Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2006, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2006, Síða 27
DV Helgarblað LAUGARDACUR 18. FEBRÚAR 2006 27 Regina í kringum tíu ára aldurinn Hún var valin einsöngvari I kórÁr- bæjarskóla þegarhún var fjórtán ára og varð undraðist það val mest sjálf. Siðan hefur hún ekki þagnað. nóg að gera við að syngja í ferming- arveislum og hinum og þessum uppákomum," riíjar Regína Ósk upp og segir að þeim hafi þótt þetta ógurlega gaman. Fékkekki inngögnu Hamrahlíðarkórinn I MH sótti hún um inngöngu í kórinn en stóðst ekki prófið og var hafnað. Hún segist telja að hún hafi verið of örugg en hún hafi ekki tekið það sérlega nærri sér. Eftir stúdents- próf var ekki neitt sérstakt sem hana langaði að læra en Regína Ósk stundaði samhliða menntaskóla- námi nám í Söngskóla Reykjavíkur. „Ég tók þriðja stig en fann mig ekki almennilega eftir það. Var ekki alveg á því að fara út í klassískan söng. Lét það nám duga en fór þess í stað í Regina Ósk elskar að standa á sviði Hún segir það einstaka tilfinningu sem ekki sé hægt að lýsa. sköpun og hafa jákvæð áhrif. Regína Ósk er sjálf mjög ánægð með að hafa fengið tældfæri til að velja úr nokkrum lögum til að syngja í keppninni. Hvers vegna fleiri en einn lagahöfunda hafi leit- að til hennar segist hún ekki vera viss en líklega hafi reynsla hennar haft eitthvað þar um að segja. „Það kann lfka að vera að fjöl- breytni raddarinnar hafi eitthvað með það að gera. Ég veit það ekki en það var óneitanlega gaman að geta valið og hafnað. Lagið sem ég flyt valdi ég vegna þess að mér þótti það best og hæfa minni rödd vel. Það er þjóðlegur tónn í því og vinna mikið. Mér líður afskaplega vel ef ég hef nóg að gera,“ segir hún og brosir og bætir við eftir að hafa tekið upp símann og talað smá stund að hún sé eiginlega í klukku- stundar hléi á milli kennslustunda í Söngskóla Maríu Bjarkar. „Ég er hér yfirkennari eftir að Sigga einbeitti sér að söngskóla sínum í Noregi," segir hún um leið og hún stingur upp í sig bita af há- degismatnum þann daginn. Hún segist alltaf vera á hlaupum því ekki mæti hún í vinnu á morgnana og fari heim klukkan fimm eins og annað fólk. Regína er á lausu eftir skilnað Regína Ósk er á lausu. Hún var í sambúð í sjö ár en upp úr henni slitnaði eins og hjá mörgum öðr- um. Hún neitar að í kringum þau slit hafi verið meiri átök en gengur og gerist en dóttir þeirra, þriggja ára, býr hjá henni en er mikið hjá föður sínum. „Ég vil nú ekkert vera fara mikið í þau mál. Við skildum í mjög góðu í byrjun árs 2005 en auðvitað er alltaf erfitt að hætta einhverju sem er búið að vera fastur punktur í til- verunni svona lengi. Svona er lífið stundum og auðvitað ætlar maður ekki að skilja og þetta er aldrei skemmtilegt, sérstaklega þegar börn eru í spilinu, en ef fólk er með báða fætur á jörðinni og spilar vel úr spilunum gagnvart börnunum þá þarf þetta ekki að verða eitt- hvað skelfilegt. Aðalmálið er að láta þetta ekki bitna á þeim. For- eldrar skilja ekki við börnin heldur makann. Ég hef aldrei skilið fólk sem notar börnin sem eitthvert vopn í sinni tilfinningalegu bar- áttu,“ segir hún og segir að þeim hafi tekist vel upp við að taka á skilnaðinum í sameiningu. „Svo er auðvitað að lokum mik- skemmtilega útsett. Ekkert var til sparað að gera það sem best úr garði og með mér eru hljóðfæra- leikarar sem setja mikinn svip á það. Ég hafði mikla ánægju af þessu og það var ótrúlega gaman að koma fram á þessu stóra sviði. Það er eitthvað sem söngvarar elska; að koma fram fyrir fjölda manna og fá að túlka á sinn hátt gott lag. Um æðar manns streymir notaleg tilfinning, sem enginn get- ur lýst nema að reyna það,“ segir hún og túlkar með höndunum þá kennd. Afgreiddl blýanta og bækur í Árbænum Regína Ósk er úr Árbænum og þar ólst hún upp og gekk í skóla. Foreldrar hennar ráku Ferstiklu í Hvalfirði þegar hún var krakki og þar var hún mikið í frítímum. „Ég lærði snemma að steikja hamborg- ara og afgreiða pylsur," segir hún hlæjandi og bætir við að hún hafi átt notalega æsku. Amma hennar var mikið á heimilinu og var alltaf til taks þegar Regína og systkini hennar komu heim úr skóla. Hún bendir á að foreldrarnir hafi verið uppteknir við reksturinn en krakk- arnir höfðu það fi'nt á meðan. Seinna rak móðir hennar Bóka- verslun Árbæjar og þar afgreiddi hún blýanta og bækur. „Þannig lærði ég að vinna og það hefur loðað við mig síðan að „Sylvía kæmi líka vel út og myndi vekja mikla athygli. Inn- koma hennar í und- ankeppninni var smart og lagið er flott. Það situr í manni og áður en mcður veit afer mað- ur farin að söngla það." ilvægast af öllu að vera hamingju- samur. Börnin sjá alveg á foreldrum sínum hvernig þeim líður," segir Regína Ósk og segist vera afar sátt við líf sitt. Hún eigi marga góða að sem aðstoði hana með litlu dóttur hennar og sé aldrei í vandræðum með að kom- ast frá til að syngja. „Nei, ég hef ekki neina sérstaka þörf fyrir að vera í sambandi og mér leiðist aldrei," svarar hún þeirri spurningu hvort ekki sé erfitt að vera ein á báti í starfi eins og hennar. „Ég er mjög sátt og hef það gott. Það er mikið atriði fyrir mig að hafa nóg fyrir stafni og ég hef það. Ég gæti ekki bætt meiru á mig. Morgnana á ég fyrir mig og dóttur mína en hún er í fínum leikskóla þar sem tekið er tillit til þess að hún er ekki alltaf mætt klukkan níu. Mér finnst ósköp notalegt að hafa hana heima hjá mér í róleg- heitum. En auðvitað er ég ekki öðruvísi en aðrar konur að því leyti að ég myndi ekki slá hendinni á móti því að hitta þann eina sanna, hver neitar því?" spyr hún hlæj- andi. Fékk allgjöra dellu fyrir söngnum Söngurinn hefur fylgt Regínu Ósk frá því hún var unglingur. Hún segist hafa lært á píanó en eins og svo margir aðrir laakkar vildi hún frekar vera úti að leika sér en sitja inni og æfa sig. „Mamma spurði hvort hún ætti þá að selja píanóið og ég var fljót að játa því. En nú sé ég auðvitað eftir þvf að hafa ekki lært áfram. Það væri gaman að geta bæði sungið og spilað." Hún var í kór Árbæjarskóla og velti aldrei fyrir sér hvort hún gæti sungið frekar en hinir í kórnum. Vinkonur hennar skráðu sig einn daginn í söngvakeppni í Árseli og það gerði hún líka. „Ég vildi vera með og ég vann, sjálfri mér til mestrar undrunar. Ég hef verið eitthvað um fermingu og nokkru síðar tók kórstjórinn í kórn- um mig í prufu. Aftur varð ég jafn hissa þegar hún valdi mig sem ein- söngvara og eftir það hef ég varla þagnað. Fékk allgjöra dellu og við vinkonurnar notuðum allar stundir til að æfa okkur saman. Rödduðum meira að segja," segir hún og hefur gaman af minningunni. „Við vorum ógurlega áhuga- samar og æfðum stíft. Og það bar svo mikið á okkur að vinir og ná- grannar okkar voru farnir að biðja okkur um að skemmta í veislum og boðum í Árbænum. Við höfðum dugleg og sterk. Ég lít mjög upp til hennar og met hana mikils. Yfir hana get ég hellt mínum sigrum jaJht sem ósigrum og hún styður við bak mér í öllu sem ég geri," segir Regína og bæt- ir við að vinir hennar séu henni einnig mikils virði. Þeir séu tryggir og þannig telur hún sig einnig vera. „Ég er vinur vina minna og það er hægt að treysta mér. Þannig em einnig vinir mínir enda hef ég mikla skömm á óheiðar- leika," Hún tekur fram að hún sé félags- lynd og hafi gaman af að fara út og Reglna alns og Eurovision aödá- endur sjá hana Það er flott umgjörð i krlngum keppnina og allt frá förðunin- ni og klæðnaði að sviðinu sjálfu er vandað til verks. FÍH. Þar var ég í einn vetur. Síðan hef ég verið að syngja. Stundum hef- ur ekki verið það mikið að gera að ég hef unnið með en þess á milli hef ég haft nóg. Núna er nóg um að vera. Ég syng núna í sýningunni með Björgvini Halldórs og kem fram við hin ýmsu tækifæri eins og brúð- kaup. Svo ætla ég að fara að undir- búa aðra plötu en ég var með plötu fyrir þessi jól sem ég er mjög ánægð með. Hún hefur vakið athygli á mér og skapað mér meiri vinnu." Regína Ósk er mikið í svokallaðri „session" vinnu og segir að innan tónlistarheimsins þekki allir alla. Oft sé því kallað á hana vegna kunn- ingsskapar. Þeir sem þurfi viti hvar hún standi og hvað hún geti. „Opn- ar pmfur þar sem hver sem er getur mætt og reynt sig em ekki oft haldn- ar hér. Ég hef verið mjög sátt við framgang minn og ég held því fram að stígandi lukka sé best. Það er ekki alltaf gott að vera á allra vörum á unga aldri. Það þarf svo lítið til að gleymast alveg," segir hún og bend- ir á að með auknum áhuga á söng séu fleiri og fleiri ungir söngvarar að koma fram á sjónarsviðið. Sem bet- ur fer helst það í hendur við aukna eftirspurn. Móðir hennar helsti stuðningsmaðurinn „Það er því aðeins okkur öllum til góða að fá nýjar og ferskar raddir og það hefur verið gaman að fylgjast með öllum þessum ungu söngvurum sem komið hafa fram á sjónarsviðið á und- anfömum árum þótt gengi þeirra hafi verið misjafrit," bendir hún á. Hún segist vera í mjög nánum tengslum við móður sína. þær tali saman nokkmm sinnum á dag og mamma hennar styðji hana í öllu sem hún geri. „Mamma er mikil hörkukona, gera eitthvað skemmtilegt en líði þó alltaf best heima. „Ég get dundað mér vel, horft á sjónvarp, ráðið krossgátur eða lesið og sakna einskis," segir Regína Ósk sem er farin að ókyrrast. Til hennar er kominn nemandi sem bíður. „Ég bæti þér þetta upp seinna. Þá færðu lengri tíma," segir hún alúðlega og stekkur inn í sal.. Snýr sér áður en hún lokar við og segir, „Nú er bara að krossleggja firígur fýrir laugardaginn. Það verður gaman að sjá hvernig fer," segir Regína Ósk og er bjartsýn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.