Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2006, Page 15
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 15
; c
Hjördís og Sigríður hljóta einkunnir samkvæmt gamla kerfinu, skali sem kallaður er tvöfaldur öster og er skali á bilinu - 23 upp í 16. Páll og Þor-
geir Ingi hljóta hins vegar einkunn samkvæmt tugakerfinu. Talsverð reiknikúnst er að yfirfæra einkunnir milli þessara skala því taka verður allar
einingar inn í dæmið. En samkvæmt upplýsingum frá Nemendaskráningu er það svo að 12,5 er átta á tugaskala - en það er ekki svo einfalt því 13
er líka átta. Þannig er ekki vitað hver hefur tekið hæsta próf í lögfræði á Islandi. Allir eru umsækjendur með 1. einkunn.
Páll Hreinsson
... er prófessor við lagadeild HÍ. Fæddur i
Reykjavik árid 1963. Hann er forseti laga-
deildar Hiog med doktorspróf sem gerir
hann óneitanlega hæfastan meðal um-
sækjenda. En menn hafa fyrir satr að Póll
sé ekki meðal vina Björns. En hvort það
skiptir máli nú þegar Geir Haarde skipar
er erfitt að meta. Hins vegar hefur ekki
vafist fyrir dómsmálaráðherra eða stað-
gengli hans að skipa menn með lægri
einkunn. Skömmu áður en Ólafur Börkur
var skipaður hæstaréttardómari var regl-
unum breytt. Nú dugar 2. einkunn til að
verða skipaður dómari við Hæstarétt en
Ólafur Börkur er einmitt með eina slíka.
Páll útskrifaðist árið 7 988 með I. ein-
kunn, 8,17.
Sigríður Ingvarsdóttir
... er héraðsdomari við heraðsdom
Reykjavíkur. Hún er fædd i Reykjavik
árið 7 949. Hún er óumdeild i starfi og
talin vammtaus dómari. Og kona sem
skiptir verulegu máli.
Sigriður litskrifaðist árið 7 977 með I.
einkunn. Meðaleinkunn 12,44 stig.
Hjördís Björk Hákonardóttir
... er dómstjóri við Héraðsdóm Suður-
lands. Hún er fædd árið 7 944 i Reykja-
vik. Hjördís hefur áður, sem frægt er
orðið, sótt um stöðu við Hæstarétt en
fékk ekki. Hún kærði til jafnrettis-
nefndar og fékk skaðabætur með sátt
úr hendi Björns Bjarnasonar upp á tæp-
ar tiu milljónir. Þeir eru til sem halda
því fram að hluti samkomulagsins hafi
verið sá að hún fengi næstu stöðu sem
losnaði við réttinn.
Hjördis útskrifaðist frá lagadeild 1971
með l.einkunn. Útskrift 1971. Meðal-
einkunn. tvöfaldur öster, 12,32 stig.
Þorgeir Ingi Njálsson
... er héraðsdómari í Reykjanesi. Fædd-
ur i Stykkishólmi árið 1960. Hann eryf-
irlýstur sjálfstæðismaður og hefur
gegnt trúnaðarstörfum fyrir flakkinn.
Hann er giftur Kristjönu Aradóttur og er
þvisvili Þorgerðar Katrínar Gunnars-
dóttur. Hann er eini hinna fjögurra um-
sækjenda sem er sterktengdur núver-
andi valdhöfum Sjálfstæðisflokksins.
Auk þess nefna menn að hann er náinn
vinur Sigurðar Tómasar Magnússonar,
setts saksóknara i Baugsmálum. Þor-
geir Ingi sat meðal annars i bæjarstjórn
Selfoss fyrir flokkinn.
Þorgeir útskrifaðist frá lagadeild árið
1985 með I. einkunn, 7,46.
Ólafur Börkur Þorvaldsson
Skipaður hæstaréttardómari frá sept-
ember 2003. Cand juris frá Hl 1987 með
II. einkunn, 7,16.
Jón Steinar Gunnlaugsson
Skipaður hæstaréttardómari frá októ■
ber 2004. Cand juris 1973 frá Hl með I.
einkunn, fvöfaldur öster, 13,32 stig.
Skipaður hæstaréttardómari frá april
2006
vilja aðrir sem DV ræðir við veðja á Hjördísi og
er þá litið til kynferðis og ekki síður sögunnar, en
forsagan skiptir hér máli.
Níu milljóna samkomulag við
Hjördísi
Óhætt er að segja mikið hafa gengið á
undanfarin ár þegar dómarar hafa verið
skipaðir við Hæstarétt. Ólafur Börkur Þor-
valdsson var skipaður 1. september 2003
og Jón Steinar Gunnlaugsson var skipaður
15. október árið 2004. Eiríkur Tómasson
sótti um þá en voru þá uppi rök fyrir
ráðningu Jóns Steinars að hann
væri praktiserandi lögmaður. Það
kann að skipta máli núna því Páil
Hreinsson er eini háskólamað
urinn í hópnum.
Þegar Ólafur Börkur var
skipaður sótti Hjördís Björk
um. Hún kærði skipan Ólafs
og úrskurðaði kærunefnd
jafnréttismála að Bjöm
Bjamason dómsmálaráð-
herra hefði þá brotið jafnrétt-
islög með því að ganga ffam
hjá henni. Samkomulag tókst
milli þeirra með því að hún tók
sér ársleyfi frá störfum á launum.
Morgunblaðið metur það sem
svo að samkomulagið kosti
hátt í 9 milljónir.
Björn fellur í ónáð hjá
Davíð
Þessi málarekstur
allur er til þess að Bjöm
er nú vanhæfur sem og
féli það í hlut Geirs
að skipa Jón Steinar.
Þeirri spum-
ingu er ósvar-
að hvað
Svala Thorlacius Telur
þetta enga spurningu:
Hjördis verður ráðin.
olli því að Bjöm skipaði Ólaf
Börk sem þótti síst hæfur með-
al þeirra sem sóttu um á sínum
tíma. Bjöm bæði tók á sig mik-
inn pólitískan skell með skipan-
inni sem og málaði sig út í
hom hvað embættisfærslur
varðar. Var mikið um það
skrifað að Ólafur Börkur
hefði það sér helst til ágætis
að vera frændi þáverandi for-
sætisráðherra, Davíðs Oddssonar
seðlabankastjóra.
Heimildir DV herma að það
skipti máli þegar Bjöm skipaði
óvænt Ragnheiði Torfadóttur rektor
við MR, 7. apríl 1995. Meðal umsækj-
enda þá var Ólafur Oddsson menntaskólakenn-
ari. Svo sjálfsagt mun Davíð hafa þótt að Ólafur
fengi stöðuna að hann hafði ekki fyrir því að
árétta það við Bjöm. Svo mjög varð Davíð við,
samkvæmt áreiðanlegum heimildum DV, að
hann horfði í gegnum Bjöm næsta árið, yrti
hvorki á hann né svaraði símhringingum hans.
Þessi meðferð varð svo til þess að Bjöm hikaði
hvergi, þótt það væri gegn öllu öðm, að skipa
ÓlafBörk.
Kynferðið mun skipta máli
Fyrirliggjandi er að nú er það plús að vera
kona. Bæði í ljósi þess að Hjördís Hákonardóttir
vann mál gegn Bimi
Bjömssyni fyrir jafn-
réttisnefhd, en hún
kærði skipan Ólafs
Barkar. Lára V. Júlí-
usdóttir hæstarétt-
arlögmaður segir
þetta lítið samfélag.
Og eigi ekki gott með
að tjá sig um málið
Bæði sé að einn um
sækjenda sé
mjög góð vin-
kona hennar
auk þess sem
hún
við háskólann. Og þar er Páll Hreinsson yfir-
maður hennar. „En það er kona að hverfa úr
réttinum. Og það em væntingar hjá okkur kon-
um í þessari stétt í þá átt,“ segir Lára.
Lára telur reyndar Hæstarétt taka sínar
ákvarðanir burtséð frá því hvað menn í stéttinni
tali. En vísað hefur verið til þess að kynjahlutfall-
ið í Hæstaréttí sé ekki konum í hag. Þar hefur
Guðrún ein setið meðal karlanna.
Svala Thorlacius hæstaréttarlögmaður er
hins vegar ekkert að flækja málin í samtali við
DV: „Ég held að það verði Hjördís Hákonardótt-
ir sem verður ráðin. Held að það sé engin spum-
ing.“
jakob@dv.is
Miklir áhugamenn u átt Forkólfar Sjálfstæðisflokksins
eru allir löglærðir. Björn mhæfanogGeirmunskipa.Björn
kom sér i bobba með þvi að skipa frænda Daviðs.