Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2006, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2006, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 Fréttir DV Alltfullt afskíðum Það verða fleiri hundruð manns á skíðum nú um helgina en Skíðamót íslands fer ffam á Dalvík og Ólafsfirði nú um helgina. Auk þess er Icelandair Cup mótaröðin í alpagreinum haldin á Akur- eyri. Elmar Hauksson, ffam- kvæmdastjóri Skíðasam- bands Islands, segir að aldrei hafi fleiri keppendur tekið þátt. „Aldrei hafa fleiri kepp- endur komið hingað til lands vegna mótanna í alpagrein- um og hafa nú þegar 56 er- lendir keppendur skráð sig til keppni á Sb'ðamóti fslands." Skúringakonan sem grunuð er um að hafa rænt tæpum tveimur milljónum af Hjámari Erni Jóhannssyni, sölufulltrúa í Brimborg, hefur verið dæmd fyrir þjófnað sem framinn var á þáverandi vinnustað hennar, 10-11. Konan neitaði allan tímann sök í Héraðsdómi Reykjavíkur þrátt fyrir að athæfi hennar hafi náðst á myndband. Hún var dæmd fyrir að hafa stolið 21 þúsund krónum. Skúrinpakona áður dæmd fvrir újnfnað á vfnnustað Vinnuafl kærkomið Frjálshyggjufé- lagið hvatti í gær ríkisstjóm íslands til að nýta ekki að- lögunarfrest vegna frjálsrar farar launafólks frá nýj- um aðildarríkjum ESB. Þetta kemur fram í tif- kynningu félagsins sem send var fjölmiðlum í gær. Þar kemur ffam að ástand vinnumarkaðar á íslandi er með þeim hætti að aukið framboð vinnuafls sé kær- komið. Þá vill Ftjálshyggju- félagið einnig að hömlum á atvinnurekendur og fólk sem hingað vill koma í at- vinnuleit verði aflétt. Skemmtigarður í Laugardalnum ? Jójó tónlistarmaðurog böskari. „Mér finnst að þessi skemmti- garðurætti að vera í Hljóm- skálagarðinum til þess að styrkja miðbæinn. Þetta er mjög jákvætt og samtengir fólk vonandi betur. Mér finnst allt í lagi að hafa húsdýra- garðinn í Laugardalnum en mér finnst eins og það séu nokkrir miðbæir eftir að verls- unarmiðstöðvarnar spruttu upp út um. Það þarfað hafa þetta allt bara á einum stað.“ Hann segir / Hún segir „Mér finnst þetta skemmtileg hugmynd, þetta svæði yrði aldrei notað undirannað en einhverjar verslunarmiðstöðv- ar. Laugardalurinn erað byggjast upp enég held að húsdýragarðurinn sé að verða svolítið þreyttur. Manni fannst reyndar alveg geðveikt að fara þangað þegar maður var Iftill. En efgæjar með peninga vilja byggja skemmtigarð þarnaþá erþað æðislegt." Sígrún Blomsterberg danskennari. Skúringakonan, sem er grunuð um að hafa millifært tæpar tvær milljónir króna af tölvu Hjálmars Arnar Jóhannssonar, sölufull- trúa í Brimborg, um síðustu helgi hefur áður verið dæmd fyrir þjófnað. Það var þegar hún starfaði íversluninni 10-11 árið 2000. Skúringakonan, sem er 28 ára gömul, var dæmd í þrjátíu daga skil- orðsbundið fangelsi fýrir þjófnað úr 10-11. Afbrotin voru framin árið 2000 þegar konan starfaði sem kassadama í 10-11 í Sporhömrum í Reykjavík. Hún var sakfelld fyrir að ræna 21 þúsund krónum. Á þessum tíma barðist hún við spiiafíkn. Þverneitaði ásökunum Lögreglan var kölluð til í maí 2000 þegar starfsmenn 10- 11 töldu að konan hefði tekið 32 þúsund krónur úr peninga- kassa og stungið á sig. Daginn eftir að lögreglan kom vantaði 15 þúsund krónur sem tekn- ar höfðu verið úr tveimur kössum. í viðtölum við lögreglu þverneitaði konan að hafa tekið peningana. Sagði hún að 8 þúsund krónur, sem hún hafði á sér, væru komnar frá móður sinni. Þegar lögreglan bað hana um að tæma vasana kom í ljós að hún hafði þar fimm þúsund krónur í viðbót. Nokkrum dögum síðar var konan kærð. Heilaspuni og ispui tdbc S Verslunarstjórinn sagði það vera heilaspuna konunnar að hann hafi gefið sérstakt leyfi fyrir því að taka peninga úr kass- anum. Athæfl hennar náðist á myndband með eftirlitsmynda- vélum. Hún neit aði þrátt fyrir það og sagðist hafa verið að laga til í kassan- um. mynúbands- I upptökur Konan neit- aði sök fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Hún viður- kenndi þó að f hafa tvívegis tek- ið lágar upphæðir i úr kassanum en j fullyrti að það I hefði verið gert j með samþykki verslunarstjór- ans. Hún hafi ætl- að að kaupa lyf handa barninu sínu fyrir peningana. Vinnu- staður rændur Konan, sem starfaði við skúringar í Brim- borg, er grunuð um að hafa stolið tæpum tveimur milljónum króna af reikningi Hjálmars Arnar. Hann er bróðir Egils Jóhannssonar, framkvæmdastjóra Brimborgar. Kenningin er sú að konan hafi komist í töivu Hjálmars í vinnunni og þannig náð í nauðsyn- legar upplýsingar. Málið er í rannsókn. Konan neitaði ásökun- um um þjófnað þegar DV hafði samband við hana. valur@dv.is Skúringakonan Er dæmd fyrir að ræna vinnustaðinn sinn. „Athæfi hennar náðist á myndband með eftirlitsmyndavélum. Hún neitaði þrátt fyrir það og sagðist hafa verið að laga til i kassanum." 1 r Heimabankarán Tveimur milljónum rænt i Brimborg. Þrír menn eru ákæröir fyrir íjölbreytt og stórfelld fjársvik Amfetamínframleiðandi ákærður fyrir að stela klósetti Sigmundur Heiðar Valdimars- son, Stefán Hlynur Steingrímsson og Lúðvík Eiríksson hafa verið ákærðir fyrir margvísleg fjársvik upp á rúma eina milljón króna. Hlutirnir sem þremenn- ingarnir eru sak- aðir um að svíkja út eru af mörgum toga og fjölmargir. Eitt af því sem þeir eru sagðir hafa svikið út er klósett. Lúðvík hefur áður verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa haft amfetamínverksmiðju heima hjá sér. „Ég er saklaus maður," segir Lúð- vík Eiríksson um ákærumar á hend- ur sér. Hann segist eingöngu hafa keyrt Sigmund og Stefán í búðirnar sem svikið var út úr. Afbrotin voru framin í fyrra. Alls fóm þeir í fjórar ferðir að sögn Lúðvíks. „Eg veit ekki hvað þeir vildu með kló- settið," segir Lúðvík hlæjandi og bendir á fé- laga sína tvo sem ákærðir eru með honum. Einnig eru þeir sagðir hafa svikið út ýmsar byggingarvörur. Lúðvík segist ekki vita til þess að þeir hafi verið að byggja nokkurn skapaðan hlut. Lúðvík var dæmdur í 14 mánaða fangelsi fyrir umfangsmikla fram- leiðslu á amfetamíni í október í fyrra. Hann segist einnig saklaus af því og hefur áfrýjað því máli til Hæstaréttar. Lúðvík sagði fyrir Héraðsdómi í fyrra að hann hafi ekki ætlað að dreifa efninu heldur nota það ein- göngu sjálfur. Hann sagði að ekki væri til nógu gott amfetamín á ís- landi og því hefði hann ákveðið að byrja að framleiða sitt eigið. Einnig bætti Lúðvík því við að hann hefði gaman af efnafræði og þess vegna hefði hann staðið í þessu. vaiur@dv.is Klósett Mennirnir sviku útklósett.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.