Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2006, Side 15
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 29. APRlL 2006 1 5
Valsmönnum hefur borist mikill styrkur fyrir átökin í Landsbankadeild karla í sumar.
Til liðs við félagið hefur gengið skoskur miðvallarleikmaður að nafni Barry Smith sem
á að baki meira en 400 leiki í efstu og næstefstu deild í Skotlandi. Hann er fyrirliði
Dundee og leikur sinn síðasta leik með félaginu í dag.
VerFH Atlantic-
bikarinn
íslandsmeistarar FH-
inga eru á leiðinni til Fær-
eyja þar sem þeir mæta
færeysku meisturunum í
B36 í árlega Atlantic-bik-
arnum en þetta er fimmta
árið í röð sem íslensku og
færeysku meistararnir mæt-
ast. íslensku meistaraliðin
hafa unnið þrjá af fjórum
þessara leikja, þar á meðal í
fyrra þegar FH vann 4-1 sig-
ur á HB í Egilshöllinni. Það
eru þegar búnir sex leikir
í færeysku deildinni og er
B36 á toppnum með 4 sigra,
1 jafntefli og 1 tap en það
kom einmitt gegn HB í síð-
asta leik.
Mögnuð end-
urkoma Boro
Það verða Middlesbrough
og Sevilla sem mætast í úr-
slitaleik UEFA-bikarsins
en seinni leikjum undan-
úrslitanna lauk á firrunm-
dagskvöldið. Massimo
Maccarone kom inn á sem
varamaður og skoraði tvíveg-
is í 4-2 sigri Middlesbrough á
Steaua Bucharest sem vann
fyrri leikinn 1 -0 og komst í
2-0 eftir aðeins 24 mínútna
leik. Auk Maccarone skoruðu
þeir Mark Viduka og Chris
Riggott en sigurmark ítal-
ans kom á 89. mínútu leiks-
ins. Antonio Puerto skoraði
eina markið í leik Sevilla og
Schalke í ifamlengingu.
Valsstelpur
íúrslitin
Valur er komið
í úrslit fyrsta deild-
arbikars kvenna í
handbolta eftir 30-
27 sigur á Haukum
á Ásvöllum. Valur
vann fyrri leikinn
23-22 og einvígið
þar með 2-0. Stjaman tap-
aði 15-21 fyrir Islandsmeist-
urum ÍBV á heimavelli og
mistókst þar með að tryggja
sér sæti í úrslitunum. Iiðin
mætast því í oddaleik í Eyj -
um á morgun og hefst leik-
urinn klukkan 16.
Barry Smith VerðuríValsbún-
ingnum næstu tvö árin.
Nordic Photos/Getty
Þó svo að Valsmenn hafi misst marga leikmenn frá síðasta tíma-
bili hafa þeir ekki slegið slöku við og bætt við sig mörgum sterk-
um leikmönnum. Og þótt aðeins tvær vikur séu í mót eru þeir
ekki hættir og hafa nú nælt sér í afar sterkan leikmann. Um er að
ræða fyrirliða skoska 1. deildarliðsins Dundee, hinn 32 ára gamla
Barry Smith, sem hefur samið við Valsmenn til tveggja ára.
Samningur Smiths við Dundee
rennur út núna í lok skoska tímabils-
ins en félagið leikur sinn síðasta leik
í 1. deildinni í Skotlandi, gegn Queen
of the South. Strax eftir helgi er áætí-
að að Smith komi til íslands en hann
hefur skrifað undir tveggja ára samn-
ing við Valsmenn. Samkvæmt heim-
ildum DV sports mun hann þiggja
á fjórðu milljón króna í árslaun auk
þess sem að hann mun njóta ýmissa
fríðinda.
Sex ár í úrvalsdeildinni
Smith er nú að leika sitt tíunda
tímabil í röð hjá Dundee og hef-
ur á þeim tíma leikið fjögur tímabil
í skosku 1. deildinni en sex í skosku
úrvalsdeildinni. Liðið féll úr úrvals-
deildinni síðastliðið vor eftír sex ára
veru og hefur ekki vegnað vel í vet-
ur en liðið er í sjöunda sætí 1. deild-
arinnar. Dundee komst reyndar í
undanúrslit skosku bikarkeppninn-
ar en tapaði þar fyrir 2. deildarliðinu
Gretnu, 3-0, þar sem Smith gerðist
svo ólánsamur að skora sjálfsmark.
En það er til marks um í hversu
miklum metum Smith er hjá for-
ráðamönnum Dundee að þeg-
ar knattspymustjóra liðsins, Alan
Kernaghan, var sagt upp í vikunni
var Smith ásamt öðrum beðinn um
að taka tímabundið við stjórn liðs-
leiknum að hann hefur haldið áfram
að gegna því hlutverki í liðinu.
Hann mun því falla afar vel inn í
Valsliðið, ekki síst í fjarveru Stefáns
Helga Jónssonar, sem gegndi oftar
en ekki sama hlutverki hjá Val í fyrra
en hann hefur nú lagt skóna
á hilluna.
Eins og Winnie?
Valsmenn munu
sjálfsagt koma til með
að binda miklar von-
ir við Barry Smith en
mörgum er enn í
fersku minni er
David Winn-
ie kom til KR-
inga árið 1998.
r nt-í
kABHOUs
Sterkur varnarmaður
Smith gekk til liðs við Dundee
árið 1995 eftir að hafa verið á mála
hjá Celtíc án þess þó að hafa komið
mikið við sögu í aðalliði þess félags.
En á þessum ellefu árum í Dundee
hefur hann unnið sér sess sem einn
af sterkustu leikmönnum félagsins
og er fyrirliði þess í dag. Hann hóf
feril sinn sem miðvörður en þegar
Dundee vann sér sætí í skosku úr-
valsdeildinni vorið 1998 var hann
færður í stöðu hægri bakvarðar.
Haustíð 2002 ákvað hins vegar þá-
verandi stjóri liðsins, Jim Duffy, að
setja hann í stöðu afturliggjandi
miðjumanns sem hafði mestar gæt-
ur á hættulegasta leikmanni and-
stæðingsins og stóð hann sig svo vel í
Fyrir tímabilið hafði KR-liðið misst
óhemju marga af sínum sterkustu
leikmönnum, svo sem Brynjar
B Björn Gunnarsson, Heimi Guð-
i| jónsson, Hilmar Björnsson,
B Ólaf Kristjánsson, Óskar Þor-
Br valdsson, Ríharð Daðason og
H Þórhall Dan Jóhannsson - allt
V A-landsliðsmenn, án þess að fá
marga í staðinn. Þegar fjórar um-
ferðir voru búnar af mótínu gekk
David Winnie til liðs við KR-inga
sem fengu á sig níu mörk allt sumar-
ið, lentu í 2. sæti í deildinni og Winn-
ie var útnefndur besti leikmaður fs-
landsmótsins það árið.
Fjöldamargir aðrir skoskir knatt-
spyrnumenn hafa lagt leið sína til
íslands til að leika hér á landi, til
að mynda Paul McShane sem leik-
ur enn með Grindvíkingum, Scott
Ramsey og James Bett. eirikurst@dv.is
Passar hættulegasta manninn BarrySmith
hefur gegnt þvi hlutverki hjá Dundee aðhafa
gætur á hættulegasta sóknarmanni andstæðings-
ins. Hér erhann gegn Craig Bellamy, leikmanni
Celtic íleik liðanna ískosku úrvalsdeildnni I fyrra.
DV-mynd Reuters
Heimsmeistarakeppnin í Þýskalandi
Borgar sig ekki að
berrassa sig á HM
FIFA hefur tilkynnt að það verði
stórar sektir fyrir að hlaupa nakinn
inn á leik á Heimsmeistarakeppn-
inni í Þýskalandi í sumar. Dómstóll
í Rostock dæmdi á dögunum þýskan
áhorfenda sem berrassaði sig á leik í
þýsku deildinni árið 2003 til að borga
10 þúsund evrur í sekt fyrir að hlaupa
nakinn inn á leik hjá Hansa Rostock.
Þetta jafngildir tæplega 100 þúsund
íslenskra króna og er nú orðið for-
dæmi fyrir hækkandi sektum fyrir
viðlíka ókurteisi. Áhorfendur á leikj-
um HM í sumar munu þannig þurfa
að skrifa undir sérstakan samning
um að undir öllum kringumstæðum
mega þeir ekki fara inn á leikvöllinn
og refsingin verður stór sekt brjóti
þeir þennan samning. Þeir sem
hlupu inn á leikina í álfukeppninni í
fyrra fengu tæplega 40 þúsund króna
sekt en skipulagsnefnd HM ætlar að
margfalda þá upphæð í sumar.
.yftarar • Eldshöfða 10-110 Reykjavlk • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557
BOLTINN I BEINNI
VEISLUSALUR
afmæli, steggir / gæsir og oínkasamkvæ
POOL & SNOKER
Hverfisgata 46 s: 55 25 300