Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.12.1968, Qupperneq 38

Símablaðið - 01.12.1968, Qupperneq 38
ast rétt til að láta af störfum og fá launum fyrir hvert starfsár. Eftir að liann hefur oðlast rétt til að láta af störfum hætist við 2% fyrir hvert starfsár. Ellilífeyrir starfsmanns, sem byrj- ar t.d. að greiða iðgjöld 20 ára verður þannig við 65 ára aldur 75% af laun- um (60% -f- 1% i 15 ár) og þegar hann verður 75 ára 85% af launum (2% í 5 ár). Þeir starfsmenn, sem voru orðnir sjóðfélagar 14. maí 1955 geta vaiið á milli þessa og 95 ára reglunnar eins og áður segir. Með henni kaupa starfs- menn sér rétt til að láta af störfum með árlegum ellilífeyri úr sjóðnum innan við 65 ára aldur, eða þegar ald- ur þeirra og iðgjaldagreiðslutimi nem- ur 95 árum. Ég held að allir síma- menn, sem átt hafa þess kost, hafi fram að þessu valið 95 ára regluna og sýnir það algjört þekkingarleysi á lögunum. Það er liægt að telja þá starfsmenn okkar á fingrum annarrar handar, sem hafa notfært sér réttinn, sem þeir hafa keypt, og hætt störfum á aldrinum 57 til 64 ára. Allir Iiinir liafa eytt fé al- gjörlega að þarflausu, misjafnlega miklu þó. Maður sem greiðir í 371/2 ár og má þá hætta með árlegum ellilíf- eyri 57% árs gamall (371/2 + 57% = 95) greiðir fyrir það rúmar 50 þúsund kr. auk vaxta, miðað við 14 þúsund króna mánaðarlaun. Maður, sem greið- ir i 33 ár og má þannig hætta 62 ára, greiðir fyrir það, af sömu launum, rúmar 20 þúsund krónur auk vaxta. Þetta er gott og blessað fyrir þá, sem hafa hætt störfum og þegið ellilífeyri allt eftir áunnum réttindum. Hinir, sem haldið hafa áfram störf- um frain yfir 65 ára aldur og hafa greitt samkvæmt 95 ára reglunni, hafa tapað á því fé að þarflausu. Hversu margir skyldu þeir vera starfandi hjá stofnun okkar enn í dag? Þð er hins vegar ekki of seint fyrir 64 ára gamlan sjóðfélaga, sem greitt hefur iðgjöld lengur en i 30 ár að til- kynna lífeyrissjóðnum að hann ætli ekki að greiða samkvæmt 95 ára regl- unni og að hann óski að fá endurgreidd iðgjöld, sem hann hefur greitt umfram i 30 ár. Þannig getur 60 ára gamall sjóðfélagi, sem hefir greitt iðgjöld i 35 ár, beðið enn i 3 til 4 ár með að taka ákvörðun um livort hann ætli að greiða eflir 95 ára reglunni eða ekki. Það er hugsanlegt að einhverjir haldi að þeir ávinni sér hærri ellilífeyri með 95 ára reglunni, en það er hreinn misskiln- ingur, liann verður hinn sami, hvora leiðina sem þeir velja. Tökum tvö dæmi til samanhurðar: 1. Starfsmaður hefur gerzt sjóðfélagi 20 ára gamall. Almenna reglan: Eins og sýnt var liér að framan nemur ellilífeyrir lians 75% af launum, þegar hann verður 65 ára og 85% af launum, þegar hann verður 70 ára að aldri. 95 ára reglan: Hann greiðir í 37% ár eða þar til aldur hans er 57% ár (37% + 57% = 95). Þá hefur hann öðlazt rétt til að láta af störf- um með 60% ellilífeyri. Eftir það bætist við 2% fyrir livert starfsár og nemur ellilífeyririnn þvi 75% af launum, þegar hann verður 65 ára og 85% af launum, þegar hann verður 70 ára. 2. Starfsmaður liefur gerzt sjóðfélagi 30 ára gamall. Almenna reglan:

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.