Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2006, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2006, Blaðsíða 27
Helgarblað DV LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 27 Sesselja Thorberg Sigurðar- dóttir er ungur, upprenn- andi hönnuöur og einn þáttarstjórnenda hönnun- ar- og lífstílsþáttarins Vegg- fóðurs. Sesselja hefur oröið fyrir miklu mótlæti á sinni ungu ævi en hefur þroskast við lífsreynsluna. Sesselja er hér í opinskáu viðtali við DV og ræðir um fjölskyld- una, systurmissir, veikindi móður og trúna á Guð sem hún hefur aldrei misst. Sesselja hefur vakið athygli fyrir fagmannlega fram- komu í sjónvarpinu og það er vert að fylgjast ineð þess- ari stelpu 1 framtíðinni. Sesselja byrjaði að vinna með Valgerði Matthías- dóttur, betur þekktri sem Vöiu Matt, í Innliti/útliti á Skjá einum árið 2004. Hún útskrifaðist sem vöru- og iðnhönnuður frá Listaháskóla ís- lands árið 2003 og hafði unnið sem „freelance" hönnuður í nokkra mánuði þegar Vala frétti af henni. „Á Skjá einum var ég miklu meira á bak við tjöldin en þar var ég ráðin til að aðstoða pródúsentinn auk þess sem ég átti að koma með hug- myndir og hanna og sjá um heima- síðu Innlits/útlits. Þegar við fórum yfir á Sirkus var Vala farin að prófa mig meira fyrir framan myndavél- arnar og í dag er ég miklu meira í sjónvarpinu," segir Sesselja glöð í bragði. Aðspurð þykir henni lítið mál að vera fyrir framan myndavél- ina enda aldrei verið þekkt fyrir að vera feimin. „Fyrir mér er það að vera í sjónvarpinu ekki aðalmálið, ég lít ekki á þetta þannig. Auðvitað vil ég standa mig og gera þau verk- efni vel sem ég tekst á við, en aðal- lega lít ég á sjónvarpið sem tól til að gefa landanum hugmyndir og sniðugar lausnir enda er sjónvarpið besti miðillinn til þess. Við viljum gera þetta vel og höfum metnað til að koma ákveðnum gæðastimpli á þáttinn og höfum nú þegar gert það. Á bak við hvern þátt er ótrú- lega mikil vinna og ég er bæði stolt og ánægð með að vera hluti af þessu hönnunarteymi." Eiga sitt barnið hvort úr fyrri samböndum Sesselja hefur staðið sig vel í þáttunum og á eflaust eftir að eiga glæsilegan feril hvort sem verður í hönnun eða fjölmiðlum, nema hvort tveggja verði. Hún starfar sem aðalhönnuður Veggfóðurs auk þess að aðstoða Heru Ólafsdóttur pródúsent og að sjálfsögðu Völu Matt. Það er því nóg að gera hjá þessari ungu konu sem er auk þess tiltölulega nýgift fjölskyldukona. Eiginmaður hennar heitir Magnús Sævar Magnússon en þau Sesselja höfðu verið saman lengi áður en þau létu pússa sig saman í Nes- kirkju síðastliðið haust. Fyrir eiga þau sitt barnið hvort og svo skemmtilega vill til að börnin eru á sama aldri, tíu að verða 11 ára. Son- ur Sesselju, sem heitir ísak Númi, býr hjá þeim í Vesturbænum en dóttir Magnúsar, Lára Theódóra, dvelur hjá þeim aðra hvora helgi. „Ég byrjaði ung,“ segir Sesselja brosandi en hún var ekki nema 17 ára þegar ísak Númi fæddist. Gæti ekki gert þetta án hans Þegar talið berst að sambandi þeirra hjóna segir hún þau ótrúlega samstíga og góða vini. „Það getur verið mjög mikið að gera hjá mér, sérstaklega núna þegar ég er í fram- leiðslunni líka. Vinnan kemur að sjálfsögðu í törnum en að undan- förnu hefur verið mikið að gera. Aftur á móti virðist álagið minna þegar þú ert að vinna við það sem þú hefur ástríðu fyrir," útskýrir Sesselja og bætir við að það geri mikið gagn að eiga eiginmann sem standi þétt við bakið á henni. „Maðurinn minn er gull af manni og ég gæti þetta ekki án hans. Hann trúir á mig og það sem ég geri,“ seg- ir hún en Magnús starfar í fjármála- bransanum. „Hann er ekki alveg týpan með málningarpensilinn eins og ég en hefur þó gaman af því að fylgjast með því sem ég geri." Hæfileikarnir í ættinni Sesselja hefur mikinn metnað fyrir hönnun og hefur frá barnæsku vitað að þetta væri bransi fyrir hana. Hún segist hafa mestan áhuga á sniðugum og ódýrum lausnum þótt þær dýru og flottu veki einnig áhuga hennar. „Við höf- um fengið mikla athygli frá áhorf- endum og alls ekki aðeins frá þeim eldri. Til dæmis auglýstum við eftir ungu pari sem við Gulla stílisti ætl- um að hjálpa að koma sér fyrir í sinni fyrstu íbúð og það hefur ein- faldlega rignt inn umsóknum. Okk- ur þykir voðalega gaman að sýna skemmtilegar lausnir en ekki að- eins það flottasta og dýrasta, þótt það komi auðvitað með. Mitt „tra- demark" hefur líka verið að koma með lausnir sem kosta ekki of mik- ið, því ég veit að hinn almenni Jón Jónson sem vill peppa aðeins upp á heimilið er til í að eyða í það nokkrum þúsundköllum en ekki endilega miklu meira en það,“ segir hún. Hæfileikana til að nýta hlutina til hins ýtrasta segist hún líklega hafa fengið frá móður sinni, Edith Thorberg. „Þótt ég myndi ekki segja að við höfum verið fátæk þá höfð- um við ekki mikið á milli handanna á mínum yngri árum. Ég upplifði mig samt aldrei sem lítt efnaða því mamma var snillingur að gera mik- ið úr litlu og þaðan fæ ég þá hæfi- leika," segir hún og bætir aðspurð við að hún hafi einnig erft listrænu hæfileikana frá ömmum sínum. „Ömmur mínar, Dóra Sigfúsdóttir og Sesselja Sigurðardóttir, eru báð- ar miklar handverkskonur og það eru listamenn og hönnuðir í báðum ættum mínum svo það kom ekkert annað til greina fyrir mig,“ segir hún og brosir. „Ég upplifði mig samt aldrei sem lítt efnaða því mamma varsnill- ingur að gera mikið úr iitíu og þaðan fæég þá hæfileika Missti systur sína ung Lífið hefur ekki alltaf verið dans á rósum hjá Sesselju. Hún missti eldri systur sína þegar hún var tólf ára og mamma hennar veiktist þeg- ar Sesselja var 18 ára gömul. „Án þess að vera með fordóma kom aldrei til greina að ég yrði ein af þessum dæmigerðu ungu mæðr- um," segir hún hugsandi og heldur áfram. „En ef ég hugsa til baka svitna ég bara og skil eldd hvernig ég fór að. Ég var á leið í gagnfræða- skóla þegar systir mín dó og það tekur mörg ár að vinna úr svona hlutum. Það kemur samt með tím- anum, þótt maður trúi því ekki þeg- ar svona gerist," segir hún ákveðin og bætir svo við: „Mamma fékk heilablóðfall og fór í hjólastól þegar ég var sjálf unglingur með ársgam- alt barn. í rauninni heid ég að vin- konur mínar, sem margar voru einnig ungar mæður í svipaðri stöðu og ég, hafi hjálpað mér mikið því við héldum hópinn og studdum hver aðra og í rauninni veit ég ekki hvar ég væri í dag án þeirra. Ég er samt svo stolt af mömmu. Hún er svo jákvæð og lífsglöð og algjör pæja sem elskar að vera fín,“ segir hún glaðlega og bætir við að móðir hennar sé ein af hennar helstu fyr- irmyndum í lífinu. í kirkju á sunnudögum öli þessi lífsreynsla hefur mótað Sesselju. Hún er ákveðin ung kona sem veit hvað hún vill og hvert hún stefnir. Hún er fjölskyldukona og velur frekar að eyða helgunum með fjölskyldunni eða í góðra vina hópi en að skella sér á djammið þótt vissulega kíki þau hjónin annað slagið út á iífið. Eitt sem vekur sér- staklega athygli er kirkjusókn fjöi- skyldunnar en Sesselja, Magnús og börnin eru nánast fastagestir f sunnudagsmessum Neskirkju. „Þetta er kannski óvenjulegt fyrir svona ungt par en fyrir mig er þetta eðlilegt. Eg átti mína barnatrú eins og aðrir sem margir missa á ung- lingsárunum en finna svo aftur þegar fólk er komið með fjölskyldu. Að mínu mati er kirkjustarfið hér í Neskirkju alveg einstakt og prest- arnir, séra Sigurður Árni og séra Örn Bárður alveg æðislegir. Þeir eru fyndnir og skemmtilegir og mess- urnar höfða tii nútímafólks á öllum aldri," segir hún og bætir við að vel sé mætt á venjulegum sunnudegi og svo vel mætt á hátíðisdögum að þau geti ekki annað en mætt snemma til að fá sæti. „Ég get ekki sagt að við mætum um hverja ein- ustu helgi en samt að nokkuð oft, sérstaklega miðað við normið. Þetta er bara svo gott fyrir krakkana og þar sem við vöknum hvort sem er snemma með krökkunum þá er alveg eins gott að drífa sig út og gera eitthvað saman," segir hún og bætir við að hún og Magnús séu samtaka í þessu líkt og öðru. „Ann- að okkar er alls ekki að draga hitt í kirkjuna, við erum í þessu saman enda trúum við mikið á hvort ann- að og styðjum hvort annað til hins ýtrasta," segir hún og bætir við að þau hjónin séu miklar félagsverur og kirkjusóknin sé aðeins partur af þeirráfélagsstarfi. Glöggt er gests augað Auk sjónvarpsþáttarins starfar Sesselja sjálfstætt við að ráðleggja fólki með innanhúshönnun. „Ég hef verið að fara heim til fólks og aðstoða og er einnig með ýmis önn- ur járn í eldinum," segir hún og bætir við að það geti oft verið erfitt að samræma fjölskyldustarfið, vinnuna, vinina og áhugamálin. „Það er bara svo svakalega gefandi að sjá glampann í augunum á kúnnanum því það er staðreynd að það er mikið af fólki sem veit ekkert hvernig það á að snúa sér á heimil- um sínum, einfaldlega af því að hæfileikar þeirra liggja kannski annars staðar. Maður getur líka orðið svo samdauna sínu eigin heimili og þá virkar málshátturinn „glöggt er gests augað" vel. Áður fyrr var eins og fólk skammaðist sín fýrir að leita hjálpar með heimili sín, en fólk er alltaf að átta sig meira og meira á því að það er fagfólk þarna úti sem getur gert þetta fyrir mann. Margir eru ef til vill hræddir um að hönnuðirnir og arkitektarnir komi eins og stormsveipir og breyti öllu eftir eigin smekk en að mínu mati er mjög mikilvægt að setja sig í spor kúnnans og hanna út frá hans smekk og persónu." Verðum að vinna fyrir hlut- unum Að lokum berst talið að framtíð- inni. Sesselja segist eiga marga drauma og hún trúi því að þeir ræt- ist einn af öðrum. „Ég trúi því að ekkert hoppi upp í fangið á manni, við verðum öll að vinna fyrir hlut- unum. Ég vildi gjarnan vera meira í fjölmiðlum og svona þáttum en svo vildi ég líka eiga mitt eigið hönnunarfyrirtæki og taka að mér að umturna heimilum líkt og ég hef verið að gera." Hún vill lítið tjá sig um hugsanlega stækkun á fjöl- skyldunni, það verði einfaldlega að koma í ljós. „Það er aldrei að vita og ef það gerist verður það bara frá- bært," segir Sesselja að lokum. indiana@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.