæðum valdi í fram- kvæmdum. Út í þessi mál mun verða farið ítarlegar hér í blaðinu síðar. í þjónustu stofnunarinnar hafa verið öríair menn með skólamenntun símtæknifræð- inga. En því hefur bjargað æði stór hópur símvirkja, sem hefur með sjálfsnámi náð því marki, að afla sér mikillar sérþekkingar og hæfni í starfi sínu. Nú á síðustu árum hafa stofnuninni bæzt við fjórir nýir síma- og radíótækni- fræðingar að loknu löngu námi erlendis. Launastigi Kjararáðs var samþykktur á aukaþingi B.S.R.B. í október 1962 og endanlegar tillögur Kjara- ráðs voru svo að síðustu lagðar fyrir launamálanefnd- arfund 16. nóvember sama ár. Að samningaborðinu með samninganefnd ríkisins var svo setzt 7. febrúar, og lagði samninganefndin þar fram tillögur ríkisstjórnarinnar. Þær voru síðan birtar í dagblöðunum. Allir ríkisstarfsmenn voru sammála um að tilboðið væri mjög lágt, og kom strax á næsta fundi leiðrétting við fjóra neðstu flokkana, þar sem svo illa hafði til tek- izt, að þeir voru fyrir neðan kaupgreiðslur fyrir sam- bærileg störf á frjálsum vinnumarkaði, en þetta mun hafa stafað af 5% hækkun, sem verkamenn og iðjufólk hafði fengið um þetta leyti. Þegar opinberir starfsmenn höfðu séð tilboð ríkis- stjórnarinnar, risu þeir allir upp sem einn maður og mótmæltu harðlega og var hinn opinberi vettvangur, á ég þar við dagblöðin, mjög sterkt vopn, einnig fóru einstaklingar og nefndir á fund samninganefndar og jafnvel ráðherra. Yfir þessu var engin leynd. Þegar samn- inganefndin breytti nokkru síðar röðun ýmsra starfs- hópa til hækkunar, var frá því skýrt að einstaklingar og starfshópar hefðu gengið á fund þeirra. í trausti þess, að ske mætti að einhverju yrði hér um þokað, var sezt að samningaborðinu, fjöldi samninga- funda var haldinn án nokkurs árangurs, og þegar við borð lá af hálfu sáttasemjara, að setja allt kjaramálið í Kjaradóm, rofaði til samkomulags, og svo fór sem ykk- ur er kunnugt, að samkomulag náðist um veigamestu atriðin að okkar dómi, fjölda launaflokka og skipan starfshópa í þá. Aftur á móti náðist ekki samkomulag um launafjárhæð í hverjum flokki, aldurshækkanir, vinnutíma, kaup fyrir yfirvinnu, vaktaálag o. fl. Var því næst að undirbúa þetta stórmál fyrir Kjara- dóm, og var málið þingfest 24. apríl s.l. Kjararáð til- nefndi sem málflytjendur þá Kristján Thorlacius, Guð- jón B. Baldvinsson og Harald Steinþórsson. Einnig unnu að málinu fyrir B.S.R.B. Guðmundur Ingvi Sigurðsson lögfræðingur og sem hagfræðilegir ráðunautar þeir, Hrólf- ur Ásvaldsson og Ólafur Vilhjálmsson. Kjaradómur gaf báðum aðilum kost á að leggja fram skriflegar greinargerðir, sem rökstuðning í málinu, og lögðu málflytjendur sóknaraðila fram gögn 6. maí, en síðustu greinargerð var skilað af varnaraðila 30. maí, og höfðu þá báðir aðilar fengið fresti til að skila tveim greinargerðum. Einnig kvaddi Kjaradómur málflytjendur beggja aðila á fund sinn, þar sem lagðar voru fyrir þá spurningar og málið rætt við þá. Það mun ekki of sagt, að þessi skrif-

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.