Símablaðið - 01.12.1968, Side 26
ÞÓST-
OG
SIMASKOLI
Kristján Helgason,
skólastjóri.
Símablaðið fagnar því, að nú hefur ver-
ið stofnaður póst- og símaskóli og fer reglu-
gerðin um skólann hér á eftir:
1. gr.
Stofnaður skal sérstakur skóli, póst- og
símaskóli, til að sjá um menntun starfs-
manna pósts og síma með tilliti til þarfa
stofnunarinnar um sérhæft starfsfólk.
Námið er verklegt og bóklegt. Þegar
verklegi hluti námsins fer fram á vinnu-
stað er skólanum ætlað að hafa yfirum-
sjón með því og tilheyrandi prófi. Þegar
henta þykir, má bóklega námið að meira
eða minna leyti fara fram í bréfaskóla-
formi.
2. gr.
Skólanum stjórnar 5 manna nefnd sér-
fróðra manna, hvers á sínu sviði, og skal
hún skipuð af póst- og símamálastjóra til
3 ára í senn.
Póst- og símamálastjóri ræður skóla-
stjóra, að fengnum tillögum skólanefndar.
Skólastjórinn sér um undirbúning og rekst-
ur skólans, kennslu og framkvæmd prófa
í samræmi við fyrirmæli skólanefndar.
Skólanefndin ræður kennara og próf-
dómara, velur kennslubækur og prófverk-
efni í samráði við skólastjóra og hlutað-
eigandi kennara.
3. gr.
Póst- og símamálastjóri setur nánari
reglur um námið í hverjum ofannefndra
flokka, að fengnum tillögum skólanefndar.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt
lögum nr. 8/1935 öðlast þegar gildi.
Póst- og símamálaráðherra,
20. maí 1968.
Ingólfur Jónsson.
G. Briem.
Formaður skólanefndar er Páll V. Dan-
íelsson, forstjóri hagdeildar.
Kristján Helgason, deildartæknifræðing-
ur hefur verið ráðinn skólastjóri til 1 árs,
frá 1. nóvember 1968 að telja.