Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2006, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2006, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ2006 Fréttir DV Friðrik Indriðason • Kvikmyndagerðarkonan Helga Brekkan á heimildarmynd á dag- skrá sænska sjónvarpsins í kvöld kl. 20 um Guðberg Bergsson. Sama mynd var verðlaunuð á Heimilda- og stuttmyndahátíðinni í Reykjavík í íyrra. ítrekað hefur Helga boðið Rúnari Gunnarssyni dagskrárstjóra innlends efnis myndina til kaups en hann þráfaldlega hafnað henni. Þegar Guðbergur var spurður um áhugaleysi RÚV á að sýna myndina mun hann hafa svarað: Ég er ekki paranojd, en heldur ekki sljór... • Geir Haarde for- sætisráðherra hefur vakið athygli fyrir að víkja sér undan því að kynna umdeil- anlegar ákvarðanir á sínum stutta ferli. Varla hefur það verið hending að fyrsta mál sem Þorgerð- ur Katrín varð að afgreiða sem sitj- andi forsætisráðherra var að fresta Tónlistarhúsinu í Reykjavík. Það mun vafalaust fylgja henni lengi en hún er tungulipur og mun kjafta sig út úr því... • Nanna Rögnvalds- dóttir hefur bæst í hóp þeirra sem sagt hafa upp störfum hjá Fróða en hún hefur lengi verið einn öfl- ugasti matarskríb- ent landsins. Nanna bloggar um ástæðu þess að hún hættir og tekur strax fram að hún sé ekki að elta Reyni 'I'raustason. Ástæðan sé einfaldlega sú að henni fannst ekkert gaman í vinnunni lengur. Og að hún var orðin leið á að eyða meir en klukkutíma á dag í strætóferðir upp á Höfða. Þetta er víst í fyrsta sinn í 20 ár sem Nanna segir upp vinnu.... • Andrés Jóns- son, einn þeirra sem bloggar á „Orðið á götunni", var á ferð- inni á athaihasvæði 365 í Skaftahlíðinni í vikunni. Var Andrés í smók í rólegheit- unum þegar Róbert MarshaU, yfir- maður NFS, kom að honum og hellti úr skálum reiði sinnar yfir hann. Kunni hann Andrési litlar þakkir fyrir „skúbb" Orðsins um að Egill Helga- son væri að hætta með Silfrið sitt... • Og talandi um Orðið er fjallað þar um athyglisverða stefnubreytingu Bolla Thoroddsen og félaga í Heimdalli í landbúnaðarmál- um sem ffam kom í vikunni. Þessi tilvitnun í ályktun Heimdallar er birt á Orðinu: „Standi vilji landsmanna til þess að styðja við bakið á íslenskum landbúnaði ætti að gera það með beinum og gegnsæjum hætti með greiðslum til bænda en ekki neyslustýrandi gjöld- um og tollum." Er Bolli ekki bara að gera það sem mamma hans segir honum? Sú er Margrét Björnsdóttir einn aðalhugmyndafræðingur Sam- fylkingarinnar... Lög um drelfingu á klámi standa að mestu óbreytt frá 1940. Jón Magnússon hæstarétt- arlögmaður og Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjónn rannsóknadeildar segja kom- inn tíma á endurskoðun. 66 ára gömul lög um klám þurfa endurskoðun Lög um framleiðslu og dreifingu á klámi á íslandi eru frá árinu 1940. Ákvæði um barnaklám var bætt við á árunum 1998-2002 en að öðru leyti hafa lögin staðið óbreytt. Lögreglan og lögmenn vilja breytingar á lögunum til að svara kalli þess veruleika sem nú er til staðar á íslandi. Auðvelt er fyrir neytendur að nálgast klám hjá ljósvakamiðlum á íslandi í dag. Digital ísland, sem rek- ið er af 365 (líkt og DV), og Síminn bjóða upp á klám í gegnum mynd- lykla sína. Um er að ræða kynlífs- sýningar þar sem ekki sést í kyn- færi karla en einstaka kvensköpum bregður fyrir. Samkvæmt fræðunum nefnist þess konar klám „soft-pom" eða „hotel-porn" en er klám engu að síður. Klám á vefsíðum Sömu sögu er að segja um net- ið. Á íslensku vefsvæðunum geim- ur.is og b2.is, þar sem gert er út á yngri kynslóðir, eru tenglar inn á er- lendar vefsíður sem innihalda snið- ug myndbönd fyrir krakka í bland við tengla inn á klámsíður. Eins er til lénið klam.is, sem eins og nafnið gefur til kynna, býður upp á klám án takmarkana. Kominn tími á endurskoðun Jón Magnússon hæstaréttarlög- maður segir löngu kominn tíma á endurskoðun laganna og vill að þar Geimur.is og b2.is islenskar vefslður fyrir unglinga sem bjóða upp á klám. verði betur skilgreint að hverju lög- reglan eigi að leita. „Það verður einnig að færa lögin nær réttarvit- und fólks. Lögin eru komin það langt frá raunveruleikanum og tíðarand- anum að þeim er ekki fylgt." Engin rannsókn Þegar DV innti eftir því hjá Herði Jóhannessyni, yfirlögregluþjóni rannsóknadeildar, hvort einhverjir af þessum miðlum væru í rannsókn kannaðist hann ekki við það, en sagði athæfið samt sem áður ólög- legt, enda dreifing kláms með öllu óheimil á íslandi. Ný ákvæði um barnaklám Varðandi 210. grein hegning- arlaga sem fjallar um klám bendir Hörður á að ákvæðum um vörslu og dreifingu barnakláms hafi verið bætt við á árun- um 1998-2002 sem hafi skýrt línurn- ar verulega. / Fjöldi manna sem framleitt hafði ogdreift Það verður einnig að færa lögin nær réttar- vitund fólks. Lögin eru komin það langt frá raunveruleikanum og tíðarandanum að þeim erekki fylgt." bama- klámi hafi verið handtekinn og dæmdur í kjölfar lagabreyting arinnar. Hins vegar hafi hegningarlögum um klám almennt ekkert verið breytt frá 1940 og tekur Hörður undir með Jóni Magnússyni að tími sé kominn til að endurskoða lögin. reynir@dv.is "I ' ■ i * . ' * m x v Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður Segir kominn tfma á endurskoðun laga um klám. DV-mynd Stefán Digital fsland og Sfminn Bjóða upp á klám I gegnum myndlykla slna. .. Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjónn Nýleg ákvæði um barnaklám hafa skýrt llnurnar verulega. Aftur á móti vanti skýrari lagasetningar um klám almennt. DV-mynd Hilli Kókaínparið í Leifsstöð er laust úr haldi Með tæp 250 grömm af kókí í fjórum skóm f Par sem tekið var með tæpt kíló af kókaíni í skóm « þegar það kom frá Frankfurt í Þýskalandi * í byrjun júlí losnaði úr gæsluvarðhaldi fyrir síðustu helgi. Karl og kona á þrítugsaldri játuðu að hafa stað- ið að innflutningi á kókaíninu. Toll- verðir fundu kókaínið í skóm pars- ins við kom- una til lands- ins þann 6. júlí. í fjórum skóm hafði parið falið tæplega 250 grömm af kóka- íni, samkvæmt upp- lýsingum frá sýslumannsemb- ættinu á Keflavíkurflugvelli. Við húsleit á heimili fólks- ins fannst svo ríflega kíló af hassi til viðbótar. Gæsluvarðhald yfir fólkinu var ekki ffamlengt á þeim forsendum að mál- ið telst upplýst. Að sögn Ásgeirs Karls- sonar, yfirmanns fíkniefnadeild- ar lögreglunn- ar í Reykjavík sem fór með rannsókn málsins, er næst á dagskrá að ganga frá því og koma til ákæruvalds. gudmundur@dv.is Kókaín Pariðvar tekið með um klló af kókalni I fjórum skóm. Myndin erúrsafni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.