Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2006, Blaðsíða 43
Helgarblað DV
LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 43
Ff-
101 Reykjavík með kisuna okkar,
hana Túttu. Mér líður ekki þægilega
annars staðar en í 101. Ég þrífst
bara þar sem er menning og listir,
skrýtið og ekki skrýtið fólk, öll
litaflóra lífsins. Þar sem öllu ægir
saman, þar líður mér vel. Ég vil geta
gengið um falleg hverfi og gengið á
kaffihús."
Segðu mérmeira frá Túttu:
„I raunveruleikanum heitir hún
Crystal Eyfjörð á fæðingarvottorð-
inu, en Magga fannst það alltof
hommalegt nafn á litla kisu!“ segir
hann og skellihlær. „Á tímabili köll-
uðum við allt sem okkur fannst
smart „Tútta" - svo hún fékk það
nafn! Maggi er kisuvinurinn, ég fíla
hunda betur. Ástæðan fyrir því að
ég keypti Túttu er sú að mig langaði
að gefa Magga óvenjulega gjöf á
eins árs trúlofimarafmælinu okkar.
Ég hugsaði mig lengi um hvað ég
gæti gefið honum sem mig langaði
ekki í sjálfan. Ég gat ekki
gefið honum föt, því
þau gætum við
báðir notað.
Hvað gat ég
gefið honum sem mig langaði eng-
an veginn í; gjöf sem yrði bara fyrir
hann? Þá kom kettlingurinn! Þessi
gjöf varð nefnilega að vera gefin af
algjörri óeigingirni."
í haust hélstu málverkasýningu
hér á Thorvaldsen bar. Hvað kom
til?
„Ég framkvæmi bara allt sem
mér dettur í hug, hvort sem það er
að mála, teikna, greiða, sauma,
hanna föt eða eitthvað annað. Það
er engin ein tækni sem ég nota,
þetta eru abstrakt myndir. Ég gæti
aldrei haft mynd af fjalli og bát upp
á vegg á heimilinu hjá mér, þótt
mér finnist þær í lagi á sumum
heimilum."
Tvisvar varstu kjörinn drag-
drottning íslands í búningum sem
þú saumaðir sjálfur og bjóst til hár-
kollur og allt fylgiskraut. Er drag-
drottningartíminn liðinn
hjá þér í Ijósi þess
hvað þú
orðinn herralegur og kominn í
sambúð?
„Nei, ekkert endilega. Ég velti
ekki mikið fyrir mér framtíð og for-
tíð, lifi í núinu og tek ákvarðanir
þegar þarf að taka þær. Dragkeppni
er ekkert annað en listgrein eins og
þeir vita sem fylgst hafa með. Þar
þarf að fara saman söngur, dans og
hreyfingar - og allt þarf að vera vel
æft. En þetta með að sauma og
mála stafar af því að ég var alltaf
listhneigður og fékk að gera það
sem ég vildi. Ég fékk að mála,
smíða, prjóna, sauma, allt sem mér
datt í hug var ég hvattur til að gera.
Það skiptir máli að ekki sé dregið úr
áhuga barna."
Tvær stjörnur skína skært
Skjöldur hefur mikið að gera við
hárgreiðslu og förðun; meðal ann-
ars í Hafinu bláa sem nú er sýnt í
Austurbæ. En nú styttist í
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva, Eurovision, þar sem
þú verður aðalmaðurinn bak við
tjöldin og myndbandið með Silvíu
Nótt var frumsýntígærkvöldi:
„Já, ég sé um hárgreiðslu Silvíu
Nóttar og hárgreiðslu og förðun
allra bakraddasöngvaranna
líka. Við Silvía munum í
sameiningu sjá um förðun-
ina á henni sjálfri í keppn-
inni en svo sé ég líka um
Romario, Peppe, Pétur
Jesús, Siggu Beinteins...
já, bara allt þetta fólk
sem kemur á sviðið.
Þau hjá Rifka-uihboð-
inu styrkja mig svo ég
„Ég virkilega lagði
mig fram um að
vera dreifbýlisstrák-
ur. Ég reyndi að
vinna í fiski, moka
skurði og vinna
unglingavinnu en
það var ekki ég."
geti sparslað í liðið! Ég hlaldca mik-
ið til að sjá Aþenu. Hugsaðu þér,
ég sem elska hita, hef aldrei komið
í heitt land.“
Hvernig er Silvía Nótt?
„Hún er yndisleg. Reyndar get-
ur stundum verið erfitt að vinna
með henni, því hún kallar mig
stundum út á nóttunni eða bara
þegar henni sjálfri hentar, en hún
borgar óheyrilega vel þannig að ég
er ekkert að kvarta...!“
En hvernig gengur tveimur
stjörnum að vinna saman? Eruð
þið ekkert að passa upp ááð önn-
ur skyggi ekki á hina?
„Nei, þar sem tvær stjörnur eru
saman kemur blossi, þá verður
skinið aldrei skærara!" segir hann
brosandi. „Okkur gengur mjög vel
að vinna saman og það er ótrúlegt
að fá að taka þátt í þessu ævin-
týri."
Þegar ég spyr hann hvort ein-
hver setning hafí mótað hann,
eitthvað sem hann hugsar stöðugt
um, svarar hann að bragði:
„Já. Þegar ég var sex ára sagði ég
mömmu að þegar ég yrði stór ætl-
aði ég að verða frægur og ríkur.
Mamma sagði mér að svona ætti
ekld að hugsa. Maður ætti fyrst og
fremst að vera hamingjusamur.
Þetta samtal okkar mömmu kemur
upp í hugann við og við. Ég held að
ég sé bráðum að ná þessu mark-
miði, að verða frægur, ríkur og
hamingjusamur! Ég set mér alltaf
markmið, velti fýrir mér möguleik-
unum á að ná þeim, fer svo af stað
og vinn mig að endapunktinum.
Án markmiða verður ekkert úr
neinu. Þá fjúkum við bara um eins
og laufblað í vindi og vitum ekki
hvaða stefnu við eigum að taka.
Slíkt boðar aldrei gott. Ég skrifa
mín markmið i bók og vinn reglu-
lega með þau. Aðeins á þann hátt
mun mér takast ætlunarverk mitt."
Og vitið til. Strákurinn sem
kvaddi Ólafsvík og reis upp sem
fagurt lótusbióm hefur ekki sagt
sittsíðasta orð. Skjöldur Eyfjörð er
svo fjölhæfur að útilokað er að
ætla sér að geta hverju hann tekur
upp á næst. Hann er hins vegar
það ákveðinn í markmiðaskránni
sinni að hárgreiðslunni mun hann
ljúka á tiisettum tíma, en þá gætu
líka verið komin ný markmið til að
stefna að. Hann hefur þegar náð
þeim markmiðum sem hann setti
sér sex ára: að verða frægur og
hamingjusamur, og ríkidæmi
hans er fólgið í ástinni sem hann
ber til Magga síns og æðruleysinu
sem búddisminn gefur honum.
annakristine@dv.is
PBr4MÍ
mm
Skjöldur Eyfjörð Ákvað
oð láta drauminn rætast
og fór í hárgreiðslunám.
e
f
*