Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2006, Page 19
r
DV Sport
LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 19
Mars-æðið í bandaríska háskóla-
boltanum er í fullum gangi og nú
geta íslenskir körfuboltaáhuga-
menn fylgst með gangi mála á
NASN-stöðinni á Digital ísland.
I Of mikill hraði Þaö ermikill
hraði í leikjunum og hérsýnir
Marcellus Sommerville hjá
Bradley Braves tilþrif íhraða-
upphlaupi. NordicPhotos/Getty
ijjk ' D :\j
ffit , « ] * i y
h t ! 11 'f 1 inlmilll 1U
Nú er gósentíð áhugamanna um
bandarísku háskólakörfuna gengin í
garð. March Madness, eða marsfár-
ið, hófst í síðustu viku eins og und-
anfarin ár.
March Madness er afar viðeig-
andi gælunefni sem hefur náð að
festast við úrslitakepnni bandan'ska
háskólaboltans. I upphafi eru 65 lið
en aðeins eitt stendur uppi sem sig-
urvegari - NCAA-meistarar. Fyrir-
komulagið er ansi ólíkt úrslita-
keppni NBA, í stað þess að leika sjö
leiki heima og að heiman er aðeins
leikinn einn leikur á hlutlausum
velli. Þetta gerir það að verkum að
meiri möguleikar eru á því að eitt-
hvað af litlu liðunum komi á óvart
og komist lengra áfram í keppninni
en ætla skyldi. Baráttan er gríðarleg.
Menn leika af ástríðu
I Bandaríkjunum þykir háskóla-
boltinn alls ekki síðri en NBA. En
hvernig stendur á því? Er ekki hægt
að reikna með því að þar sem bestu
leikmenn háskóladeildarinnar eru
valdir til þess að leika í NBA sé NBA-
deildin miklu betri? Háskóladeildin
er svona vinsæl vegna þess að í
henni leika menn af ástríðu. Það er
ekkert annað en leikurinn sjálfur og
þörfin fyrir að sigra sem leikmenn
hugsa um. Allir eru að berjast vegna
þess að með fyrsta tapi fellur liðið úr
keppni. Aðalástæðan fyrir því að
meiri ástríða virðist vera í háskóla-
boltanum er þó líklega sú að þar fá
leikmenn ekki greitt fyrir að leika.
Þeir fá aðeins greitt með því að
standa sig vel og sigra. Ef leikmaður
stendur sig vel á háskólastigi kemst
hann í NBA og fær borgað fyrir það,
en ekki þangað til það er búið að
velja hann í nýliðavalinu.
Aðeins fjögur ár í boði
Önnur ástæða fyrir því að leik-
menn virðast leggja sig meira fram á
vellinum er sú að hver leikmaður
fær í mesta lagi 4 ár til þess að vinna
NCAA-titilinn. Magic talaði alltaf
um NCAA-titilinn sem þann sem
honum tókst að vinna en Larry Bird
mistókst. Að sama skapi er Bird enn-
þá að tala um að það sé titillinn sem
hann hefði hvað mest langað til að
vinna.
Vissulega eru fleiri stig skoruð í
NBA, leikmenn troða oftar þar og til-
þrifin eru oftast meiri. En hinn sanni
körfuboltaandi kemur líklega hvergi
betur fram en í NCAA-úrslitakeppn-
inni. Þar sem allt liðið leggst á eitt til
þess að ná settu marki. Þar sem leik-
ið er allt þar til lokaflautið gellur. Þar
sem stjörnur framtíðarinnar fæðast.
Framtiöarstjornur
Framtiðarstjörnur NBA-
deildarinnar eru i aðalhlut-
verkum i háskólaboltan-
um. NordicPhotos/Getty
Mikil spenna Þjálfararlið-
anna taka mikinn þátt i leikn-
um sem og varamenn eins og
sést vel hér. NordicPhotos/Getty
Deildarmeistararnir komnir í 1-0
unnuseinm
Deildarmeistarar Hauka
komust í hann krappan gegn
bikarmeisturum ÍS í fyrsta leik
liðanna í undanúrslitum
Iceland Express deildar kvenna
en unnu að lokum 10 stiga sigur,
76-66. Haukaliðið byrjaði vel og
komst í 8-0 en Stúdínur
unnu næstu 16 mínútur _
leiksins 38-22 og voru _
komnar átta stigum yfir í _ ^
hálfleik, 38-30. Helga
Þorvaldsdóttir skoraði 18 v
stig með þriggja stiga
skotum á þessum kafla
og Signý Hermannsdótt-
ir lokaði teignum og
varði alls 7 skot í hálfleikn-
um. Signý skoraði fyrstu
körfu seinni hálfleiks og kom
IS tíu stigum yfir, 40-30 en
þá var eins og hið unga
lið Hauka næði úr sér
skrekknum. Þær skoruðu
11 stig í röð og 15
gegn aðeins 1 og
voru fimm stigum
yfir fyrir lokaleik-
hlutann, 55-50.
Tvenna hjá Megan Meg-
an Mahoney skoraði 14 af
18stigum sínum i seinni
hálfleik og tókaukþess 13
fráköst. DV-mynd E. Úl.
Haukar skoruðu síðan sex fyrstu
stig hans og eftir það var leikur-
inn í þeirra höndum.
Megan Mahoney var með 18
stig og 13 fráköst hjá Haukum,
Helena Sverrisdóttir bætti við 18
stigum, 10 fráköstum og 7
stoðsendingum en það skipti
liðið gríðarlega miklu máli að ná
22 sóknafráköstum og fá þar
með 15 fleiri skot en ÍS.
1 Maria Conlon var langat-
k kvæðamest hjá ÍS með 25
J stig, 10 fráköst, 5
\ stoðsendingar og 5
stolna bolta og Helga Þor-
I valdsdóttir átti ótrúlegar
113 mínútur þar sem hún
■■ setti niður sex af átta
þriggja stiga körfum sínum
en náði ekki að fylgja því eft-
ir í seinni hálfleiloium. Signý
Hermannsdóttir var einnig
mjög sterk í vöminni með 14
fráköst og 9 varin
skot en IS þarf meira
en 7 stig frá henni í
sókninni ætli liðið
sér í oddaleik.
Alfreð Gíslason valdi sinn fyrsta landsliðshóp í gær
Fjórir EM-farar í kuldanum hjá Alfreð
Fyrsta verkefni Alfreðs Gíslasonar
verður að kalla saman æfingahóp
landsliðsins í Magdeburg um pásk-
ana en hann kynnti val sitt á hópnum
í gær. Athygli vekur að fjórir úr EM-
hópi Viggós Sigurðssonar voru ekki
valdir, þeir Vilhjálmur Halldórsson,
Sigurður Eggertsson, Heimir Öm
Árnason og Þórir Ólafsson. Vilhjálm-
ur var reyndar búinn að lýsa því yfir
að hann myndi ekki spila með lands-
liðinu á nýjan leik fyrr en Viggó hætti
en þó svo að nýr maður sé tekinn við
þarf hann að bíða eitthvað lengur eft-
ir kallinu.
Að sama skapi em nokkur ný og
gömulkunn andlit í landsliðinu á nýj-
an leik en enginn nýliði er í hópnum.
Einar Örn Jónsson er kallaður inn á
nýjan leik sem og Ragnar Óskarsson,
sem lék síðast með landsliðinu í júní
2004. Viggó Sigurðsson valdi hann
aldrei í landsliðið meðan hann var
við stjómvölinn. Þá hefur Alffeð kall-
að á Sverri Bjömsson sem hefur verið
Alfreð Gíslason Valdi 20 leikmenn iæf-
ingahóp landsliðsins igær. DV-mynd E. Ól.
umdeilanlega besti vamarmaður
DHL-deildar karla.
Hópur Alfreðs Gíslasonar
Markverðin
Roland Eradze Stjarnan
Birkir ívar Guðmundsson Haukar
Hreiðar Guðmundsson KA
Útileikmenn:
Vignir Svavarsson Skjern
Jaliesky Garcia Göppingen
Sigfús Sigurðsson Magdeburg
Sverrir Björnsson Fram
Arnór Atlason Magdeburg
Guðjón Valur Sigurðsson Gummersbach
Snorri Steinn Guðjónsson Minden
Ólafur Stefánsson Ciudad Real
Einar Hólmgeirsson Grosswallstadt
EinarÖrn Jónsson Torrevieja
Alexander Petterson Grosswallstadt
Baldvin Þorsteinsson Valur
Róbert Gunnarsson Gummersbach
RagnarÓskarsson US Ivry
Logi Geirsson Lemgo
Markús Máni Michaelsson Dusseldorf
Ásgeir Örn Hallgrímsson Lemgo
Frábær köld með kjúklingi og lambakjöti og út á pizzuna.
Góð á saltkexið með rifsberjahlaupi og sem ídýfa.