Símablaðið - 01.12.1968, Side 42
Hásselby-höll — menningarmiöstöö Noröurlandanna.
NÁMSKEIÐ I UÁSSELBY-KÖLL
Sunnudaginn 26. mai, þegar hægri um-
ferð var aðeins nýhafin á íslandi, fórum
við 4 landar með flugvél frá Kaupmanna-
höfn til Stokkhólmsborgar. Flugið tók að-
eins klukkustund og var lent á Arlanda-
flugvelli kl. 10 að morgni.
Tilgangurinn með þessu ferðalagi var að
sækja námskeið, sem haldið var af NOSS-
samtökunum, en það eru, eins og flestum
er kunnugt, samtök ríkisstarfsmanna á
Norðurlöndum.
Þeir sem sóttu námskeiðið frá íslandi
voru: Einar Ólafsson frá BSRB, og var
hann jafnframt forystumaður flokksins;
Haraldur Norðdahl, frá Tollvarðafélagi ís-
lands, aldursforseti og sennilega einn af
víðförlustu opinberum starfsmönnum, með
Kína og Rússland á ferðaskránni; Ingólfur
Sverrisson, starfsmaður SFR og undirrit-
aður frá FÍS
Þetta námskeið var annað í röðinni af
námskeiðum af slíku tagi, en hið fyrra
var haldið í Noregi á sl. ári, eins og fram
hefur komið í grein eftir Ágúst Geirsson
í 3.—4. tbl. Símablaðsins 1967.
Að þessu sinni var námskeiðið haldið í
HÁSSELBY-höli, sem er menningarmið-
stöð höfuðborga Norðurlandanna, glæsileg-
ur staður og sérstaklega vel fallinn til
slíkrar starfsemi. Var allur aðbúnaður og
viðurgjörningur eins og bezt verður á kos-
ið.
Eftir hátíðlega setningarathöfn var starf-
ið hafið. Kynningarræður voru fluttar um
þau samtök ,sem standa að NOSS. Þátt-
takendum var skipt í hópa og dreift þann-
ig, að í hverjum hópi var a. m. k. einn full-
trúi frá hverju landi.
Viðfangsefnunum var síðan deilt milli
þessara starfshópa og tók hver hópur á-
kveðna þætti til meðferðar.
Fyrst og fremst var skipzt á skoðunum
og gerður samanburður. Niðurstöður voru
skráðar í hverjum hópi og þegar grein
var gerð fyrir störfum hvers hóps, lá nið-
urstaðan fjölrituð hjá þátttakendum,
hverjum og einum. Það sýndi sig, að þessi
ráðstöfun kom sér mjög vel, en með þess-
um hætti var lítil hætta á misskilningi
milli þátttakenda. Var öll skipulagning til
fyrirmyndar og er enginn vafi á, að þeir
sem sóttu þetta námskeið, fóru stórum
fróðari til baka.
Vil ég nota tækifærið og þakka fyrir
þessa lærdómsríku ferð.
Vilhj. Vilhjálmsson.
SÍMABLAÐIÐ