Símablaðið - 01.12.1968, Side 13
I'iyí sljfóm
F.Í.S.
Eins og kunnugt er hefur um nokk-
urt skeið ríkt ágreiningur um það,
hvort vaktavinnufólki beri matartím-
ar í yfirvinnu kl. 19.00 til 20.00 og kl.
03.00 til 04.00, á sama hátt og dag-
vinnufólki.
F.I.S. hefur talið að svo væri, en
það sjónarmið liefur ekki verið við-
urkennt af ríkisvaldinu til þessa. Nú
hefur hins vegar orðið breyting á af-
stöðu ríkisins til málsins og fjármála-
ráðuneytið gefið út fyrirmæli um
greiðslu launa, þegar áðurnefndir mat-
artímar eru unnir.
Ástæðan fyrir þessari afstöðubreyt-
ingu ríkisins er dómur Kjaranefndar
frá 23. júli sl. í máli lögregluþjóns hjá
Reykjavíkurborg gegn borgarsjóði, þar
sem lögregluþjóninum var dæmt tvö-
falt næturvinnukaup fyrir unninn mat-
artíma kl. 03.00 til 04.00 á aukavakt.
Forsendur þessa dóms eru ákvæði
5. gr. dóms Kjaradóms frá 30. nóvem-
her 1965, en þar segir svo í 2. mgr.:
„Sé unnin yfirvinna skulu vera mat-
artímar kl. 19.00 til kl. 20.00 og kl.
3.00 til kl. 4.00, og teljast þeir til
vinnutímans, enda sé vinnu lialdið
áfram eftir matartímann eða hluti
af honum unninn.“
í fyrirmælum ráðuneytisins er einn-
ig tekið tillit til viðbótar við 2. mgr.
5. gr. dóms Kjaradóms frá 30. nóv-
ember 1967, þar sem segir:
„Sama gildir um matartíma kl. 12.00
til 13.00 á laugardögum, sunnudög-
urn og öðrum frídögum samkv. 6.
grein.“
Fyrirmæli ráðuneytisins eru svo-
hljóðandi:
„Greiða her vaktavinnumönnum, er
unnið hafa yfirvinnu á matartíma
kl. 19.00 til 20.00 eða kl. 300 til kl.
4.00 á tímabilinu 1. 1. 1966 til 31.
12. 1967 tvöfalt næturvinnukaup á
greindum tímum. Fyrir sömu tíma
skal greiða næturvinnukaup á
greindum tímum. Fyrir sömu tíma
skal greiða eftir 1. 1. 1968 að við-
bættum tímanum kl. 12.00 til 13.00
á laugardögum, sunnudögum og
öðrum frídögum skv. 6. gr. Ivjara-
dóms.“
Þar sem F.I.S. hafa horizt fjölmarg-
ar fyrirspurnir um þetta mál og kunn-
ugt er að starfsmenn hafa yfirleilt ekki
séð þessi fyrirmæli, þótti þvi rétt að
gera sérstaka grein fyrir þeim hér í
hlaðinu.
Athygli starfsmanna skal vakin á
því, samkvæmt ofanrituðu, að leiðrétt-
ingar á yfirvinnugreiðslu skulu gerðar
aftur í tímann til 1. janúar 1966.
|| I./.V.
;! óshar félöf/uwn swnntn j|
yleðitefjra játa tneð
I; þiihh ftjt'ir tiðna árið. ;!
!; Gleðitegt ntjtt ár. !;
SÍMAB LAÐ IÐ