Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2006, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2006, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 Helgarblað 0V Þuríður Backman Púður frá Clinique „Ég er alltaf með púður við höndina enda verður maður að geta púðrað nebbann í þessu starfi. Þetta púður er ágætt en ég verð að ónæmisprufaða þar sem ég er næmisgemsi og því verða vand- aðar vörur frek- ar fyrir valinu hjá mér en annaö." Augnskuggi Chanel litur, i gráir si nota sem og aða frá Chanel sen eru í grænum tón um en ég er með grá græn augu.“ Clarence-maskari „Ég nota maskara á hverjum degi. Ég hef prófað margar teg- undir og þessi er ágætur." Armani augabrúnalitur og pensill „Ég reyni að muna eftir að mála augabrúnirn- ar á hverjum degi." Varalitur frá Clarence „Þessi er frá Clarence og er svona milli-ljós- brúnn. Ég nota varalit á hverjum degi og set gjarn- an gloss yfir." Gloss frá Clarence „Þetta litaða gloss er Clarence en mér finnst fínt að setja glossið yfir varalit." Þuríður Backman, þinkona Vinstri - grænna, segist ekki mála sig mikið dagsdag- lega. Hún á hins vegar mikið af snyrtidóti enda býr hún á tveimur stöðum, í Reykjavík og á Egilsstöðum. „Ég kaupi mér samt ekki mikið af snyrti vörum, að- eins þegar ég klára eitthvað. Hins vegar þarf ég að eiga nokkur eintök af hverju. Ég er með sett í sundtöskunni minni héma og fyrir austan og eins er ég með sett á baðherberginu hérna og fyrir austan og svo þetta sem ég er alltaf með f tösk- unni," segir Þuríður og bætir við að hún hafi gaman af því að prófa eitthvað nýtt þegar kemur að snyrtivörum. „Vörurnar verða hins vegar að vera ofnæmispró- faðar og því vel ég frekar vandaðar vörur en eitthvað annað." Athafnakonan María Björk Sverrisdóttir stofnaði söng- skóla fyrir þrettán árum. í upphafi var hún eini kennarinn með 30 nemendur en í dag er fjöldi nemenda kominn yfir 200 þar sem yngstu nemendurnir eru aðeins þriggja ára en þeir elstu um sextugt. „Áhugi ísléndinga á söng er alltaf að aukast og ætli það sé ekki Idol - Stjörnuleit og Eurovision að þakka," segir María Björk Sverrisdóttir sem rekur Söngsskóla Maríu Bjarkar. María Björk stofnaði skólann fyrir 13 árum en starfsemin hefur aukist til muna. Fyrsta árið var hún eini kennarinn með þrjátíu nemendur en þremur árum síðar, þegar nem- endum hafði fjölgað upp í 60, fékk hún Sigríði Beinteinsdóttur með sér í lið. f dag fær María Björk reglulega til sín þekkta gestasöngvara auk annarra söngkennara. Stofnaði skólann eftir skiln- að Aðspurð segi María Björk stofn- un skólans hafa verið heldur einfalt verkefni. „Ég stofnaði skólann á því tímabili sem ég var að skilja. Þá ákvað ég að gera eitthvað sjálf og auglýsti námskeið í söng. Ég fékk inni í Tónabæ gegn því að vera dómari í Músíktilraununum," segir María Björk þegar hún rifjar þetta upp. Skólinn er nú til húsa í Fákafeninu og hefur nemendum fjölgað upp í rúmlega 200. Nemend- ur eru á öllum aldri og að sögn Maríu Bjarkar eru þeir yngstu að- eins þriggja ára en þeir elstu um sextugt. Lærði í LA Sjálf lærði María Björk söng við Söngskóla Reykjavíkur og FÍH auk þess sem hún sótti einkatíma hjá Diddú. „Þegar ég var 26 ára fór ég svo í djass-söngnám til Los Angel- es,“ segir hún og bætir við að sú lífs- reynsla hafi verið frábær. „Mér fannst ofsalega gaman að vera þarna úti og ég kynntist mikið af góðu fólki. Þegar ég kom heim aftur skildum við hjónin og ég ákvað að stofna skólann." Móðir á ferð og flugi María Björk á þrjú börn. Sú elsta, sem er tvítug, er einnig í söngnum og söng meðal annars lagið Skólarapp ásamt Þorvaldi Davíð á sínum tíma. Þrátt fyrir að vera ávallt með annan fótinn í útlöndum, þar sem hún er umboðsmaður Jóhönnu Guðrúnar, segir María Björk lítið mál að sameina starfið móðurhlut- verkinu. „Þau eru svo dugleg að hjálpa mér auk þess sem ég er líka með aðstoð heima fyrir," segir hún og bætir við að söngkonan Regína Ósk Óskarsdóttir sjái um söngskól- ann fyrir hana á meðan hún er er- lendis. Þeir laglausu með óþjálfað tóneyra María Björk segir allskonar fólk sækja söngnámskeið. Flestir hafi áhuga á söng en margir vilji einnig öðlast meira sjálfstraust. „Ég veit al- „Þegar ég kom heim aftur skildum við hjónin og ég ákvað að stofna skólann." veg hvernig þetta er því þegar ég var í námi í LA fannst mér ofsalega erfitt að koma fram fyrir framan bekkinn. Með svona námi þjálfast fólk hins vegar og öðlast meira sjálfstraust," segir hún. Aðspurð hvort allir geti sungið segir hún allan hátt á því. „Við getum lagað ofsalega mikið hjá hverjum og einum. Gerum þá góðu enn betri og þjálfun þá sem eru komnir stutt. Oftast eru þeir lag- lausu með óþjálfan tóneyra og heyra því ekki að þeir eru laglausir og halda að þeir syngja vel," útskýrir María Björk og brosir. indiana@dv.is Maria Björk Sverris- dóttir Maria Björk þakkar * Idol - Stjömuleit og Euro- Ivision aukinn áhuga landsmanna á söng. Efnalaugin Bjorg Gæðahreinsun Þekking Reynsla Þjónusta Opid; mán-f»m 8:00 -18;00 föst 8ÆO -19:00 laugardaga 10K)0 * 13;00 Háaleitisbraut 58-60 * Sfml 553 1380
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.