Símablaðið - 01.12.1968, Qupperneq 12
SAMSKIPTI STJÓnNEADA
OG STARFSMANNA
í síðasta tölublaði, sem kom út snemma
á árinu, var fyrirspurnum beint til for-
ustumanna stofnunarinnar, af símamönn-
um. Voru þær um tvö málefni, sem mikið
eru rædd af símafólki og raunar af fjölda
manns utan stofnunarinnar.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur
blaðið ekki fengið svar — ekki virt svars.
Blaðið er þó einasta leið forustumanna
stofnunarinnar til að koma þörfum upp-
lýsingum fyrir augu allra hinna fjölmörgu
starfsmanna. Það er þó sannarlega þörf á
því, að hver einasti símamaður geti flutt
réttan og traustan málstað stofnunarinnar
og tekið svari hennar. Það er ekki svo
sjaldan, sem hún verður fyrir hnútukasti
og það á ótrúlegustu stöðum. Áróður á
stofnunina hefur nú borið þann árangur,
að frumvarp er framkomið á Alþingi ,sem
miðar að því að draga úr valdi forráða-
manna stofnunarinnar og færa stjórnar-
valdið úr stofnuninni. Á meðan þetta er
að gerast, eru á annað þúsund póst- og
símastarfsfólk í Iandinu reiðubúið til að
bera blak af stofnuninni, en fær bara ekki
fararnesti — fær ekki svör við spurning-
um, sem brenna á vörum þjóðarinnar,
spurningum, sem starfsmenn þyrftu að
geta svarað hvar og hvenær sem er.
Þá má ekki gleyma því, að stundum
hafa önnur blöð tekið efni upp úr Síma-
blaðinu og myndu sjálfsagt gera í auknum
mæli, ef það flytti merkar upplýsingar og
fróðleik frá forstjórum til starfsfólks, sem
í flestum tilfellum væri jafnframt kær-
komið lesefni fyrir alþjóð.
Því má heldur ekki gleyma, að okkur
hefur verið falið að leysa af höndum marg-
háttuð þjónustustörf við erfið skilyrði (fátt
fólk í stóru og erfiðu Iandi). Þennan vanda
vilja háir sem smáir innan stofnunarinnar
leysa vel af höndum en það getur ekki
tekizt vel, ef þeir stóru eru of stórir til að
svara þeim litlu og þeir litlu of litlir til
að sætta sig við að vera ekki virtir svars.
Þeir stóru þurfa að virða fólkið, ef þeir
vilja njóta virðingar þess. Ef það tekst
ekki mun stofnunin hrörna að innan, þótt
hún sé klædd marmara að utan.
EFTinSKRIFT
Eftir að búið var að setja greinina
hér að framan, hefur Þorgeir K. Þor-
geirsson, aðalendurskoðandi, sent blað-
inu grein um póstgíróþjónustu, og
þakkar Símablaðið honum sérstaklega
hans persónulega framtak og velvilja
til blaðsins.
Ritstj.
SÍMABLAÐIÐ