Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2006, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2006, Page 10
10 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV Kostir & Gallar Helga þykir kát, skemmtileg og lífsglöð. Góður söngvari og traust manneskja. Hún er forfallinn golfari, kröfuhörð og skaprik og býr oflangt frá Sauðár- króki. „Hún er traust, örugg og góð manneskja. Við höfum unnið mikið saman eða frá 1989 þegar hún söng lagið mitt, Ort í sandinn. Okkar kynni eru frábær og það er mjög gaman að vinna með henni, hún er skemmtileg, hress og kát. Svo er hún mögnuð tónlistarmann- eskja og frábær söngkona. Galli hennar er sá að hún býr alltof langt í burtu, hún þyrfti að flytja á Krókinn og þá gætum við unnið miklu meira saman." Geirmundur Valtýsson tónlistarmaður „ “Helsti kostur hennar er góða skapið. Hún er alltafhress og brosandi og mjög lífs- glöð kona. Svo er hún frábær golfari og mjög gaman að spila með henni en hún er miklu betri en ég og ég læri afhenni. Helga er áreiðanleg kona sem hægt er aö treysta. Galli á henni, en samt kostur lika, er hversu kröfuhörð hún ergagn- vart sjálfri sér.“ Sigríður Beinteinsdóttir söngkona „Ég hefallt gott um hana að segja. Hún er mjög prófessjónal i sínu starfi og mikill drifkarftur í henni. Hún syngur mjög vel og það er einstaklega ánægju- legt að vinna með henni. Hún hefur enga galla nema kannski hversu skaprík hún er og kröfuhörð en það er reyndar nauðsynlegur eiginleiki góðs söngvara." Gunnar Þórðarson tónskáld Helga Möller söngkona fæddist 12. maí 1957. Hún hefur sungið með mörgum þekktum tónlistarmönnum, sungið inn á fjöldann allan afbreiöskífum og varí dúettnum Ég og þú um nokkurra ára skeið með Jóhanni Helgasyhi. Helga hefur tekið þátt í undankeppni fyrir Eurovision í nokkur skipti og er gjarnan kölluð diskódrottning íslands. Fjögur prósent á ibúafundi Á dögunum var haldinn fámennur íbúafundur í Vogum. Fundurinn fjallaði um aðalskipulagsmál um- hverfls þéttbýli Voga. íbú- arnir voru þó ekkert að stressa sig yfir því að aðeins 40 manns sóttu fundinn, sem eru rúm fjögur prósent af íbúum í Vogum. Fulltrúar frá Landslagi fóru yfir tillög- ur að nýju aðalskipulagi umhverfis Voga og bæjar- stjórinn fór yfir þá þjón- ustuþörf sem fýlgir í kjölfar fjölgunar íbúa. í tillögunum er gert ráð fyrir að byggðar verði um 400 íbúðir norðan íþróttamiðstöðvarinnar og um 80 íbúðir á miðbæjar- svæðinu. Líkamsræktardrottningin Sif Garðarsdóttir segir Sæmund Bæringsson hafa ofsótt sig. Sif var i vikunni dæmd i Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að ráðast á Sæmund. Hún segist hafa ráðist á hann i bræði. Hún hafi óttast um barn sitt og leitað til lög- reglunnar sem enga hjálp hafi getað veitt. Sæmundur vísar ásökunum um ofsóknir á bug. Hann segir að Sif eigi sjálf um sárt að binda. „Hann ofsótti mig í fimm vikur áður en upp úr sauð,“ segir Sif Garðarsdóttir sem var dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur í vik- unni fyrir líkamsárás á Sæmund Bæringsson í líkamsræktarstöðinni Gym 80. Sif réðst á Sæmund með spörk- um og klóri þegar hún fékk loksins nóg. Henni var ekki gerð nein sérstök refsing og segir Sif að hún geti búist við því að Sæmund- ur byrji aftur að ofsækja hana eftir dómsmálið. „Við kynntumst á skemmtistað," segir Sif Garðarsdóttir einkaþjálfari um upphaf sambands hennar og Sæmundar Bæringssonar. Sif segist hafa haldið að Sæ- mundur væri venjulegur strákur. Þau hafi kynnst gegnum sameigin- lega kunningja og spjallað saman um íþróttir. Hún segist hafa látið Sæmund hafa símanúmerið sitt vegna þess að hún vildi leiðbeina honum í líkamsræktinni. Hann hafi Gym 80 Sif réðst á Sæmundþegar hann var I bekkpressu. svo byrjað að hringja. Sif segir að sig hafi ekki grunað hvaða mann Sæ- mundur hefði að geyma. Bankaði í tvo daga „Hann varð gríðarlega uppá- þrengjandi," segir Sif og útskýrir að hún hafi reynt að slíta þessum und- arlegu kynnum. í kjölfarið hafi Sæ- mundur komið heim til hennar. „Hann hékk á bjöllunni og bankaði í tvo daga." Seinni morguninn sér hún að hennar bíða tugir skilaboða í síman- um frá Sæmundi þar sem hann seg- ist vera fyrir utan. Þegar hún lítur út um gluggann sér hún Sæmund inni í bflnum sínum þar sem hann hafði dvalið síðan snemma um morg- uninn. Óttaðist um barnið sitt „Ég fór þrisvar til lögreglunnar en hún sagðist ekkert geta gert," segir Sif sem eftir þetta fór að eigin sögn „Hann varð gríðarlega uppáþrengjandi. “ unum Sifjar á bug. Hann segir að þau hafi átt í ástarsambandi og Sif hafi óttast að upp um það kæmist. Það sé Sif sjálf sem eigi um sárt að binda. valur@dv.is Pressan varð of mikil „Að lokum fékk ég bara nóg," segir Sif um árás sína á Sæ- mundu í líkamsræktarstöð- inni Gym 80. Hún sparkaði í Sæmund og klóraði hann. Sif segir það undarlegt að hún sé dæmd því það sé augljóslega Sæmundur sem eigi erfitt. Hún hafi vissu- lega brugðist rangt við og sjái eftir gjörðum sínum. Það geti bara enginn heil- vita maður lifað í svona ótta eins og hún hafi þurft að þola. Sæmundur vísar ásök- Sæmundur Bæringsson „Ég fór þrisvar til lögreglunnar enhún sagðist ekkert geta gert,“segir Sif Garðarsdóttir sem kveður Sæmund hafa ofsóttsig í fimm vikur. að óttast um barnið sitt. Sif segir að hún hafi talað við aðr- ar stúlkur sem hafi „lent í" Sæmundi og þær hafi haft sömu sögu að segja. Hún segist hafa fengið það heilræði að hún yrði að ná í barnið sitt sjálf í skólann og að enginn annar mætti gera það. Þá segist Sif hafa áttað sig á því að Sæmundur væri hreint ekki meinlaus. Könnun Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlits cmn „Sem betur fer hefur örveru- ástand í kjúklingum á markaði farið batnandi frá aldarmótum 2000," segir Herdís M. Guðjónsdóttir, sér- fræðingur á matvælasviði Umhverf- isstofnunnar. Umhverfisstofnun og heilbrigð- iseftirlit sveitarfélaga hafa undanfar- in ár tekið sýni úr kjúklingum á markaði og rannsakað með tilliti til örveranna kamfýlóbakter og salmonellu. í eftirliti seinni hluta ársins í fyrra kom í ljós að engir kjúklingar voru sýktir af salmonellu en hins vegar voru fjögur prósent sýna sýkt af kamfýlóbakter. „Það að engin salmonella skuli hafa fundist í fyrra er mjög gott. Sú niðurstaða að fjögur prósent kjúklinga hafi verið smituð af kamfýlóbakter er svipuð og niður- stöður síðustu ára," segir Herdís. Fóik sem neytir sýkts kjúklings getur sýkst þótt það innbyrði aðeins fáeinar bakteríur. Bakterían veldur bólgu í þörmum með niðurgangi, kviðverkjum, hita, ógleði og upp- köstum. Ksmfýlóbakter drepst við suðu og venjulega matreiðslu ef maturinn er gegnumsteiktur. „Vinsældir kjúklinga hafa aukist jafnt og þétt síðan farið var að leyfa sölu þeirra ófrosinna árið 1996," segir Herdís. Fyrir þann tíma höfðu kjúklingar einungis verið seldir frystir vegna hættu á salmonellu- sýkingu. „Næstu ár á eftir tók að bera á kamfýlóbaktersýkingum í fólki. Þær náðu síðan hámarki árið 1999 og voru raktar til kjúklinga. í ársbyrjun 2000 fór af stað átak sem miðaði að því að draga úr kamfýlóbakter- mengun í kjúklingarækt," segir Her- dís sem þakkar litla örverumengun í Kjúklingar í rækt- un Fjögur prósent lík- ur á að kjúllinn I ís- skápnum sé sýktur. kjúklingum samstilltu átaki fram- leiðenda og eftirlitsaðila samfara fræðslu til neytenda um meðhöndl- un hrárra kjúídinga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.